Framsóknarflokkurinn

Fréttamynd

„Borgarstjórnarmeirihlutanum er ekki við­bjargandi“

Tillaga borgarstjórnar Reykjavíkur um að kanna hvort megi veita sambærilega bókasafnsþjónustu með færri útibúum hefur vakið hörð viðbrögð. Fólk undrar sig á vangaveltum um niðurskurð á sama tíma og læsi barna hrakar. Ákvörðunin sé til marks um menningarlega uppgjöf og hnignun og ganga sumir svo langt að segja að borgarstjórn hatist við menningu.

Menning
Fréttamynd

Sjálf­stæðis­flokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki

Sjálfstæðisflokkurinn tapar mesta fylgi allra flokka á milli mánaða í nýrri könnun Maskínu og er næst stærsti flokkurinn á eftir Samfylkingu. Fylgi annarra flokka breytist lítið sem ekkert. Stjórnmálafræðingur segir fylgistapið óvenjulegt þó varast þurfi að lesa of mikið í skoðanakannanir á miðju kjörtímabili. Áhrif brotthvarfs Jóns Gnarr úr Viðreisn, ef einhver, eigi enn eftir að koma fram í könnunum.

Innlent
Fréttamynd

Vaxta­bætur hverfa þegar vextirnir bíta mest

Ákvörðun um að fella niður vaxtabætur frá árinu 2027 verður að skoða í samhengi við stöðu skuldsettra heimila. Í fjárlagafrumvarpinu er gert ráð fyrir að vaxtabætur verði afnumdar frá næstu áramótum.

Skoðun
Fréttamynd

„Þetta er okkar gjöf til ríkis­stjórnarinnar“

Framsóknarflokkurinn opnaði í gær nýjan vef, utreikningur.is, sem gerir almenningi kleift að skoða áætluð áhrif helstu breytinga í fjárlagafrumvarpinu 2027 á eigið heimili. Lilja D. Alfreðsdóttir formaður Framsóknar segir um nýsköpun í stjórnmálum að ræða og að útreikningarnir ættu að breyta því hvernig stjórnvöld vinna frumvarpið áfram.

Innlent
Fréttamynd

Willum í stjórn Litla spítalans

Willum Þór Þórsson, fyrrverandi heilbrigðisráðherra, stefnir samkvæmt heimildum Vísis í stjórn Litla spítalans, einkarekinnar heilbrigðisstofnunar sem til stendur að starfrækja við Háaleitisbraut. Núverandi forstjóri Sjúkratrygginga Íslands var skipaður í ráðherratíð Willums.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Ríkis­stjórnin sker niður þjónustu við börn

Árið 2021 samþykkti Alþingi farsældarlögin undir forystu Ásmundar Einars Daðasonar fv. mennta- og barnamálaráðherra með stuðningi úr öllum flokkum. Loforðið var skýrt. Barn sem þarf stuðning á að halda, ber að fá hann snemma, á réttum stað og án þess að fjölskyldan þurfi að berjast við kerfið. Ríkisstjórnin ætlar nú að svíkja það loforð.

Skoðun
Fréttamynd

Upp­nám í Upp­sveitum

Í kjölfar kjördæmaviku á alþingi, þar sem þingmenn kjördæma heimsækja sveitarstjórnir, stofnanir og fyrirtæki og í framhaldi af ný framlögðum fjárlögum fyrir árið 2027, vakna ýmsar spurningar. Mörg verkefni eru þess eðlis að að þingmenn kjördæma geta staðið saman að finna lausnir, óháð því hverjir sitja í meiri- eða minnihluta.

Skoðun
Fréttamynd

Nýr meiri­hluti í Suðurnesjabæ

Samfylkingin og Framsókn hafa náð samkomulagi um myndun nýs meirihluta í bæjarstjórn Suðurnesjabæjar. Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar sprakk á sunnudaginn síðastliðinn eftir fjögurra mánaða samstarf. 

Innlent
Fréttamynd

Hefja form­legar við­ræður um myndun nýs meiri­hluta

Samfylking og óháðir og Framsókn og óháðir í Suðurnesjabæ hafa ákveðið að hefja formlegar viðræður um meirihlutasamstarf í bæjarstjórn Suðurnesjabæjar. Leitast verður eftir því að Alexandra Jóhannesdóttir muni áfram starfa sem sveitarstjóri en hún tók við stöðunni í sumar.

Innlent
Fréttamynd

Trúnaðar­brestur milli flokka og innan flokks

Trúnaðarbresturinn sem Samfylkingin og óháðir töldu svo alvarlegan að slíta þyrfti meirihlutasamstarfi við Sjálfstæðisflokkinn í Suðurnesjabæ snýr samkvæmt heimildum fréttastofu að tilraun bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins til að mynda nýjan meirihluta með Framsóknarflokknum og Miðflokki. Tilraunin var þó ekki gerð af oddvita flokksins heldur þeim sem situr í öðru sæti.

Innlent
Fréttamynd

Vill breyta um­deildum gatna­mótum

Til skoðunar er að breyta á ný gatnamótum sem gerðar voru umdeildar breytingar á í fyrra. Oddviti Miðflokksins gekk til liðs við meirihlutann í málinu og vonast til að framkvæmdir hefjist í vor. 

Innlent
Fréttamynd

Mildum höggið

Við í Framsókn styðjum markmiðið um hallalaus fjárlög, en það má ekki vera sama hvað það kostar. Fjárlögin þurfa að byggjast á raunhæfum forsendum og meta þarf hvað leiðin að hallalausum ríkisrekstri þýðir fyrir fjölskyldur í landinu.

