Segist hafa tryllst þegar Hafdís hótaði forræðissviptingu Jón Þór Dagbjartsson, sem ákærður er fyrir tilraun til manndráps á Vopnafirði, segist ekki muna eftir því að hafa ráðist á fyrrverandi sambýliskonu sína með járnkarli í október í fyrra. Hann muni að konan hafi hótað að svipta hann forræði af syni hans og við það „snappað“. Hann hafi aldrei ætlað að bana konunni. Innlent 7. maí 2025 14:09
Lokunin óásættanleg og muni leiða til verðhækkana fyrir íbúa Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps segir að ákvörðun Póstsins um lokun pósthússins í bænum sé með öllu óásættanleg. Pósthúsinu í bænum var lokað síðasta dag nýliðins aprílmánaðar og krefst sveitarstjórn að ákvörðunin verði endurskoðuð. Sveitarstjórn óttast að lokunin muni leiða til verðhækkana fyrir íbúa. Innlent 2. maí 2025 08:31
Íslandsmet? Eiga sex barnabörn í leikskólanum á Vopnafirði „Þetta er örugglega Íslandsmet hjá okkur hjónum en alveg yndislegt og skemmtilegt“, segir Halldóra S. Árnadóttir, eða Dóra eins og hún er alltaf kölluð á Vopnafirði en hún og maður hennar, Bárður Jónasson eiga sex barnabörn í leikskólanum Brekkubæ á Vopnafirði en 36 börn eru í skólanum. Lífið 9. apríl 2025 20:05
Gerandinn ákærður fyrir manndrápstilraun á Vopnafirði Ágústa Ágústsdóttir, varaþingmaður Miðflokksins, steig í pontu í Alþingi í dag og lýsti áralöngu heimilisofbeldi sem hún sætti. Hún segir meðvirknina eina af grunnstoðum ofbeldis. Gerandinn er sá sami og er ákærður er fyrir tilraun til manndráps á Vopnafirði. Innlent 25. mars 2025 18:41
Efnt til nýrrar loðnuleitar í kapphlaupi við tímann Hafrannsóknastofnun og útgerðir loðnuskipa hafa ákveðið að efna til nýrrar loðnuleitar, þeirrar fjórðu frá áramótum. Þetta er sérstök aukaleit í von um að finna meiri loðnu og verður lagt af stað á tveimur skipum frá Austfjarðahöfnum strax í kvöld. Viðskipti innlent 24. febrúar 2025 11:39
Vegabætur taldar auka straum ferðafólks um Norðausturland Þáttaskil eru framundan í vegamálum Norðausturlands. Vegagerðin bauð í dag út stórt verk sem felur í sér að síðasti malarkaflinn á norðausturhringnum fær bundið slitlag. Vegabæturnar eru taldar geta aukið straum ferðamanna um byggðir norðausturhornsins. Innlent 18. febrúar 2025 21:32
Bundið slitlag á síðasta kafla Norðausturvegar Vegagerðin auglýsir í dag eftir tilboðum í endurbyggingu Norðausturvegar um Brekknaheiði á Langanesi, milli Þórshafnar og Bakkafjarðar. Gert er ráð fyrir að verkið taki rúm tvö ár og skal því að fullu lokið 1. ágúst 2027. Innlent 18. febrúar 2025 12:00
Lokatilraun til að bjarga loðnuvertíð Hafrannsóknastofnun í samvinnu við loðnuútgerðir gerir núna lokatilraun til að finna loðnu við landið í nægjanlegu magni svo unnt sé að gefa út veiðikvóta áður en loðnan hrygnir og drepst. Að öðrum kosti blasir við loðnubrestur, annað árið í röð. Viðskipti innlent 10. febrúar 2025 10:51
Segist ekki muna eftir atburðunum Karlmaður á sextugsaldri sem er ákærður fyrir tilraun til manndráps, með því að ráðsast á fyrrverandi sambýliskonu sína á Vopnafirði, sagðist ekki muna eftir atvikinu sem málið varðar þegar það var þingfest í Héraðsdómi Austurlands í vikunni. Hann neitaði sök, og til vara fór lögmaður hans fram á að honum yrði ekki refsað þar sem hann hafi ekki stjórnað gjörðum sínum. Innlent 25. janúar 2025 14:28
