
KSÍ

Jóhannes Karl nýr aðstoðarþjálfari A-landsliðs karla | ÍA í þjálfaraleit
Jóhannes Karl Guðjónsson hefur verið ráðinn sem aðstoðarþjálfari íslenska karlalandsliðsins í fótbolta. Hann hefur störf nú þegar og hefur sagt starfi sínu hjá ÍA lausu.

Félögin hvött til að senda fleiri konur
Stjórn Knattspyrnusamband Íslands hefur sent knattspyrnufélögum landsins hvatningu um að huga að kynjaskiptingu á komandi ársþingi KSÍ.

Árgangur sendur í húsnæði KSÍ: Enn meiri mygla í Laugalækjarskóla
Mygla hefur greinst í fimm stofum Laugalækjarskóla til viðbótar við þrjár stofur sem þegar voru til viðgerðar. Nemendur í níunda bekk eru á leið í skrifstofuhúsnæði í stúkunni í Laugardalshöll þar sem þeim verður kennt á næstu fimm til sex vikum.

Sáttastur við að hafa fengið jákvæð svör frá leikmönnum
„Leikurinn spilaðist eins og við bjuggumst við, mjög lokaður og ekki mikið af færum,“ sagði Arnar Þór Viðarsson, landsliðsþjálfari Íslands, eftir 1-1 jafntefli við Úganda fyrr í dag.

Stefnir á að finna sér nýtt lið í janúar
Jón Daði Böðvarsson hefur ekki átt sjö dagana sæla undanfarið. Hann fær ekkert að spila með liði sínu Millwall og missti í kjölfarið sæti sitt í íslenska landsliðinu. Jón Daði var valinn fyrir komandi verkefni landsliðsins í Tyrklandi og fór yfir stöðu mála á samfélagsmiðlum sambandsins í dag.

Grétar Rafn ráðinn til KSÍ
Knattspyrnusamband Íslands hefur ráðið Grétar Rafn Steinsson sem tæknilegan ráðgjafa knattspyrnusviðs. Ráðningin er til sex mánaða.

Þrír efstu á óskalista Arnars Þórs eru Íslendingar
Þrír efstu á óskalista Arnars Þórs Viðarssonar yfir næsta aðstoðarþjálfara íslenska karlalandsliðsins í fótbolta eru Íslendingar. Þeir eru allir í starfi sem stendur.

Ísland á sterkt mót í Bandaríkjunum í febrúar
Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu verður meðal þátttökuliða á SheBelieves Cup (í. HúnTrúir mótinu) sem fram fer í Bandaríkjunum í febrúar á þessu ári.

Ekki búið að ráða nýjan aðstoðarþjálfara en Davíð Snorri og Ólafur Ingi hjálpa til í Tyrklandi
Nýr aðstoðarþjálfari íslenska karlalandsliðsins í fótbolta verður ráðinn seinna í þessum mánuði, eftir vináttulandsleikina í næstu viku.

Jón Daði og átta úr Víkingi og Breiðabliki í landsliðshópnum sem fer til Tyrklands
Arnar Þór Viðarsson, landsliðsþjálfari karla í fótbolta, hefur valið 23 leikmenn í fyrstu tvo landsleiki ársins sem fram fara í Tyrklandi í næstu viku.

Eiður Smári segist ekki hafa orðið KSÍ að falli
Eiður Smári Guðjohnson, einn besti knattspyrnumaður Íslands frá upphafi og fyrrum aðstoðarlandsliðsþjálfari, lét í sér heyra á twitter. Tilefni færslunnar er fyrirsögn sem birtist í gærmorgun.

Íslandsmótið í fótbolta hefst um páskana
Knattspyrnusamband Íslands hefur birt drög að leikjadagskrá komandi keppnistímabils á Íslandi. Íslandsmótið hefur aldrei byrjað fyrr.

Ísland mætir Spáni í mars
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta mætir einu besta landsliði heims þegar liðið sækir Spánverja heim í lok mars.

Mæta tveimur þjóðum sem þeir hafa aldrei mætt áður í janúar
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta mætir tveimur þjóðum sem það hefur aldrei mætt áður í næsta mánuði.

Landsliðsþjálfarinn segir það allt í lagi að ekki sé allt í lagi
Arnar Þór Viðarsson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í fótbolta, minnti landsmenn á að huga að andlegri heilsu og það sé óþarfi að reyna alltaf að harka alltaf sér.

Ummæli ársins 2021: Ferlarnir hjá KSÍ, froðuflóð um koppagrundir og hefð um óinnsigluð kjörbréf
Nú eins og undanfarin ár rifjar Vísir upp eftirminnilegustu ummæli ársins sem er að líða. Og eins og gengur og gerist þá endurspegla ummælin mörg helstu fréttamála ársins.

Um 150 milljóna króna jólagjöf til yngri flokka Íslands frá UEFA og KSÍ
Knattspyrnusamband Íslands tilkynnti í dag um úthlutun fjár frá UEFA, knattspyrnusambandi Evrópu, og KSÍ til íslenskra félaga vegna þróunarstarfs barna og unglinga í fótbolta.

