
KSÍ

Gagnrýnir KSÍ vegna frásagnar af hópnauðgun landsliðsmanna
Forkona jafnréttisnefndar Kennarasambands Íslands og framhaldsskólakennari segist hafa heyrt fjölda frásagna af landsliðsmönnum í knattspyrnu sem séu sagðir beita konur ofbeldi. Bæði kynferðislegu og heimilisofbeldi. Knattspyrnusamband Íslands bregðist ekki við.

Um KSÍ og kvenfyrirlitningu
Óhætt er að fullyrða að knattspyrna sé vinsælasta íþrótt heims. Fólk sem hefur í raun engan áhuga á íþróttum á sér uppáhaldslið og fylgist spennt með mótum. Á sama tíma hefur spilling og ákveðið siðleysi fylgt íþróttinni, a.m.k undanfarna áratugi. Vafalaust tengist það þeirri staðreynd að vinsældunum fylgja miklir fjármunir.

Forysta KSÍ ræddi um Gylfa í morgun
Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóri Knattspyrnusambands Íslands, segir að sambandið hafi ekki fengið upplýsingar um hvort knattspyrnumaðurinn sem lögregla í Manchester handtók á föstudag hafi verið Gylfi Þór Sigurðsson, landsliðsmaður og leikmaður Everton í ensku úrvalsdeildinni.

Íslensk fótboltalið á vergangi ef þeim gengur vel
„Það er ljóst að ástandið er alvarlegt,“ segir Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóri KSÍ, um þá staðreynd að ef að íslenskum fótboltaliðum vegnar vel í alþjóðlegri keppni hafa þau engan stað til að spila á í vetur.

Vonast til að kvenkyns leikmenn verði jákvæðari út í kvendómara
Knattspyrnusamband Íslands er í herferð að fjölga konum í hreyfingunni og þá sérstaklega konum sem eru í öðrum hlutverkum í knattspyrnuhreyfingunni en að vera leikmenn.

Fjölskyldum íslenskra dómara verið hótað
Stjórn Knattspyrnusambands Íslands hefur sent frá sér ákall um bætta framkomu í garð dómara á knattspyrnuvöllum landsins.

Höfuðverkurinn varðandi íslenska markið: Fyrri hluti
Hannes Þór Halldórsson hefur verið mark íslenska karlalandsliðsins undanfarin ár. Hann fór með liðinu á Evrópumótið í Frakklandi, heimsmeistaramótið í Rússlandi og er mögulega besti landsliðsmarkvörður sem Ísland hefur átt.

„Þessi mál hefur borið á góma áður“
Guðni Bergsson, formaður KSÍ, kveðst bjartsýnn á að Eiður Smári Guðjohnsen komi af fullum krafti aftur inn sem aðstoðarlandsliðsþjálfari í haust. Þeir hafa þó áður þurft að ræða saman vegna áfengisneyslu Eiðs.

Eiður Smári í tímabundið leyfi: Mun svo sannarlega taka á mínum málum
Knattspyrnusamband Íslands hefur sent frá sér yfirlýsingu varðandi Eið Smára Guðjohnsen þar sem segir að hann sé kominn í tímabundið leyfi frá starfi sínu sem aðstoðarþjálfari A-landsliðs karla í fótbolta.

Ég er Eiður Smári
Við Íslendingar erum sérstakir um marga hluti en á sama tíma erum við líka eins og flestir aðrir. Afsakið mótsögnina. Súrsætt samband okkar við áfengi er mjög gott dæmi.

Konan sem tók myndskeiðið hafði ekki hugmynd um að þar færi Eiður Smári Guðjohnsen
Staða Eiðs Smára Guðjohnsen hjá KSÍ, sem aðstoðarþjálfari íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu, er í óvissu eftir að myndband birtist af fótboltakappanum þar sem hann undir áhrifum kastaði þvagi á gamla Hallærisplaninu fyrir allra augum.

Engin niðurstaða komin í mál Eiðs Smára
Guðni Bergsson, formaður KSÍ, segir að mál Eiðs Smára Guðjohnsen aðstoðarlandsliðsþjálfara karla sé til skoðunar hjá sambandinu. Hann telur ekki rétt að tjá sig frekar um málið á þessu stigi.

Siðmenntað fólk pissar ekki úti
Fyrir ekki svo löngu þótti okkur eðlilegt að sjá drukkið fólk pissa úti. Sem betur fer er sú tíð liðin. Þessir gerendur eru nú dregnir til ábyrgðar. Við búum svo vel að siðgæðisverðir sinna því þakklausa hlutverki að vega og meta hegðun fólks.