Segir skipta gríðarlegu máli að fá loðnuvertíð Bæjarstjóri Hornafjarðar segir skipta gríðarlegu máli fyrir sveitarfélagið og þjóðarbúið að það verði loðnuvertíð. Skip í loðnuleit hafa síðustu daga fundið loðnu undan Húnaflóa og úti fyrir Norðausturlandi og Austfjörðum. Viðskipti innlent 21. janúar 2025 21:58
Ákærður fyrir tilraun til manndráps á Vopnafirði Karlmaður á sextugsaldri hefur verið ákærður fyrir tilraun til manndráps fyrir að ráðast á fyrrverandi sambýliskonu sína á Vopnafirði. Honum er gefið að sök að hafa reynt að svipta konuna lífi, en hann er grunaður um að ráðast á hana með hættulegu verkfæri. Innlent 21. janúar 2025 11:36
Fjögur skip hefja leit að loðnu Fjögur skip eru núna að hefja loðnuleit í veikri von um að bjarga megi loðnuvertíð. Kristján Már Unnarsson var staddur við höfuðstöðvar Hafrannsóknastofnunar í Hafnarfirði í kvöldfréttum Stöðvar 2. Hann sagði loðnuvertíðina skipta miklu máli fyrir þjóðarbúið. Viðskipti innlent 16. janúar 2025 23:14
Glazer-systkinin dvöldu á Vopnafirði í sumar Fjögur af sex börnum Malcolms Glazer komu heimsóttu Vopnafjörð síðasta sumar. Þau voru þar í boði Sir Jim Ratcliffe sem á Manchester United ásamt Glazer-fjölskyldunni. Enski boltinn 15. janúar 2025 15:44
Full ástæða til að ætla að það gæti orðið loðnuvertíð Fiskifræðingur á Hafrannsóknastofnun segir fulla ástæðu til að ætla að loðnuvertíð gæti orðið í vetur. Fyrsta leitarleiðangri vetrarins lauk í morgun. Viðskipti innlent 16. desember 2024 22:24
Tjáði vitni að hann hefði ætlað að „kála“ Hafdísi Karlmaður sem grunaður er um endurtekin ofbeldisverk þar á meðal tilraun til manndráps á hendur fyrrverandi sambýliskonu sinni tjáði vitni að hann hefði ætlað að „kála“ konunni. Þetta kemur fram í gæsluvarðhaldsúrskurði yfir manninum. Innlent 13. desember 2024 21:00
Framlengja gæsluvarðhald vegna árásar á Vopnafirði Búið er að framlengja gæsluvarðhald yfir manni sem grunaður er um alvarlega líkamsárás gegn fyrrverandi sambýliskonu sinni þar til 10. janúar á næsta ári. Það staðfestir Karl Ingi Vilbergsson varahéraðssaksóknari. Maðurinn hefur verið í varðhaldi frá því í október þegar hann var handtekinn. Innlent 11. desember 2024 13:39
Óttaðist um líf sitt Kona sem lýsir heimilisofbeldi af hálfu manns, sem nú situr í gæsluvarðhaldi, segir réttarkerfið og lögreglu hafa brugðist í baráttu við manninn. Til marks um það er höfnun á nálgunarbanni gagnvart honum, nokkrum klukkustundum áður en hann veittist að henni á lífshættulegan hátt. Hann losnar úr gæsluvarðhaldi eftir tvo sólarhringa. Innlent 9. desember 2024 22:36
Sá hvítt eftir árás með járnkarli Karlmaður sem er í gæsluvarðhaldi grunaður um líkamsárás gegn fyrrverandi sambýliskonu sinni á Vopnafirði er talin hafa ráðist á konuna með hættulegu verkfæri, járnkarli eða rúllubaggateini. Innlent 20. nóvember 2024 10:55
