Framsóknarflokkurinn
41 42 43 44 45 46 47 48 … 48 ›
Úr pólitík í bankann Fyrrum erfðaprins Framsóknarflokksins gekk af leikvelli stjórnmálanna í dag þegar forseti Íslands samþykkti afsögn hans sem félagsmálaráðherra á Ríkissráðsfundi í morgun. Eftir fundinn bað Árni flokksfélaga sína afsökunar á brotthvarfinu en sagði ástæður sínar persónulegar. Innlent 7.3.2006 17:34
Árni lætur af embætti í dag Árni Magnússon lætur af embætti félagsmálaráðherra á ríkisráðsfundi sem hefst klukkan ellefu. Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra færir sig þá um set yfir í félagsmálaráðuneytið og Siv Friðleifsdóttir tekur við heilbrigðisráðuneytinu. Innlent 7.3.2006 09:37
Tekur sæti á þingi í lok apríl Guðjón Ólafur Jónsson sem tekur sæti Árna Magnússonar á þingi segist hafa orðið fyrir áfalli þegar honum varð ljóst að Árni Magnússon félagsmálaráðherra ætlaði að hætta á þingi og að hann sjálfur væri á leið á þing. Hann segir mikinn missi að Árna. Innlent 6.3.2006 17:50
Brotthvarf Árna veikir Framsókn Brotthvarf Árna Magnússonar af þingi og úr ráðherrastóli veikir Framsóknarflokkinn og Halldór Ásgrímsson, formann flokksins, segir Baldur Þórhallsson, dósent í stjórnmálafræði. Innlent 6.3.2006 17:53
Framsókn stefnir á tvo borgarfulltrúa Markmiðið er að ná tveimur borgarfulltrúum í kosningunum í vor sögðu frambjóðendur Framsóknarflokksins þegar fjórir efstu á lista flokksins voru kynntir. Óskar Bergsson skipar annað sætið á eftir Birni Inga Hrafnssyni. Innlent 3.3.2006 16:06
Bjóða fram A-lista í Reykjanesbæ Samfylkingin, Framsóknarflokkurinn og óflokksbundnir í Reykjanesbæ ætla að bjóða sameiginlega fram til næstu bæjarstjórnarkosninga undir bókstafnum A. Innlent 1.3.2006 09:35
Skattur á þá efnaminni Notendagjöld í heilbrigðiskerfinu eru aukaskattur á tekjulágt og fátækt fólk, segir Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Framsóknarflokksins. Hann segir að ávinningurinn af innheimtu notendagjalda sé lítill eða enginn og þau valdi því helst að efnaminna fólk hafi ekki efni á heilbrigðisþjónustu. Innlent 1.3.2006 07:28
Prófkjör á Akureyri og í Árborg í dag Sjálfstæðismenn í Árborg og Framsóknarmenn á Akureyri velja í dag frambjóðendur sína fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Ljóst er að breytingar verða á oddvitasveit beggja flokka. Innlent 18.2.2006 12:37
Mikil endurnýjun í borgarstjórn Útlit er fyrir mikla endurnýjun í borgarstjórn eftir kosningarnar í vor. Miðað við uppröðun á lista og niðurstöður skoðanakannana að undanförnu má búast við að átta af fimmtán borgarfulltrúum komi nýir inn. Innlent 13.2.2006 11:57
Löngu tímabær yfirlýsing Það var tími til kominn segir formaður Samfylkingar um yfirlýsingu forsætisráðherra um að Ísland verði komið í Evrópusambandið árið 2015. Utanríkisráðherra vill ekkert tjá sig um yfirlýsingu forsætisráðherra. Innlent 8.2.2006 16:58
Geir neitar að tjá sig Geir H. Haarde utanríkisráðherra neitar að tjá sig um þá yfirlýsingu Halldórs Ásgrímssonar forsætisráðherra að hann telji að Ísland verði orðið aðili að Evrópusambandinu árið 2015. Innlent 8.2.2006 15:32
Náði ekki tilætluðum árangri og hættir því "Ég náði ekki tilætluðum árangri og þess vegna tók ég ákvörðun um að vera ekki með á listanum," segir Anna Kristinsdóttir, borgarfulltrúi R-listans, um ástæðu þess að hún tekur ekki sæti á framboðslista Framsóknarflokksins í næstu borgarstjórnarkosningum. Hún bauð sig fram í 1. sæti í prófkjöri flokksins en endaði í 2. sæti. Innlent 6.2.2006 17:21
Öll atkvæði utan kjörfundar innsigluð Stuðningsmenn Óskars Bergssonar, sem lenti í þriðja sæti í prófkjöri Framsóknarflokksins í Reykjavík um helgina, létu innsigla öll utankjörfundaratkvæði að talningu lokinni. Innlent 30.1.2006 12:01
Sökuð um að ganga erinda Bandaríkjamanna Íslensk stjórnvöld voru sökuð um að ganga erinda bandaríska landvarnaráðuneytisins í stað þess að gæta hagsmuna þjóðarinnar í skeleggum umræðum um fangaflug á Alþingi í dag. Innlent 26.1.2006 20:36
Jakob hættir í bæjarmálunum Jakob Björnsson, forseti bæjarstjórnar og oddviti framsóknarmanna á Akureyri, hættir í afskiptum af stjórnmálum að loknu þessu kjörtímabili í vor. Innlent 26.1.2006 15:54
Sjálfstæðisflokkurinn með mesta fylgið Tæp 44% Reykvíkinga segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn yrði boðað til Alþingiskosninga núna, samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins, en kjörfylgi flokksins í Reykjavík var 37% í síðustu kosningum. Innlent 26.1.2006 07:30
