HM 2018 í Rússlandi

Belgarnir hlupu yfir nýliða Panama í seinni hálfleik
Landslið Panama var langt frá því að ná eins góðum úrslitum úr sínum fyrsta leik á HM eins og íslensku strákarnir um helgina. Belgar voru alltof sterkir fyrir Panamamenn og unnu 3-0 sigur á Panama í fyrsta leik G-riðils á HM í fótbolta í Rússlandi.

Strákarnir okkar settu áhorfsmet í Bandaríkjunum
Áhuginn á íslenska liðinu og Messi fékk gríðarlegan fjölda til að horfa vestanhafs.

Sumarmessan: Hjörvar greinir frábæra frammistöðu Hannesar
Hannes Þór Halldórsson varði vítaspyrnu frá Lionel Messi í leik Íslands og Argentínu á HM á laugardag. Það var þó ekki það eina sem hann gerði í leiknum því Hannes varði oft meistaralega og átti stórbrotinn leik.

Meirihluti þjóðarinnar telur landsliðið líklegt til að komast upp úr riðlinum
Meirihluti þjóðarinnar telur íslenska landsliðið líklegt til að komast upp úr D-riðli á HM í Rússlandi ef marka má nýja könnun MMR.

Kalinic rekinn heim til Króatíu
Nikola Kalinic hefur verið vikið úr HM hóp Króata eftir meiðslavandræði og ósætti við landsliðsþjálfarann Zlatko Dalic. Þetta staðfestu Króatar á fréttamannafundi í dag.

Kane ætlar sér gullskóinn á HM
Harry Kane ætlar sér að verða markakóngur HM í Rússlandi þrátt fyrir að hafa enn ekki skorað mark í lokakeppni stórmóts á ferlinum.

Dietmar Hamann: Ísland er komið á heimskortið
Fyrrverandi leikmaður Liverpool heillaðist af frammistöðu strákanna okkar á móti Argentínu.

Svíar unnu Suður-Kóreumenn á VAR-víti
Svíar hefja leik á HM í fótbolta í Rússlandi þegar þeir mæta Suður Kóreumönnum í Nizhny Novgorod en þetta er annar leikurinn í F-riðli þar sem Mexíkó vann Þýskaland í gær. Mikið gekk á í aðdaganda leiksins.

Reynsluminnsta lið Englands í langan tíma
Enska landsliðið hefur leik á HM í Rússlandi í dag þegar þeir mæta Túnis.

Spáð 35 stiga hita þegar strákarnir mæta Nígeríu
Hiti og moskítófaraldur í Volgograd.

Strákarnir fá 600 dósir af skyri í dag
Þó svo það sé viðskiptabann þá fá strákarnir okkar í Rússlandi aðeins af íslenskum mat.

Patrice Evra: Ísland átti skilið að vinna Argentínu
Franski bakvörðurinn var mjög hrifinn af íslenska liðinu í leiknum á móti Messi og félögum.

Moskítóflugufaraldur bíður íslensku strákanna í næsta leik
Íslensku fótboltastrákarnir þurfa að hafa áhyggjur af fleiru en hitanum í Volgograd á föstudaginn. Það lítur úr fyrir að það sé moskítóflugufaraldur í borginni.

Helgi: Ég er viss um að við getum gert betur
Helgi Kolviðsson, aðstoðarþjálfari Íslands, segir frammistöðuna á móti Argentínu ekkert endilega þá bestu.

Rúrik tryllir stelpurnar í Suður-Ameríku
Þú ert kynþokkafullur sem ég elska þig Rurik giftist mér, segir ein með hjálp Google Translate.

Sumarmessan: Hjörvar tók Heimi á teppið fyrir seinar skiptingar
Hannes Þór Halldórsson varði vítaspyrnu frá Lionel Messi í seinni hálfleik í leik Íslands og Argentínu á laugardag. Vítaspyrnan var dæmd á meðan Íslendingar voru einum færri og er sérfræðingurinn Hjörvar Hafliðason ósáttur með skiptingar íslenska liðsins.

Ætti Messi að vera vítaskytta Argentínu?
Lionel Messi er óumdeilanlega besti leikmaður argentínska landsliðsins en hann ætti kannski að láta öðrum eftir að sjá um vítaspyrnur liðsins.

HM Ladan biluð: „Það þýðir ekkert að keyra í Moskvu“
HM Ladan landsfræga hefur bilað í Rússlandi. Strákarnir ræða það í Bítinu.

HM í dag: Sænskur njósnari, áhrifavaldurinn Rúrik og þynnka Englendinga á enda
Níundi þáttur er farinn í loftið.

Stoltasti pabbi í heimi brast í grát þegar Hannes varði vítið frá Messi
Ég fór alveg, segir Halldór Þórarinsson sem staðið hefur með syni sínum Hannesi Þór í gegnum súrt og sætt.

Fögnuður og stóísk ró
Erlendur ferðamaður sem horfði á leik Íslands og Argentínu af risaskjá í miðborginni hafði á orði hversu heillandi væri að hafa orðið vitni að því fyrir leik hversu sannfærðir Íslendingar hefðu verið um velgengni sinna manna.

Skjávarpavesen ástæðan fyrir fýlu Heimis
Þráðurinn er stuttur þegar mikið er undir, segir landsliðsþjálfarinn.

Freyr um varnarleikinn: Besta sem ég hef séð í fótbolta yfir höfuð
Yfirnjósnari íslenska landsliðsins í fótbolta segir ólýsanlega tilfinningu að sjá leikáætlunina ganga svona upp.

Tveir Íslendingar á meðal 20 elstu á HM
Tveir af strákunum okkar eru á meðal 20 elstu leikmanna HM í Rússlandi.

Svefnsjúkur sparkspekingur skeytir skapi sínu á Íslendingum
Segir Íslendinga vera afkomendur þeirra aumingja sem urðu undir í lífsbaráttunni á tímum víkinga og þurftu að flýja til afskekktra eyja þar sem meira að segja sauðfé fékk ekki þrifist.

Þjálfarateymi Íslands með þrjá aðstoðarmenn í stúkunni
Strákarnir á bekknum hjá íslenska landsliðinu voru í góðu sambandi við menn í stúkunni meðan á leiknum gegn Argentínu stóð.

Sá þriðji til að spila í fimm lokakeppnum HM
Gamla brýnið Rafael Marquez skráði nafn sitt á spjöld HM-sögunnar þegar hann hjálpaði Mexíkó að innbyrða sigur á heimsmeisturunum.

Sumarmessan: Kokkurinn þakkaði Messi fyrir leikinn
Íslenska landsliðið er með kokk á vegum KSÍ sem sér um að elda ofan í strákana á HM í Rússlandi. Kokkurinn, Hinrik Ingi Guðbjargarson, beið hins vegar ekkert í eldhúsinu á meðan Ísland spilaði við Argentínu heldur var mættur inn á völlinn og tók í hendina á Messi eftir leik.

Segja RÚV hafa farið fram með offorsi
Forsvarsmenn sjónvarpsstöðvanna Hringbrautar og N4 sakar auglýsingadeild Ríkisútvarpsins hafa farið fram með miklu offorsi í aðdraganda heimsmeistaramótsins í knattspyrnu

Eru Þjóðverjar nýjasta fórnarlamb bölvunarinnar?
Það er margtöluð tugga að það sé erfiðara að verja titla en vinna þá. Allir vilja ná úrslitum gegn ríkjandi meisturum og þar fram af götunum. Þjóðverjar fengu að kenna á "bölvun“ ríkjandi heimsmeistara í gær.