Subway-deild karla

Subway-deild karla

Leikirnir




    Fréttamynd

    Grindvíkingar höfðu sigur í Fjósinu

    Grindvíkingar gerðu sér lítið fyrir og lögðu Skallagrím í Borgarnesi í fyrsta leik liðanna í úrslitakeppni Iceland Express deildarinnar í kvöld. Staðan var jöfn 94-94 eftir venjulegan leiktíma, en gestirnir höfðu betur í framlengingu og höfðu 112-105 sigur í æsilegum leik. Liðin mætast á ný í Grindavík um helgina og þar geta heimamenn tryggt sér sæti í undanúrslitum mótsins.

    Körfubolti
    Fréttamynd

    Framlengt í Fjósinu

    Leikur Skallagríms og Grindavíkur í Fjósinu í Borgarnesi ætlar að verða sögulegur. Staðan var jöfn að loknum venjulegum leiktíma 94-94 og því þarf að framlengja. Þetta er fyrsti leikur liðanna í fyrstu umferð úrslitakeppninnar.

    Körfubolti
    Fréttamynd

    Grindvíkingar yfir í hálfleik

    Grindavík hefur yfir 59-54 gegn Skallagrími þegar flautað hefur verið til hálfleiks í fyrstu viðureign liðanna í 8-liða úrslitum Iceland Express deildarinnar. Leikurinn fer fram í Borgarnesi og hefur verið mjög fjörugur. Heimamenn náðu mest um 10 stiga forskoti í fyrri hálfleiknum, en gestirnir eru í miklu stuði. Páll Axel Vilbergsson er kominn með 16 stig hjá Grindavík og nafni hans Kristinsson 15 stig og hefur hitt úr öllum 7 skotum sínum.

    Körfubolti
    Fréttamynd

    Við ætluðum að vinna annan leikinn hvort sem er

    Benedikt Guðmundsson þjálfari KR var að vonum ekki sáttur við niðurstöðuna í kvöld þegar hans menn lágu fyrir ÍR í fyrsta leik liðanna í 8-liða úrslitum Iceland Express deildarinnar. Hann sagði sóknarleikinn hafa fellt sína menn í kvöld.

    Körfubolti
    Fréttamynd

    ÍR komið í vænlega stöðu

    ÍR-ingar gerðu sér lítið fyrir og lögðu KR 73-65 í vesturbænum í kvöld í fyrsta leik liðanna í 8-liða úrslitum Iceland Express deildarinnar í körfubolta. Sóknarleikur beggja liða var frekar slakur í kvöld enda baráttan gríðarleg, en það voru Breiðhyltingar sem höfðu betur og geta nú klárað einvígið í Seljaskóla á laugardaginn.

    Körfubolti
    Fréttamynd

    Snæfell lagði Keflavík

    Snæfell lagði Keflavík 84-67 í fyrsta leik liðanna í 8-liða úrslitum Iceland Express deildarinnar í Stykkishólmi í kvöld eftir að hafa verið yfir 43-36 í hálfleik. Heimamenn höfðu yfir lengst af í leiknum og segja má að sigur þeirra hafi verið nokkuð öruggur. Þeirra bíður engu að síður erfitt verkefni í Keflavík þegar liðin mætast öðru sinni um helgina, en sá leikur verður sýndur beint á Sýn.

    Körfubolti
    Fréttamynd

    Snæfell yfir eftir þriðja leikhluta

    Snæfellingar hafa yfir 61-47 gegn Keflavík eftir þrjá leikhluta í viðureign liðanna í Stykkishólmi. Gunnar Einarsson fékk sína fimmtu villu í liði Keflavíkur í þriðja leikhluta og kemur því ekki meira við sögu. Í vesturbænum hefur ÍR yfir 40-39 í hálfleik gegn KR.

    Körfubolti
    Fréttamynd

    Snæfell leiðir í hálfleik

    Snæfell hefur yfir í hálfleik 43-36 gegn Keflavík í fyrsta leik liðanna í úrslitakeppninni í Iceland Express deildinni. Justin Shouse er kominn með 11 stig hjá Snæfelli og Hlynur Bæringsson 10. Hjá Keflavík er Sebastian Hermeiner kominn með 10 stig og Tony Harris 10. Nokkur hiti er í leiknum og eru þrír leikmenn í liði Keflavíkur komnir í villuvandræði.

