Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Kjartan Kjartansson skrifar 2. september 2026 09:02 Reikna má með að mannkynið þurfi að lifa með afleiðingum gjörða sinna í marga áratugi í það minnsta þar sem því hefur ekki tekist að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Ein þeirra afleiðinga eru hættulegir gróðureldar eins og þessi í Big Sur í Kaliforníu. AP/Ethan Swope Ekki er lengur mögulegt að koma í veg fyrir að hlýnun jarðar verði umfram eina og hálfa gráðu og líklegt er að farið verði fram yfir þau mörk á næstu árum. Sérfræðingar Sameinuðu þjóðanna segja brýnt að mannkynið komi í veg fyrir enn meiri hlýnun og reyni síðar að vinda ofan af þeirri sem þegar hefur átt sér stað.
Eyríki í Kyrrahafi sem sjá fram á að sökkva í sæ vegna loftslagsbreytinga af völdum manna komu því til leiðar að ítrasta markmið Parísarsamkomulagsins var að takmarka hlýnunina við 1,5°C borið saman við viðmiðunartímabil fyrir iðnbyltingu. Því markmiði átti að ná með hröðum samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda. Ríki heims hafa ekki gert nóg til þess að draga úr losun. Því segja sérfræðingar hjá umhverfisstofnun Sameinuðu þjóðanna (UNEP) að ekki sé lengur hægt að koma í veg fyrir að hlýunin nái einni og hálfri gráðu. Í nýrri skýrslu sem birt var í dag segja þeir að í allra besta falli verði hægt að takmarka hlýnunina við um 1,8 gráður um miðja öldina ef mannkynið bregst hratt við. Ef stefna ríkisstjórna heims breytist ekki gæti hlýnunin náð 2,6 gráðum fyrir lok aldarinnar. Lifa með afleiðingunum í áratugi Þrátt fyrir þetta segir Inger Andersen, forstjóri UNEP, að 1,5 gráður séu enn markmiðið. Nú þurfi hins vegar nýja nálgun þar sem komið verði bakdyramegin að markinu. Í þeirri sviðsmynd skjóti mannkynið yfir markið en nái svo að vinda ofan af hlýnuninni síðar á öldinni. Þessi nálgun kallar aftur á móti að mönnum takist að þróa tækni til þess að soga koltvísýring úr andrúmslofti jarðar og binda hann varanlega. Slík tækni er enn skammt á veg komin. Förgunarverksmiðja Climeworks á Hellisheiði er sú sem er komin einna lengst í þróun í heiminum en ekki hefur tekist að skala þá starfsemi upp eins hratt og eigendur hennar vonuðust til. Uppþornaður farvegur Dónár í Rúmeníu í síðasta mánuði. Slökkva þurfti á eina kjarnorkuveri landsins vegna hitans þar sem ekki fékkst nóg kælivatn fyrir það.AP/Vadim Ghirda Mannkynið og allt lífríki jarðar þyrfti að lifa með afleiðingum þess að fara fram yfir 1,5 gráðu þröskuldinn um áratuga skeið. Skýrsluhöfundar segja að á þeim tíma muni fleiri látast og veikjast vegna afleiðinga hlýnunar. Matvælaframleiðsla mun dragast saman, hungursneyðir og vatnsskortur ágerast, dýrategundir munu deyja út og hagkerfi ríkja heims versna. Hvert brot úr gráðu skiptir máli Til þess að koma í veg fyrir frekari hamfarir af völdum hlýnunar og til þess að gera föngun og bindingu úr lofti viðráðanlegri verður mannkynið einnig að koma í veg fyrir að hlýnunin verði mikið meiri. „Ef við grípum til aðgerða nú getum við takmarkað hversu langt við skjótum yfir markið. Það verður ekki öruggur heimur en öruggari en að vera yfir 1,5 gráðunum lengi,“ segir í skýrslunni. Aðgerðasinnar sem kröfðust þess að jarðefnaeldsneyti yrði tekið úr umferð til þess að 1,5 gráðu markmiðið næðist á loftslagsráðstefnu SÞ í Aserbaídsjan árið 2024.AP/Sergei Grits Eina leiðin til þess að koma í veg fyrir enn frekari hlýnun er að mannkynið nái kolefnishlutleysi. Til þess þarf það að hætta bruna á jarðefnaeldsneyti sem er helsta uppspretta losunar gróðurhúsalofttegunda. Í skýrlunni segir að reikna megi með viðbótarhlýnun um að minnsta kosti tíunda hluta úr gráðu fyrir hver fimm ár sem mannkynið dregur lappirnar í að draga úr losun. Andrew Weaver, loftslagsvísindamaður við Viktoríuháskóla í Ástralíu sem kom ekki nálægt skýrslunni, segir við AP-fréttastofuna að 1,5 gráðu þröskuldurinn sé ekki nein töfratala. Jörðinni muni um allan árangur sem menn nái. „Hver tíund úr gráðu sem við komum í veg fyrir þýðir minni skaði,“ segir hann.
