Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Eiður Þór Árnason skrifar 17. apríl 2026 17:49 Frambjóðendur Miðflokksins í Hornafirði. Reynir Ásgeirsson, oddviti listans, stendur fyrir miðju. Miðflokkurinn Forsvarsfólk Miðflokksins á Hornafirði taldi tilefni til að bregðast við umræðu um stefnu flokksins eftir að varaformaður hans gerði athugasemdir við fjölda regnbogafána og svipaðra tákna í skólum.
Miðflokksmenn í firðinum segjast vera talsmenn fjölbreytileika og aldrei hafi verið til umræðu að „reyna að hafa áhrif á eða setja útá hvernig fólk upplifir sjálft sig.“ „Sem nýtt framboð með nýju fólki erum við vissulega ný á markaðnum. Það er að okkar mati gott að auka fjölbreytni í sveitarstjórnarkosningunum. Það er þó ekki staðan hjá öllum. Inn á milli eru aðilar sem telja að við séum á móti fjölbreytileika. Því fer hins vegar fjarri sanni,“ segir í færslu á Facebook-síðu framboðsins en með henni er birt ljósmynd af blaktandi regnbogafánum við bílastæði. Þjóðþekktir einstaklingar hafa stigið fram og fordæmt ummæli Snorra Mássonar varaformanns Miðflokksins en hann gerði til að mynda athugasemdir við að áðurnefnt tákn hinsegin fólks væri sums staðar meira áberandi í skólum en þjóðfáninn. Hann sagði þetta dæmi um „hugmyndafræðilegar áherslur í skólakerfinu“ og jafnframt „óþægilegt brot á pólitísku hlutleysi skólanna.“ Meðal þeirra sem hafa gagnrýnt Snorra er Guðrún Karls Helgudóttir, biskup Íslands, Hildur Eir Bolladóttir, sóknarprestur í Akureyrarkirkju, og Jóhannes Þór Skúlason, fyrrverandi aðstoðarmaður Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar formanns flokksins. Snorri hefur áður komist í sviðsljósið vegna umdeildra ummæla sinna um hinsegin fólk. Skipti fólki almennt ekki í hópa Ekki er minnst berum orðum á ummæli varaformannsins í yfirlýsingu Miðflokksins á Hornafirði. „Innan okkar flokks er fólk með vítt tengslanet sem teygir sig til allra hópa samfélagsins. Það hefur aldrei verið til umræðu að reyna að hafa áhrif á eða setja útá hvernig fólk upplifir sjálft sig. Við skiptum fólki ekki í hópa nema þá í einstaka málum í aldursflokka til að aðgreina leikskóla frá dvalarheimili. Sem við teljum ákaflega skynsamlegt þó báðir hópar hafi gott af því að umgangast hvorn annan. Tveir ólíkir hópar sem veita hvor öðrum gleði. Slíkt þekkist víðar í samfélaginu.“ „Fólk er alls konar og það eru sjálfsögð réttindi allra að fá að vera eins og hverjum og einum líður vel. Vellíðan allra íbúa sveitarfélagsins skiptir okkur miklu máli. Við tökum fjölbreytileikanum fagnandi og hvetjum alla til að láta sér líða vel í eigin skinni,“ segir að lokum í yfirlýsingu Miðflokksins á Hornafirði. Færsla framboðsins í heild sinni Fréttin hefur verið uppfærð.
Miðflokkurinn Hinsegin Sveitarfélagið Hornafjörður Sveitarstjórnarkosningar 2026 Tengdar fréttir Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Biskup Íslands segist sammála Hildi Eir Bolladóttur, sóknarpresti í Akureyrarkirkju, sem biður Miðflokkinn vinsamlegast um að draga Þjóðkirkjuna ekki „inn í ömurlegan málflutning sinn“ um regnbogafána í grunnskólum. Hildur Eir segir regnbogafánana mega blakta sem víðast, líka við kirkjur. 17. apríl 2026 15:17 „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Fyrrverandi aðstoðarmaður Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar gagnrýnir orðræðu Miðflokksmanna um hinsegin málefni og sakar þá um popúlisma. Þetta gerir hann eftir að varaformaður Miðflokksins líkti flöggun regnbogafánans í skólum við eins konar „kröfu um hugmyndafræðilega undirgefni“. 16. apríl 2026 19:51 Sótt að Snorra vegna framkomu hans og forneskjulegra skoðana Öll spjót standa nú á Snorra Mássyni, þingmanni Miðflokksins, eftir umdeilda framkomu hans í Kastljóssþætti um bakslag gegn hinsegin fólki. Ráðherra líkir honum við „geltandi kjána“ og margir gagnrýna forneskjulegar skoðanir hans í garð hinsegin fólks og yfirgang í umræðunni. 2. september 2025 11:40 Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Fleiri fréttir Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Sjá meira
Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Biskup Íslands segist sammála Hildi Eir Bolladóttur, sóknarpresti í Akureyrarkirkju, sem biður Miðflokkinn vinsamlegast um að draga Þjóðkirkjuna ekki „inn í ömurlegan málflutning sinn“ um regnbogafána í grunnskólum. Hildur Eir segir regnbogafánana mega blakta sem víðast, líka við kirkjur. 17. apríl 2026 15:17
„Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Fyrrverandi aðstoðarmaður Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar gagnrýnir orðræðu Miðflokksmanna um hinsegin málefni og sakar þá um popúlisma. Þetta gerir hann eftir að varaformaður Miðflokksins líkti flöggun regnbogafánans í skólum við eins konar „kröfu um hugmyndafræðilega undirgefni“. 16. apríl 2026 19:51
Sótt að Snorra vegna framkomu hans og forneskjulegra skoðana Öll spjót standa nú á Snorra Mássyni, þingmanni Miðflokksins, eftir umdeilda framkomu hans í Kastljóssþætti um bakslag gegn hinsegin fólki. Ráðherra líkir honum við „geltandi kjána“ og margir gagnrýna forneskjulegar skoðanir hans í garð hinsegin fólks og yfirgang í umræðunni. 2. september 2025 11:40