Sveitarfélagið Horna­fjörður

Sveitarfélagið Horna­fjörður

Mannfjöldi: 2.589 (2025). Flatarmál: 6.309 ferkílómetrar. Stærstu byggðakjarnar: Höfn í Hornafirði, Hof, Nesjahverfi, Fagurhólsmýri.


Fréttamynd

Á­kærður fyrir að drepa tvo af gá­leysi

Karlmaður hefur verið ákærður fyrir tvö manndráp af gáleysi með því að valda banaslysi á Suðurlandsvegi við Skaftafell í janúar 2024. Málið verður tekið fyrir í Héraðsdómi Austurlands eftir viku.

Innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Sama jarmið í sauð­fé og ferða­mönnum

Þegar erlendi fararstjórinn spurði bóndann í Suðursveit hver munurinn væri á því að vera með sauðfé og ferðamenn var svarið óvænt: Það væri eiginlega alveg það sama. Það væri sama jarmið.

Innlent
Fréttamynd

Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpa­vogs

Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur segir að sérlega varasamar aðstæður verði í kvöld milli Hafnar og Djúpavogs vegna hvassviðris. Leiðin sé þekkt fyrir algenga og skeinuhætta sviptivinda. 

Veður
Fréttamynd

Gjald­taka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun

Gjaldtaka um nýjan hringveg um Hornafjörð hefst á morgun, 1. september. Nýr Hringvegur (1) um Hornafjörð var opnaður fyrir umferð í júní. Í tilkynningu frá Vegagerðinni kemur fram að veggjöld standi undir hluta kostnaðar við framkvæmdina, rekstur og viðhald vegarins.

Innlent
Fréttamynd

Skilti í setrinu á ensku: „Hjartan­lega sam­mála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“

Forstöðumaður Þórbergsseturs segist geta tekið undir þá gagnrýni að skilti í veitingasölu menningarsetursins ættu ekki að vera á ensku; það væri viðeigandi ef þau væru frekar á íslensku eða esperanto. Langflestir gestir setursins séu þó erlendir ferðamenn og því sé auðvelt að gleyma sér í því að gera íslenskunni hátt undir höfði. Það gæti vel verið að skiltunum verði skipt út.

Innlent
Fréttamynd

„Þá bara krassa lungun“

Ungur Hornfirðingur andar léttar eftir að hafa gengist undir lungnaígræðslu í Svíþjóð í apríl. Hún hefur glímt við óskilgreindan lungnasjúkdóm síðustu átta ár en verður nú hraustari með hverjum deginum. Hún kveðst ánægð með að geta nú leikið sér með litlu frænkum sínum.

Innlent
Fréttamynd

Bílvelta austan við Hval­nes

Bíll með ferðavagn valt út af vegi rétt austan við Hvalnes á Suðausturlandi. Þrír voru um borð í bílnum en ekki er talið að um alvarlegt slys sé að ræða. 

Innlent
Fréttamynd

Segir verk Þór­bergs enn ó­trú­lega lifandi

Þórbergssetrið á Hala í Suðursveit, fæðingarstað rithöfundarins, fagnar í dag tuttugu ára afmæli. Forstöðukona setursins segist bjartsýn um að verk Þórbergs Þórðarsonar muni áfram lifa með þjóðinni.

Innlent
Fréttamynd

Stytting hringvegarins sú næst­mesta á þessari öld

Ný brú yfir Hornafjarðarfljót var opnuð í dag. Hringvegurinn styttist um tólf kílómetra og leiðin milli Reykjavíkur og Hafnar um næstum fimmtán kílómetra. Vegamálastjóri sagði í ávarpi við brúarvígsluna að slík stytting hefði ekki orðið á hringveginum frá því Hvalfjarðargöng voru opnuð árið 1998.

Innlent
Fréttamynd

Nýr í­þrótta­völlur vekur at­hygli í fá­mennri sveit

Nýjum íþróttamannvirkjum er jafnan vel fagnað meðal þeirra sem munu njóta þeirra en við Hrollaugsstaði í Suðursveit er verið er að taka í notkun nýjan fjölnota íþróttavöll. Sveitin er mjög fámenn og eru þar innan við tuttugu heimili og því vekur nýi völlurinn mikla athygli.

Innlent
Fréttamynd

Sóttu öku­mann sem slasaðist í mótorhjólaslysi

Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út á tólfta tímanum í gærkvöld, þriðjudag, til þess að sækja ökumann sem hafði lent í bifhjólaslysi nærri Höfn í Hornafirði. Þyrluáhöfnin flaug til móts við sjúkrabíl og sótti ökumanninn við Skaftafell í Öræfum á Suðausturlandi.

Innlent
Fréttamynd

Sigur­jón frá Horna­firði í Skaftárhrepp

Sigurjón Andrésson hefur verið ráðinn sveitarstjóri Skaftárhrepps af meirihluta D-lista og óháðra í Skaftárhreppi. Sigurjón lauk störfum sem sveitarstjóri í næsta sveitarfélagi, Hornafirði, fyrir aðeins nokkrum dögum. Í tilkynningu kemur fram að ráðningin verði formlega staðfest á fyrsta fundi nýrrar sveitarstjórnar þann 9. júní.

Innlent
Fréttamynd

Hjalti Þór verður bæjar­stjóri í Horna­firði

Hjalti Þór Vignisson oddviti Framsóknar í Hornafirði verður bæjarstjóri í Sveitarfélaginu Hornafirði. Fulltrúar Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks hafa undirritað málefnasamning um samstarf á komandi kjörtímabili 2026–2030. 

Innlent
Fréttamynd

Vakta haf­svæðið með ESB-dróna frá Horna­firði

Ómannað loftfar á vegum Landhelgisgæslunnar sem er ætlað að hafa eftirlit með hafsvæðinu umhverfis landið verður tekið í notkun í vikunni. Dróninn verður gerður út frá Hornafjarðarflugvelli og er fjármagnaður af Evrópusambandinu.

Innlent
Fréttamynd

Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndar­mál vegna um­mæla Snorra

Strax í gærmorgun var búið að flagga hin­segin fánum um allan bæ, að sögn Horn­firðingsins Guðrúnar Óskar Gunnars­dóttur. Hún brást við um­mælum Snorra Más­sonar um regn­bogafána í færslu sem hefur farið víða um Face­book. Var færslan einnig hugsuð til þess að fá fram viðhorf Mið­flokksins sem býður fram í sveitarfélaginu í fyrsta sinn.

Innlent