    Körfubolti
    Fréttamynd

    Snæfell yfir eftir fyrsta leikhluta

    Úrslitakeppnin í Iceland Express deildinni er hafin. Snæfell hefur yfir 19-17 gegn Keflvíkingum efir fyrsta leikhlutann í leik liðanna í Stykkishólmi. Leikur KR og ÍR er að hefjast í beinni á Sýn.

    Körfubolti
    Fréttamynd

    KR - ÍR í beinni á Sýn klukkan 20

    Nú styttist í að úrslitakeppni Iceland Express deildarinnar í karlaflokki fari af stað. Flautað verður til leiks hjá Snæfelli og Keflavík nú klukkan 19:15 og klukkan 20 taka KR-ingar á móti ÍR í DHL-Höllinni. Sá leikur verður sýndur beint á Sýn fyrir þá sem ekki hafa tök á því að mæta á völlinn.

    Körfubolti
    Fréttamynd

    Hlynur Bærings: Keflvíkingar eru alltaf erfiðir

    Hlynur Bæringsson, leikmaður Snæfells, lenti í því tvö ár í röð að tapa fyrir Keflvíkingum í úrslitum Íslandsmótsins. Nú er öldin önnur og menn spá því að Snæfell hafi betur þegar liðin mætast í fyrstu umferð úrslitakeppni Iceland Express deildarinnar. Fyrsti leikurinn er í Stykkishólmi í kvöld.

    Körfubolti
    Fréttamynd

    Valur Ingimundarson: Við viljum fá pressuna á okkur

    Úrslitakeppnin í Iceland Express deildinni í körfubolta hefst með látum annað kvöld. Þar mætast meðal annars Skallagrímur og Grindavík í fyrstu umferðinni líkt og á síðustu leiktíð. Valur Ingimundarsson, þjálfari Skallagríms, segir allt annað uppi á teningnum hjá liðinu í ár en í fyrra.

    Körfubolti
    Fréttamynd

    Fjölnismenn sluppu við fallið

    Lokaumferðin í Iceland Express deild karla í körfubolta fór fram í kvöld. Þór frá Þorlákshöfn féll í 1. deild ásamt Haukum eftir að liðið tapaði 91-86 á heimavelli fyrir Íslandsmeisturum Njarðvíkur í kvöld. Á sama tíma unnu Fjölnismenn góðan sigur á Tindastól á heimavelli 94-87. Liðin urðu jöfn að stigum en Fjölnir vann innbyrðisviðureignir liðanna í vetur.

    Körfubolti
    Fréttamynd

    Páll Axel Vilbergsson átti stórleik gegn Keflavík

    Grindavík vann í gær sanngjarnan sigur á grönnum sínum í Keflavík. Mikið var skorað í leiknum sem var hraður og skemmtilegur. Sautján stiga sigur Grindavíkur, 117-99, tryggði liðinu betri árangur í innbyrðis viðureignum liðanna. Grindavík á því enn möguleika á að stela 5. sætinu í lokaumferð Iceland Express deildarinnar á fimmtudag.

    Körfubolti
    Fréttamynd

    Haukar fallnir

    Haukar féllu í kvöld í 1. deildina í körfubolta eftir 88-78 tap fyrir Íslandsmeisturum Njarðvíkur. ÍR lagði Þór 83-73, Hamar lagði Fjölni 87-75 og Snæfell lagði granna sína í Skallagrími 79-72 í Stykkishólmi. Það ræðst svo í lokaumferðinni hvort það verður Fjölnir eða Þór sem fylgir Haukum niður um deild.

    Körfubolti
    Fréttamynd

    Njarðvíkingar deildarmeistarar

    Njarðvíkingar tryggðu sér í kvöld deildarmeistaratitilinn í úrvalsdeild karla í körfubolta með því að leggja Fjölnismenn í Grafarvogi 89-75. Snæfell lagði Grindavík 83-74, Skallagrímur vann Þór 103-93 og þá vann Keflavík sigur á Tindastól á heimavelli 107-98.

