„Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Lovísa Arnardóttir, Elísabet Inga Sigurðardóttir og Sunna Sæmundsdóttir skrifa 8. september 2026 16:35 Formenn flokka í stjórnarandstöðu eru sammála um að rkisstjórnin ætti að einbeita sér að því að uppfylla sín kosningaloforð. Vísir/Anton Brink Formenn stjórnarandstöðuflokka á þingi segja þingmálaskrá rýra og að ríkisstjórnin sé algjörlega að missa tökin á hagstjórn í landinu. Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins segir ískaldan vetur fram undan á þingi. Rætt var við formenn stjórnarandstöðu eftir þingsetningu á þingi fyrr í dag.
Guðrún telur þingveturinn verða áhugaverðan. Ríkisstjórnin komi löskuð á þingið og niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar um áframhaldandi viðræður við Evrópusambandið sé mikið áfall fyrir hana. Hún segist vara við því að í fjárlagafrumvarpinu séu gríðarlegar skattahækkanir, sérstaklega á ferðaþjónustu, og þetta muni draga úr þrótti atvinnulífsins. „Við gætum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur,“ segir Guðrún. Lilja D. Alfreðsdóttir formaður Framsóknarflokksins segir glötuð í það minnsta þrjú ár í baráttu við verðbólguna. Verðbólga hafi verið að lækka og ætti að vera komin undir 2,5 prósent núna ef réttar ákvarðanir hefðu verið teknar. Með því að fara í 5,2 prósenta krónutöluhækkanir sé verið að segja að þau trúi því ekki að verðbólgan verði minni. Ef þau ætluðu að senda réttu skilaboðin hefðu þau notað 2,5 prósent. Formennirnir segja stöðuna slæma sérstaklega fyrir Þorgerði Katrín Gunnarsdóttur, formann Viðreisnar og utanríkisráðherra, í kjölfar þjóðaratkvæðagreiðslunnar um ESB. Vísir/Anton Brink „En af því að þau eru þekkt fyrir að vera með alls konar slagorð, eins og sleggjan, sem er ekki þekkt fyrir að vera sleggja,“ segir Lilja og að það nýjasta sé núllið sem Kristrún teiknaði á blað á kynningu fjárlagafrumvarpsins í gær. „Þetta eru leikrænir tilburðir,“ segir Lilja og að ríkisstjórnin sé að gera sömu hagstjórnarmistökin og áður. Þrjú glötuð ár Hún segist ekki trúa því að þær séu enn á þessum stað og að það séu glötuð þrjú ár í baráttunni. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins segir ekkert nýtt að stjórnarandstaða sé gagnrýnin á ríkisstjórn í upphafi þingvetrar en það sé ærið tilefni til. Hann segir fjárlagafrumvarpið staðfestingu á uppgjöf þeirra. Það fylgi Evrópusambandsumræðu sem þær hafi tapað og nú eigi að refsa fólki fyrir það hvernig það kaus í atkvæðagreiðslunni. Fyrstu viðbrögð séu ekki að sýna því skilning að Íslendingar vilji ráða sínum málum sjálfir, heldur hafi þær fjallað um bókun 35 og reglugerðir sem verða lagðar á okkur. „Svo kemur fjárlagafrumvarpið. Þær læra ekki af reynslunni. Þeim virðist vera algjörlega fyrirmunað að læra af reynslunni,“ segir hann og að í fjárlagafrumvarpinu séu boðaðar hækkanir sem muni leiða út í verðlag og verðbólgu. „Skattar til að hækka vexti, ótrúlegt,“ segir Sigmundur og að með þeirra aðferð sé dregið úr umsvifum og þannig dregið úr skatttekjum. Formennirnir eru ekki hrifnir af núllinu hennar Kristrúnar. Lilja segir ríkisstjórnina með sífellda leikræna tilburði. Vísir/Anton Brink Furðuleg áhersla á Bókun 35 Guðrún segir furðulegt að á meðan stjórnvöld ráði ekki við efnahagsástandið þá sé lögð slík áhersla á Bókun 35. Lilja segir lag að einblína núna á það sem er best fyrir heimilin og það er að lækka vexti og auka kaupmátt. Hún segist alveg til í að kenna þeim eitthvað í hagstjórn, það sé fólk í stjórnarandstöðu sem hafi reynslu. Guðrún segir ríkisstjórnina verða að einbeita sér að málunum sem þjóðin er að hugsa um, háum vöxtum og verðbólgu. „Allir landsmenn eru að fara að borga ívið meiri tekjuskatt því skattþrepin verða ekki endurreiknuð. Það verður dýrara að keyra um landið og ferðast um landið, segir Guðrún og að þannig sé hægt að telja endalaust. Guðrún segir sláandi hversu lítið er á þingmálaskránni og að það vanti mál til að takast á við efnahagsvandann, Sigmundur tekur undir það og segir engar alvöru aðgerðir til að taka á stjórnleysi í útlendingamálum, Lilja segir jákvætt að orkumálaráðherra sé duglegur en að þegar hún hafi skoðað þingmálaskrána hafi verið lítið af nýjum framfaramálum til að bæta hag þjóðarinnar. „Fyrst og síðast er hagstjórnin í molum hjá þeim.“ Guðrún segir góð mál er varða almannaöryggi og Sigmundur tekur undir með Guðrúnu en segir málin ekki raungóð, það sé eins og það eigi að gera eitthvað en sé innihaldið skoðað‘ sé það til þess ætlast að það eigi að virðast eins og það sé verið að gera eitthvað. Ekki sé tekið raunverulega á vandanum.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Fjárlagafrumvarp 2027 Sjálfstæðisflokkurinn Miðflokkurinn Framsóknarflokkurinn Samfylkingin Flokkur fólksins Viðreisn Tengdar fréttir „Maður á ekki að fara í felur með það sem maður er að gera“ Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra er upplitsdjörf í aðdraganda haustþings en þing var sett nú fyrir skemmstu. Hún segist vona að bókun 35 verði ekki fyrirferðamesta þingmál vetrarins og segist sérstaklega spennt fyrir umræðum um auðlindagjöld. 8. september 2026 15:24 Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Rubio lentur á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Sjá meira
„Maður á ekki að fara í felur með það sem maður er að gera“ Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra er upplitsdjörf í aðdraganda haustþings en þing var sett nú fyrir skemmstu. Hún segist vona að bókun 35 verði ekki fyrirferðamesta þingmál vetrarins og segist sérstaklega spennt fyrir umræðum um auðlindagjöld. 8. september 2026 15:24