
Skipulag

Hönnunarsamkeppni: Ætla að gera Lækjartorg að rými fyrir fólk
Reykjavíkurborg og Félag íslenskra landslagsarkitekta (FÍLA) hafa efnt til hönnunarsamkeppni um Lækjartorg og aðliggjandi gatnarými. Nú er óskað eftir þátttakendum og öllum er frjáls þátttaka.

Miklatorg nýtt hjarta Hlíðanna í tillögum um Miklubraut í stokk
Fimm tillögur að uppbyggingu á og við Miklubrautarstokk voru kynntar á opnum fundi Dags B. Eggertssonar borgarstjóra í gær. Tillögurnar fela allar í sér mikla uppbyggingu byggðar á og við stokkana.

Fimm teymi komust áfram í samkeppni um þróunina við Keflavíkurflugvöll til 2050
Fimm fjölþjóðleg teymi hafa verið valin til áframhaldandi þátttöku í forvali Kadeco um þróunaráætlun fyrir stórt svæði umhverfis Keflavíkurflugvöll.

„Guð forði okkur frá því að verði byggt þarna“
Ný landfylling í Sundahöfn er mikið deilumál og eru íbúar í Laugarnesi ekki parsáttir við það að verið sé að bæta í fyllinguna þessa dagana. Áætlanir eru uppi um að nýjar höfuðstöðvar Faxaflóahafna rísi þar sem verið er að koma landfyllingunni niður og eru íbúar á svæðinu áhyggjufullir um að náttúru- og útsýnisspjöll fylgi þessari uppbyggingu.

Bein útsending: Miklabraut og Sæbraut í stokk
Opinn fundur Dags B. Eggertssonar, borgarstjóra í Reykjavík, um tillögur um Miklubrautarstokk og Vogabyggðarstokk hefst í dag klukkan 9 og stendur til klukkan 11.

Ósátt við viðbrögð borgarinnar eftir ítrekaðar kvartanir og milljónarskemmdarverk
Íbúar í miðbæ Reykjavíkur sem hafa ítrekað kvartað undan lélegum aðbúnaði í bílastæðahúsi og kenna aðgerðaleysi borgarinnar um milljónarskemmdarverk sem var unnið á bíl þeirra.

Heildarlausnir fyrir vöruhús
Áltak býður heildarlausnir fyrir vöruhús en fyrirtækið fer meðal annars með umboð sænska fyrirtækisins Eab.

Háhýsi við Hamraborg
Skipulagsvald er alfarið í höndum sveitarfélaga. Lagabálkurinn sem fjallar um regluverk skipulagslaga eru lög 2010 nr. 123. Um markmið laganna er fjallað í 1. grein.

Vilja fjarlægja minningu um hörmulega atburði og reisa eitthvað fallegt
Framkvæmdir við að rífa brunarústirnar að Bræðraborgarstíg 1 í vesturbæ Reykjavíkur hófust í dag. Húsið brann seint í júnímánuði á síðasta ári með þeim afleiðingum að þrjú létu lífið. Talsmaður nýrra eigenda hússins segir vonir standa til að hægt verði að klára niðurrif hratt og vel.

Segir bílstjóra hunsa göngugötuna, aka hratt og stofna börnum í hættu
Íbúi við göngugötuna á Laugavegi segir útfærslu á henni slæma og að ástandið hafi versnað upp á síðkastið. Bílstjórar virði lokun götunnar að vettugi, aki hratt og stofni jafnvel börnum í hættu.

Afsökunarbeiðni á leikskólaplani
Samherji baðst afsökunar í vikunni. Þeirri afsökunarbeiðni hefur verið tekið fálega ef ekki beinlínis illa. Og reyndar á það við um þær afsökunarbeiðnir sem fallið hafa á árinu.

Skoða að færa KFC nær Akureyri
Skyndibitakeðjan KFC er nú í viðræðum við fasteignafélagið Klettás um mögulega opnun nýs veitingastaðar við Norðurtorg á Akureyri. Viðræðurnar eru á byrjunarstigi en stjórnendur KFC hafa reynt að nema land fyrir norðan í tuttugu ár.

Íbúar höfnuðu hugmyndum um háhýsi með afgerandi hætti
67% þátttakenda í ráðgefandi íbúðakosningu um aðalskipulag Oddeyrar á Akureyri greiddu atkvæði með gildandi skipulagi þar sem gert er ráð fyrir þriggja til fjögurra hæða húsum á svonefndum Gránufélagsreit.

Skipulagsmál - aðgangur almennings að raunsærri mynd
Nýverið rakst ég á færslu á facebook þar sem tvær tillögur að mótun miðbæjarkjarna voru bornar saman. Önnur tillagan sýndi framtíðarsýn fyrir nýjan miðbæ á Selfossi en hin fyrir miðbæinn á Akureyri.

Steypusílóum verður breytt í gróðurhús
Steypustöðinni á Sævarhöfða verður umbreytt í veitingastaði og og nýsköpunarmiðstöð verði verðlaunatillaga sem kynnt var í dag í Ráðhúsi Reykjavíkur að veruleika. Þá verða steypusíló á svæðinu gerð að gróðurhúsum.

Bein útsending: Uppbygging húsnæðis í Reykjavík til framtíðar
Framtíðaruppbygging húsnæðis í Reykjavíkurborg verður til umræðu á fundi um grænt húsnæði klukkan 9 í dag.