Þynnkan eftir EM og HM náði hámarki
Það var alltaf von á vænni þynnku eftir EM ævintýrið í Frakklandi 2016, þar sem Ísland lagði England og komst í átta liða úrslit, og eftir HM í Rússlandi þar sem Hannes Þór Halldórsson varði frá Lionel Messi og Maradona fékk næstum hjartaáfall.

Mest lesnu viðhorfspistlarnir 2021: Kynferðisofbeldi, faraldurinn, fiskeldi og Gísli Marteinn
Mest lesnu viðhorfspistlar ársins varpa skýru ljósi á hvað var efst á baugi á árinu.

Facebook-skrifum Sigurðar G. um Þórhildi Gyðu vísað frá úrskurðarnefnd
Úrskurðarnefnd lögmanna hefur vísað kvörtun Þórhildar Gyðu Arnarsdóttur vegna skrifa hæstaréttarlögmannsins Sigurðar G. Guðnasonar á Facebook frá nefndinni.

Kolbrún gapandi hissa á Jóni Rúnari
Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir, sérfræðingur í jafnréttismálum, segist vera gapandi hissa á orðum Jóns Rúnars Halldórssonar, stjórnarmanns í Íslenskum toppfótbolta, í hennar garð.

Sakar Kolbrúnu um siðblindu og vill að stjórn KSÍ sparki henni
Jón Rúnar Halldórsson, stjórnarmaður í Íslenskum toppfótbolta, segir Kolbrúnu Hrund Sigurgeirsdóttur, sérfræðing í jafnréttismálum, ekki hæfa til að sinna þeim verkefnum sem hún hafi tekið að sér fyrir Knattspyrnusamband Íslands. Stuðningsyfirlýsing til nýkjörins formanns í aðdraganda ársþings var dropinn sem fyllti mæli Jóns Rúnars.

Atli Viðar segir Vöndu ekki réttu manneskjuna til að leiða KSÍ inn í framtíðina
Atli Viðar Björnsson, markahæsti FH-ingur sögunnar og þriðji markahæsti leikmaður efstu deildar karla frá upphafi, var gestur hjá Ríkharð Guðnasyni og Kristjáni Óla Sigurðssyni í nýjasta þættinum af Þungavigtinni.

Hannes skammaði ríkisstjórnina fyrir að íþróttamálaráðherra sé ekki titlaður
Hannes S. Jónsson, formaður KKÍ, hefur ofurtrú á því að íþróttamálaráðherrann Ásmundur Einar Daðason komi því í gegn að byggja nýjan þjóðarleikvang Íslands en ekki er ekki ánægður með það virðingarleysi sem ríkisstjórnin sýnir íþróttunum með því að hafa íþróttirnar ekki í titla ráðherra.

Leggja til brottrekstur tilkynni leikmenn ekki ofbeldismál
Starfshópur KSÍ, sem vann að endurskoðun á vinnulagi, viðhorfi og menningu innan knattspyrnuhreyfingarinnar, hefur skilað af sér skýrslu og tillögur um endurbætur á þeim málum. Meðal tillaga er að leikmönnum sambandsins verði gert að skrifa undir skilmála að þeim beri að tilkynna ofbeldismál sem þeir tengjast, viðurlög varði brottrekstri.

Fyrsta mál Ásmundar í nýrri ríkisstjórn varði málefni þjóðarleikvanga
Ásmundur Einar Daðason, ráðherra íþróttamála, telur mikilvægt að ráðist verið í úrbætur á stöðu þjóðarleikvanga Íslands. Um sé að ræða eitt af þeim málum sem séu efst á forgangslista hans í nýrri ríkisstjórn.

Sjáðu umræðuna um þjóðarleikvanga í Pallborðinu
Ráðherra og formenn KSÍ og KKÍ voru gestir Henrys Birgis Gunnarssonar í Pallborðinu þar sem rætt var um þjóðarleikvanga. Þátturinn var í beinni útsendingu hér á Vísi.

Bentu lögreglu á mögulegt vitni í Kaupmannahafnarmálinu
Nefndin sem skoðaði viðbrögð KSÍ við ábendingum um kynferðislegt ofbeldi tilkynnti lögreglu um mögulegt vitni í umtöluðu hópnauðgunarmáli frá árinu 2010. Þetta kemur fram í skýrslu nefndarinnar sem kynnt var í fyrradag.

Segir líðan sína ekki hafa verið þannig að hún myndi hitta neinn á kaffihúsi
Fyrrverandi eiginkona Ragnars Sigurðssonar segir fullyrðingu Magnúsar Gylfasonar ranga um að hann hafi hitt þau Ragnar á kaffihúsi daginn eftir að lögregla var kölluð að dvalarstað þeirra sumarið 2016, vegna gruns um heimilisofbeldi.

Vanda treysti sér ekki til að ræða brotthvarf Eiðs: „Ég var sorgmædd í hjartanu mínu“
„Ég gat eiginlega ekkert sofið þessa nótt og leið bara ömurlega. Ég treysti mér bara ekki í þetta,“ segir Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður KSÍ, um ástæður þess að hún svaraði ekki spurningum fjölmiðla um brotthvarf Eiðs Smára Guðjohnsen.