Loftslagsmál Sameinuðu þjóðirnar Jarðefnaeldsneyti Tengdar fréttir Evrópuríki ná saman um verulega útþynnt loftslagsmarkmið Bráðabirgðasamkomulag sem umhverfisráðherrar Evrópusambandsríkja náðu í morgun um loftslagsmarkmið sambandsins til ársins 2040 útvatnar verulega tillögu framkvæmdastjórnar þess. Þá samþykktu ráðherrarnir uppfært markmið fyrir 2035. 5. nóvember 2025 09:22 Ekki lengur fjarlægur möguleiki að hringrás í Atlantshafi stöðvist Hættan á því að lykilhringrás í Norður-Atlantshafi gæti stöðvast vegna loftslagsbreytingar hefur verið verulega vanmetin samkvæmt niðurstöðum nýrrar rannsóknar. Allt að fjórðungslíkur gætu verið á hruni hringrásarinnar jafnvel þótt menn drægju verulega úr losun gróðurhúsalofttegunda. 29. ágúst 2025 09:35 Gróðurhúsalofttegundir ekki lengur skaðlegar samkvæmt Trump Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur fellt úr gildi álit Umhverfisstofnunar Bandaríkjanna um að gróðurhúsalofttegundir, sem valda hnattrænni hlýnun, séu skaðlegar heilsu og velferð manna. 13. febrúar 2026 06:58 Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Innlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Erlent Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Innlent Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Innlent Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Erlent Fleiri fréttir Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Gerðu húsleit hjá þingkonu sem Trump á sökótt við Verðlaunaðir fyrir að smíða hagstjórnartæki samtímans Skaut konu sína, börn og barnabörn Sektaður fyrir að geyma lík foreldranna í frysti í áratugi Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Tígrisdýrið verður ekki aflífað Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Fær aukadag til stjórnarmyndunar Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Leó páfi á leið í aðgerð eftir að hnútur fannst á lunga Vara við því að fara um flugvelli í Sádí-Arabíu Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Vill nýjan Úkraínuforseta Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Níu létust eftir skotárás Þrjú börn meðal fimmtán látinna í árás á íbúðarblokkir Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Þúsundum gert að yfirgefa heimili sín vegna Isaias Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Sjá meira
Evrópuríki ná saman um verulega útþynnt loftslagsmarkmið Bráðabirgðasamkomulag sem umhverfisráðherrar Evrópusambandsríkja náðu í morgun um loftslagsmarkmið sambandsins til ársins 2040 útvatnar verulega tillögu framkvæmdastjórnar þess. Þá samþykktu ráðherrarnir uppfært markmið fyrir 2035. 5. nóvember 2025 09:22
Ekki lengur fjarlægur möguleiki að hringrás í Atlantshafi stöðvist Hættan á því að lykilhringrás í Norður-Atlantshafi gæti stöðvast vegna loftslagsbreytingar hefur verið verulega vanmetin samkvæmt niðurstöðum nýrrar rannsóknar. Allt að fjórðungslíkur gætu verið á hruni hringrásarinnar jafnvel þótt menn drægju verulega úr losun gróðurhúsalofttegunda. 29. ágúst 2025 09:35
Gróðurhúsalofttegundir ekki lengur skaðlegar samkvæmt Trump Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur fellt úr gildi álit Umhverfisstofnunar Bandaríkjanna um að gróðurhúsalofttegundir, sem valda hnattrænni hlýnun, séu skaðlegar heilsu og velferð manna. 13. febrúar 2026 06:58