Best að sitja sem fastast Kristinn H. Gunnarsson segist ekki á þeim buxunum að segja af sér þingmennsku þrátt fyrir harða gagnrýni Gunnars Braga Sveinssonar, sveitarstjórnarmanns og miðstjórnarmanns í Framsóknarflokknum, sem segir réttast að Kristinn láti af þingmennsku. Innlent 25.1.2006 17:03
Frambjóðendur njóta góðs af valdamiklum stuðningsmönnum Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Framsóknarflokksins, segir að valdahópur á landsvísu í flokknum, hafi óeðlileg áhrif á afstöðu framsóknarmanna til prófkjörs flokksins í Reykjavík. Innlent 23.1.2006 11:35
Pólitískur styrkur mismikill meðal stuðningsmanna Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Framsóknarflokksins, segir að valdahópur innan flokksins sé búinn að setja stuðningsmenn Önnu Kristinsdóttur og Óskars Bergssonar í prófkjöri flokksins í Reykjavík í þá aðstöðu, að ganga gegn vilja valdamikilla manna í flokknum á landsvísu. Innlent 23.1.2006 08:00
Kanna hvort ungmennum hafi verið veitt áfengi Lögregla rannsakar nú hvort stuðningsmenn Björns Inga Hrafnssonar, frambjóðanda í prófkjöri framsóknarmanna í Reykjavík, hafi veitt unglingum undir lögaldri áfengi. Innlent 22.1.2006 18:03
Sjálfstæðismenn fengju níu borgarfulltrúa Sjálfstæðismenn fengju níu borgarfulltrúa af fimmtán í Reykjavík ef gengið væri til kosninga nú samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins. Hvorki Framsóknarflokkurinn né Frjálslyndi flokkurinn næði inn borgarfulltrúa. Innlent 22.1.2006 12:03
Of lágt boðið í hlut borgarinnar. Borgarfulltrúar allra flokka í borgarstjórn Reykjavíkur eru ósáttir við það verð sem ríkisvaldið er reiðubúið að greiða fyrir hlut borgarinnar í Landsvirkjun. Stjórnvöld eru reiðubúin að greiða 56 milljarða króna en það eru fulltrúar R-lista, Sjálfstæðisflokks og Frjálslynda flokksins sammála um að sé of lágt. Innlent 12.1.2006 14:45
Framsóknarmenn heimsækja starfsfólk Starfsmenn fjölda fyrirtækja, stofnana og samtaka á höfuðborgarsvæðinu mega eiga von á heimsókn þingmanna Framsóknarflokksins í vikunni. Tilgangur heimsóknanna er að kynna sér starfsemi fyrirtækjanna og heyra skoðanir stjórnenda og starfsfólks á stjórnmálalífinu. Innlent 10.1.2006 14:44
Trúnaðarbrestur milli stjórnvalda og bótaþega Ingibjörg Sólrún Gísladóttir formaður Samfylkingarinnar segir að trúnaðarbrestur hafi orðið milli stjórnvalda, aldraðra og öryrkja. Umræður um öryrkjaskýrslu Stefáns Ólafssonar endurspeglaði það. Hún vildi vita á Alþingi í dag hvort forsætisráðherra vildi beita sér fyrir fimm ára áætlun í samvinnu við fulltrúa lífeyrisþega í málefnum þessara hópa. Innlent 9.12.2005 12:48
Yfir 400 í mjög brýnni þörf 402 eldri borgarar eru í mjög brýnni þörf eftir dvöl á hjúkrunarheimili og 53 í brýnni þörf. Þetta kemur fram í svari Jóns Kristjánssonar heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Björgvins G. Sigurðssonar, þingmanns Samfylkingar. Innlent 8.12.2005 07:13
Litlu munaði á efstu mönnum Ómar Stefánsson bæjarfulltrúi hrósaði sigri í prófkjöri Framsóknarmanna í Kópavogi sem fram fór í gær. Sigur hans var þó naumur því aðeins munaði sjötíu atkvæðum á honum og Samúel Erni Erlingssyni sem lenti í öðru sæti. Innlent 13.11.2005 12:11
Ómar leiðir listann Ómar Stefánsson leiðir lista Framsóknarflokksins í Kópavogi fyrir bæjarstjórnarkosningarnar næsta vor. Hann bar sigur úr býtum í prófkjöri Framsóknarflokksins í gær og hlaut 666 atkvæði í fyrsta sæti listans. 2.556 greiddu atkvæði. Ómar er eini sitjandi bæjarfulltrúi flokksins sem gaf kost á sér í prófkjörinu. Innlent 13.11.2005 08:51
Skilgreina pólitísku miðjuna Framsóknarmenn vilja fara yfir og skilgreina hvað felst í hugtakinu pólitísk miðja, ekki síst í ljósi þess að bæði Samfylking og Sjálfstæðisflokkur sækja nú inn á miðjuna. Ályktun þessa efnis var samþykkt undir lok miðstjórnarfundar Framsóknarflokksins sem lauk um klukkan fjögur. Innlent 12.11.2005 16:41
250 höfðu kosið á hádegi 250 höfðu tekið þátt í prófkjöri Framsóknarflokksins í Kópavogi á hádegi. Fjórtán eru í framboði, þar af fimm sem stefna á fyrsta sæti á lista flokksins fyrir næstu bæjarstjórnarkosningar. Innlent 12.11.2005 12:21
Átta bítast um efsta sæti Prófkjör Framsóknarmanna í Kópavogi hófst klukkan tíu í morgun. Fjórtán eru í framboði og þar af átta sem gefa kost á sér í fyrsta sæti á lista flokksins fyrir bæjarstjórnarkosningar sem haldnar verða næsta vor. Innlent 12.11.2005 09:44