Í gæsluvarðhald vegna alvarlegrar líkamsárásar á Vopnafirði Héraðsdómur Austurlands hefur fallist á kröfu lögreglustjórans á Austurlandi um gæsluvarðhald yfir sakborningi sem grunaður er um líkamsárás gegn fyrrum sambýliskonu á Vopnafirði á miðvikudag. Innlent 19. október 2024 19:04
Grunaður um alvarlega líkamsárás gegn fyrrverandi sambýliskonu Einstaklingur var handtekinn á Vopnafirði síðastliðinn miðvikudag grunaður um alvarlega líkamsárás gegn fyrrum sambýliskonu. Innlent 19. október 2024 12:41
Minnast Violetu í kvöld Boðað hefur verið til minningarathafnar á Vopnafirði í kvöld til að minnast þess að ár er liðið síðan moldívska knattspyrnukonan Violeta Mitul lést af slysförum. Innlent 4. september 2024 13:42
Næga atvinnu að hafa á Vopnafirði Allir sem að vettlingi geta valdið og vantar vinnu geta fengið vinnu á Vopnafirði enda nóg að gera þar og atvinnulífið blómstrar, sem aldrei fyrr. Innlent 21. júlí 2024 14:30
Ratcliffe og vinir á fjórum einkaþotum á Egilsstöðum Breski auðkýfingurinn Jim Ratcliffe er duglegur að bjóða vinum sínum í veiði á Norðausturlandi. Til þess að komast þangað notast þeir við einkaþotur í eigu fyrirtækis hans Ineos, sem flogið er á Egilsstaði. Innlent 18. júlí 2024 10:42
Bustarfellsdagurinn í glæsilegum torfbæ Það er ótrúlegt en dagsatt en sama ættin hefur búið á bænum Bustarfelli í Vopnafirði frá 1532 eða í 492 ár en í dag er einmitt Bustarfellsdagurinn í einum besta varðveitta torfbæ landsins, sem er fullur af munum fortíðar. Innlent 14. júlí 2024 12:23
Bongóblíða á Vopnaskaki um helgina Það iðar allt af lífi og fjöri á Vopnafirði um helgina en þar fer fram fjölskylduhátíðin Vopnaskak fram í bongóblíðu. Innlent 13. júlí 2024 12:31
Séra Sigfús Jón Árnason látinn Sr. Sigfús Jón Árnason, fyrrverandi prestur að Hofi í Vopnafirði og prófastur í Múlaprófastsdæmi lést þann 25.júní síðastliðinn 86 ára að aldri. Innlent 29. júní 2024 07:01
Vopnfirska kjötsúpan stoltið hjá efnahagsráðgjafa ríkistjórnarinnar B maðurinn Konráð S. Guðjónsson, efnahagsráðgjafi ríkistjórnarinnar, viðurkennir að hann muni seint teljast meistarakokkur. Stoltið í eldhúsinu er samt vopnfirska kjötsúpan sem er innblásin af Jóa stjúpföður hans. Atvinnulíf 25. maí 2024 10:01
Valdimar Hermannsson nýr sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps Valdimar O. Hermannsson hefur verið ráðinn sem sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps út kjörtímabilið. Sveitastjórn hreppsins samþykkti ráðninguna á fundi í gær 15. maí. Innlent 16. maí 2024 15:05
Ófært víða um land: Bændur að „drukkna í mjólk“ sem hefur ekki verið sótt síðan fyrir helgi Mjólk hefur ekki verið sótt í Engihlíð í Vopnafirði frá því fyrir helgi vegna ófærðar. Bændurnir hafa boðið fólki að sækja mjólk til að þurfa ekki að hella henni. Verði mjólkin ekki sótt á morgun þarf að hella sex daga birgðum sem yrði mikið tjón. Ófært er víða um Austurland og gular viðvaranir um allt norðanvert landið. Innlent 31. mars 2024 18:26
Leiðinlegt með loðnuna en svona er þetta bara Væntingar um tugmilljarða loðnuvertíð eru fyrir bí. Loðnubrestur virðist staðreynd. Viðskipti innlent 21. mars 2024 22:22