Skoðun
Fréttamynd

Sjálf­stæðis­flokkurinn tapar fylgi

Samfylkingin mælist enn stærsti flokkurinn og bætir við sig fylgi um rúmt prósentustig í nýjum þjóðarpúlsi Gallup. Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi um tæp tvö prósentustig og Flokkur fólksins mælist enn utan þings. 

Innlent
Fréttamynd

Fylgi haggast varla eftir at­kvæða­greiðslu

Samfylkingin er áfram stærsti flokkur landsins með ríflega tuttugu og sjö prósenta fylgi í nýrri könnun Maskínu. Fylgi Viðreisnar stendur nær óbreytt í tæpum tólf prósentum en Flokkur fólksins dalar aftur á móti lítillega og fer niður í rúm fjögur prósent. Samanlagt fylgi stjórnarflokkanna breytist lítið á milli mánaða.

Innlent
Fréttamynd

Reyndu að bjarga málunum en voru of sein

Nýr Tækniskóli verður ekki í Hafnarfirði eftir að bæjaryfirvöld flöskuðu á að kaupa lóðir sem þau höfðu lofað. Varaformaður bæjarráðs segir það vonbrigði að missa skólann úr bænum. 

Innlent
Fréttamynd

Halla hæst­á­nægð með stólaskiptin

„Ég er ótrúlega ánægð með þessa breytingu og það er að minni ósk sem ég er í þessum nefndum,“ segir þingmaðurinn Halla Hrund Logadóttir eftir að þingflokkur Framsóknarflokksins samþykkti stólaskipti í nefndarsætum. Það skipti hana engu hvort hún sé aðalmaður, varamaður eða áheyrnarfulltrúi í nefndinni; það breyti litlu þegar maður er í stjórnarandstöðu.

Innlent
Fréttamynd

Upp­stokkun í fullri sátt innan Fram­sóknar

Uppstokkun á nefndasætum Framsóknar var samþykkt samhljóða eftir samráð við alla þingmenn flokksins. Stefán Vagn Stefánsson þingflokksformaður segir Höllu Hrund Logadóttur áfram njóta fulls trausts þótt hún missi sitt eina aðalmannssæti í fastanefnd.

Innlent
Fréttamynd

Féllu af þingi en fóru ekki langt

Á uppfærðum lista yfir starfsmenn þingflokka á Alþingi má sjá tvo nýja starfsmenn þingflokks Framsóknarflokksins. Það eru þau Jóhann Friðrik Friðriksson og Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, sem sátu á Alþingi fyrir flokkinn en féllu af þingi í kosningunum árið 2024.

Innlent
Fréttamynd

„Við getum verið að fara inn í al­veg ís­kaldan vetur“

Formenn stjórnarandstöðuflokka á þingi segja þingmálaskrá rýra og að ríkisstjórnin sé algjörlega að missa tökin á hagstjórn í landinu. Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins segir ískaldan vetur fram undan á þingi. Rætt var við formenn stjórnarandstöðu eftir þingsetningu á þingi fyrr í dag.

Innlent
Fréttamynd

Tískan við þing­setningu: Sól­gler­augu, haustlitir og Sig­mundur Ernir stal senunni

Á hverju hausti mæta þingmenn landsins í sínu fínasta pússi til þingsetningar og enginn breyting varð þar á í dag. Tískuunnendur bíða oft spenntir eftir því að sjá hvaða klæðnað embættismenn velja fyrir tilefnið. Ljósir haustlitir voru áberandi í ár og báru margir þingmenn sólgleraugu vegna blíðunnar. Ótvíræður tískusigurvegari var Sigmundur Ernir sem minnti helst á Philip Marlowe.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Enginn and­vígur hval­veiðum

Atvinnuvegaráðherra boðar frumvarp um hvalveiðar í haust og hefur sagt óbreytta stöðu ekki inni í myndinni. Þingmenn sem mættu í Pallborðið í gær voru beðnir um að taka afstöðu til veiðanna og sagðist enginn þeirra vera andvígur þeim.

Innlent
Fréttamynd

„Þetta er auð­vitað ekki mjög pólitískt sexí“

Alþingi verður sett í næstu viku og fulltrúar flokkanna hituðu upp fyrir þingveturinn í Pallborðinu í dag. Þar voru þeir beðnir um að spá fyrir um stærsta mál vetrarins og það umdeildasta. Nokkur mál voru nefnd. Þingflokksformaður Miðflokks varar við breytingum á sakamálalögum en viðurkennir að mótmæli í slíkum efnum séu ekki líkleg til vinsælda.

Innlent
Fréttamynd

Við­reisn tapar fylgi

Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn bæta við sig fylgi í nýjum þjóðarpúlsi Gallup. Viðreisn tapaði hins vegar fylgjendum í liðnum mánuði.

Innlent
Fréttamynd

Leggja til að Evrópu­sam­bands­umsóknin verði form­lega dregin til baka

Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins segir Sjálfstæðisflokkinn, Miðflokk og Framsóknarflokk ætla að leggja fram þingsályktunartillögu þegar þing kemur saman eftir helgi um að draga umsókn Íslands í Evrópusambandið formlega til baka dragi ríkisstjórnin umsóknina ekki til baka. Rætt var við Guðrúnu um málið í kvöldfréttum Sýnar í gær.

Innlent
Fréttamynd

Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr

Formaður Sjálfstæðisflokksins segir Valkyrjur hafa tapað kosningunum sem fram fóru í gær, þær séu ekki með nokkru móti sigurvegarar. Hún segir kosningabaráttu SJÁ hafa verið á skjön við það sem forsætisráðherra hefur áður sagt í þinginu. Sú síðarnefnda biðlar til stjórnarandstöðunnar að sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr um hvað málið snúist.

Innlent