KSÍ sendir frá sér yfirlýsingu varðandi Eið Smára
Knattspyrnusamband Íslands hefur nú sent frá sér yfirlýsingu vegna máls Eiðs Smára Guðjohnsen þar sem myndband af honum í annarlegu ástandi í miðbæ Reykjavíkur.

Eiður Smári gæti misst starfið sem aðstoðarþjálfari íslenska landsliðsins
Starf Eiðs Smára Guðjohnsen sem aðstoðarþjálfari karlalandsliðs Íslands er sagt hanga á bláþræði eftir að myndband af honum í annarlegu ástandi í miðbæ Reykjavíkur fór í dreifingu, en Vísir hefur myndbandið undir höndunum.

Þjálfari Færeyja gagnrýnir KSÍ
Håcan Ericson, þjálfari færeyska landsliðsins, sendi Knattspyrnusambandi Íslands, væna pillu á blaðamannafundi í dag en liðin mætast í vináttulandsleik ytra annað kvöld.

Hópurinn sem mætir Færeyjum
Arnar Þór Viðarsson, A-landsliðsþjálfari karla, hefur tilkynnt hvaða 24 leikmenn fara til Færeyja og mæta þar heimamönnum á föstudaginn.

Amanda valin í æfingarhóp norska U-19 ára landsliðsins
Amanda Jacobsen Andradóttir hefur verið valin í æfingahóp norska U-19 ára landsliðsins í knattspyrnu.

KSÍ hvetur fleiri konur til að ganga til liðs við hreyfinguna
Knattspyrnusamband Íslands birti frétt á vef sínum sem og myndbönd þar sem það hvetur konur til að koma að því starfi sem er unnið í kringum fótboltann hér á landi.

Ragnar dregur sig líka úr landsliðshópnum
Landsliðsmiðvörðurinn Ragnar Sigurðsson hefur dregið sig út úr landsliðshópi Íslands fyrir komandi leiki gegn Mexíkó, Færeyjum og Póllandi.

Draga fimm leikja bann til baka
Áfrýjunardómstóll KSÍ hefur fellt úr gildi úrskurð aga- og úrskurðarnefndar í máli þar sem leikmanni var gert að sæta leikbanni í fimm leiki í keppnum á vegum KSÍ og banni frá Dalvíkurvelli á meðan bannið varir.

Dæmdir í fimm leikja bann fyrir að segja „pólska drasl“ og „fokking hommi“
Aga- og úrskurðarnefnd Knattspyrnusambands Íslands hefur dæmt tvo leikmenn í fimm leikja bann vegna ummæla sem þeir létu falla um leikmenn í liði andstæðinganna.

„Hvorki KSÍ né ég hafði áhuga á að ég færi í viðræður“
„Ég þakkaði pent fyrir áhugann en þetta fór ekki lengra en það,“ segir Arnar Þór Viðarsson, landsliðsþjálfari karla í fótbolta, um áhuga danska úrvalsdeildarfélagsins OB á að ráða hann til starfa.

Hemmi Hreiðars ráðinn aðstoðarþjálfari U-21 árs landsliðsins
Hermann Hreiðarsson hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari U-21 árs landsliðs karla. Hann mun því vera hægri hönd Davíðs Snorra Jónassonar sem tók við U-21 árs liðinu í ársbyrjun.

Arnar landsliðsþjálfari var í sigti OB
Arnar Þór Viðarsson, landsliðsþjálfari karla í fótbolta, var einn af þremur þjálfurum sem danska úrvalsdeildarfélagið OB var með inni í myndinni við val á nýjum þjálfara liðsins.

Blaðamannafundi KSÍ frestað
Blaðamannafundi KSÍ sem átti að vera klukkan 13:15 í dag hefur verið frestað vegna breytinga á landsliðshópnum sem á að mæta Mexíkó, Færeyjum og Póllandi um næstu mánaðarmót.

Kvennalandsliðið fellur um eitt sæti á nýjum heimslista FIFA
Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu fellur um eitt sæti á nýjasta heimslista FIFA. Liðið situr nú í 17. sæti listans.

KSÍ alfarið á móti ofurdeildinni og myndi styðja refsingu
Knattspyrnusamband Íslands hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna áforma tólf af þekkustu knattspyrnufélögum Evrópu sem hyggjast koma Ofurdeildinni svokölluðu á fót.

Hefja leik viku síðar
Knattspyrnusamband Íslands hefur staðfest hvenær mót sumarsins hefjast en hefja má æfingar að nýju á morgun eftir hlé vegna samkomutakmarkanna.

Fyrstu fótboltaleikirnir ekki um helgina en fljótlega
Birkir Sveinsson mótastjóri KSÍ vinnur nú að tillögum fyrir stjórn sambandsins um það hvenær Íslandsmótið í fótbolta muni hefjast nú þegar ljóst er að íþróttabanni verður aflétt á fimmtudaginn.