Hagatorg verði almenningsgarður í þágu skóla
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri Reykjavíkur segir að kallað verði eftir hugmyndum um þróun á hringtorginu risavaxna Hagatorgi í Vesturbæ. Þær hugmyndir eiga að tengjast Hagatorgi sem „almenningsgarðs eða almenningsrýmis.“

Til greina kemur að setja kvóta á rástímana
Ásókn í að komast að á golfvelli á höfuðborgarsvæðinu hefur aldrei verið meiri og bitist er um rástímana. Sekúndum eftir að opnað hefur verið fyrir skráningu eru allir tímar bókaðir; ýmsum til mikillar mæðu.

Efna til hönnunarsamkeppni um Fossvogslaug
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri Kópavogs skrifuðu í dag undir viljayfirlýsingu um að finna nýrri sameiginlegri sundlaug bæjarfélaganna stað um miðbik Fossvogsdals í göngufæri frá grunnskólum dalsins, Snælandsskóla og Fossvogsskóla.

Leitar sameiginlegra flata um framtíð hálendisvega
Vegagerðin leitar nú málamiðlana milli þeirra sjónarmiða hvort ráðast eigi í uppbyggingu hálendisvega með bundnu slitlagi eða hvort halda eigi þeim sem mest óbreyttum sem jeppavegum.

„Þetta er svo mikið bíó,“ segir Guðmundur um stóra berjarunnamálið
„Þetta er svo mikið bíó,“ segir Guðmundur Heiðar Helgason um þá ákvörðun borgarráðs að hafna deiliskipulagsbreytingu í Vogabyggð. Ákvörðunin hefur það í för með sér að íbúum á fyrstu hæð er skylt að vera með örlítinn grasblett og berjarunna á lóð sinni.

Borgin að baki heimsfaraldurs
Nóbelsverðlaunahafinn Paul Krugman er einn af fjölmörgum pistlahöfundum sem hefur gert framtíð borga að efnistökum í pistlaskrifum að undanförnu en víða má lesa dómsdagsspár um borgarsamfélög í ljósi heimsfaraldursins og tækniframfara sem gera fólki kleift að sinna störfum sínum óháð staðsetningu.

Borgarráð rígheldur í berin: „Hvort á maður að hlæja eða gráta yfir svona stjórnsýslu?“
Guðmundur Heiðar Helgason, markaðsstjóri Strætó og íbúi í Vogabyggð, neyðist til að gróðursetja berjarunna á tíu fermetra sérafnotareit við íbúð sína eftir að meirihluti borgarráðs hafnaði því í gær að breyta deiliskipulagi á svæðinu.

Leikskóla á Hagatorg
Reykjavíkurborg hefur augastað á Hagatorgi í Vesturbæ sem ákjósanlegri staðsetningu fyrir nýjan færanlegan leikskóla. Þar er lagt til að koma fyrir leikskóla fyrir um 60 börn.

Leggja til bílastæðagjald af þeim sem vilja skoða gosið
Starfshópur stjórnvalda telur að gosstöðvarnar í Fagradalsfjalli geti orðið fjölfarnasti áfangastaður landsins og leggur til gjaldtöku af bílastæðum. Talsmaður landeigenda segir nauðsynlegt að fara hratt í uppbyggingu.

Fjölga mislæg gatnamót bílum?
Borgarstjórn Reykjavíkur kynnti nýlega snilldaráætlun til bjargar borgarlínunni. Hún er að lækka hámarkshraða niður í 30 km/klst, sem er sami aksturshraði og hjá stætó að jafnaði. Samkeppnisstaðan við einkabílinn hefur þar með verið leiðrétt.

Sjálfstæðismenn skamma Mörtu: „Alltaf gamla nornin sem tapar“
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og fleiri þekktir Sjálfstæðismenn hafa gert ummæli Mörtu Guðjónsdóttur, borgarfulltrúa flokksins, um Gísla Martein Baldursson að umræðuefni á samfélagsmiðlum í dag þar sem orð Mörtu í garð Gísla eru harðlega gagnrýnd. Grein eftir Mörtu sem birtist á Vísi í morgun hefur vakið mikla athygli en þar kallar hún Gísla meðal annars „pjakk“ og „prinsessu“ og sakar hann um að fara með ítrekuð ósannindi.

Marta segir Gísla Martein fyrrverandi prinsessu flokksins nú prinsessu RÚV
Marta Guðjónsdóttir borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins birtir pistil á Vísi þar sem hún skammast með miklum tilþrifum í sjónvarpsmanninum Gísla Marteini Baldurssyni.

Nýr grunnskóli og 690 íbúðir í Nýja-Skerjafirði
Mikil uppbygging er fram undan í hverfi sem gengur undir nafninu Nýi Skerjafjörður. Borgarráð samþykkti í dag deiliskipulag fyrir svæðið, sem rís í framhaldi af byggðinni í Skerjafirði þar sem hún afmarkast í austri af Reykjavíkurflugvelli.

Spyrnudólgar gera Vesturbæingum gramt í geði
Teitur Atlason hefur ritað Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu opinbert kvörtunarbréf vegna ökufanta sem safnast saman úti á Granda og eru að gera Vesturbæinga gráhærða með látum og háskaakstri.