    Körfubolti
    Fréttamynd

    Njarðvík hafði betur í toppslagnum gegn KR

    Njarðvíkingar þurfa einn sigur til viðbótar til að tryggja sér deildarmeistaratitilinn í Iceland Express deild karla í körfubolta eftir sigur á helstu keppinautunum í KR í kvöld, 83-73. Njarðvík er nú komið með 34 stig eftir 19 leiki en næstu lið, KR og Skallagrímur, eru með 30. Alls eru leiknar 22 umferðir.

    Körfubolti
    Fréttamynd

    Skallagrímur vann í Grindavík

    Skallagrímur lætur ekki sitt eftir liggja í toppbaráttunni í Iceland Express-deild karla í körfubolta. Í kvöld vann liðið nauman útisigur á Grindavík, 84-83, og náði þar með KR-ingum að stigum í öðru sæti deildarinnar. Snæfell er einnig í hópi efstu liða en í kvöld vann liðið góðan útisigur á Tindastóli, 73-104. Tveir aðrir leikir fóru fram í kvöld.

    Körfubolti
    Fréttamynd

    Njarðvík hafði betur í grannaslagnum

    Njarðvík endurheimti toppsætið í Iceland-Express deild karla í kvöld með góðum útisigri á grönnum sínum og erkifjendum í Keflavík, 70-83. Þá vann Skallagrímur öruggan sigur á Haukum í Borgarnesi, 122-106, og tryggði stöðu sína í þriðja sæti deildarinnar.

    Körfubolti
    Fréttamynd

    KR lagði ÍR

    Fjórir leikir fóru fram í karlakörfunni í kvöld og einn í kvennaflokki. Í úrvalsdeild karla vann KR góðan sigur á ÍR 89-81, Snæfell lagði Hamar 83-60, Grindavík lagði Tindastól 109-99 og Fjölnir lagði Þór 102-91 í framlengingu. Í kvennaflokki völtuðu Íslandsmeistarar Hauka yfir Breiðablik 116-74.

    Körfubolti
    Fréttamynd

    Fjórir leikir í úrvalsdeild karla í kvöld

    Fjórir áhugaverðir leikir verða á dagskrá í úrvalsdeild karla í körfubolta í kvöld og einn leikur í kvennakörfunni. Grindavík tekur á móti Tindastól, KR fær ÍR í heimsókn, Snæfell tekur á móti Hamri og þá tekur Fjölnir á móti Þór frá Þorlákshöfn. Í kvennaflokki geta Haukastúlkur farið langleiðina með að tryggja sér efsta sætið í deildinni með sigri á Breiðablik. Allir leikirnir hefjast klukkan 19:15.

    Körfubolti
    Fréttamynd

    Til hamingju ÍR

    Eiríkur Önundarson, fyrirliði ÍR, tileinkaði félaginu bikartitilinn í dag á 100 ára afmæli ÍR. Jón Arnar Ingvarsson þjálfari sagði betra liðið hafa unnið í dag.

    Körfubolti
    Fréttamynd

    ÍR-ingar bikarmeistarar

    ÍR-ingar eru bikarmeistarar karla í körfubolta árið 2007 eftir 83-81 sigur á Hamri/Selfoss í Laugardalshöllinni. ÍR hafði undirtökin lengst af í leiknum en Hamarsmenn voru aldrei langt undan og voru lokasekúndurnar æsispennandi líkt og í kvennaleiknum fyrr í dag.

    Körfubolti
    Fréttamynd

    ÍR-ingar yfir í hálfleik

    ÍR hefur nauma forystu gegn Hamri 36-34þegar flautað hefur verið til leikhlés í bikarúrslitaleiknum í körfubolta sem fram fer í Laugardalshöllinni. ÍR hefur verið með frumkvæðið framan af leiknum, en Hamar minnkaði muninn niður í tvö stig rétt fyrir hlé.

    Körfubolti
    Fréttamynd

    Sanngjarn sigur ÍR á Keflavík

    ÍR-ingar hituðu upp fyrir úrslitaleikinn í bikarnum um helgina með því að leggja Keflvíkinga nokkuð örugglega í úrvalsdeild karla í körfubolta í kvöld 97-81. ÍR-ingar höfðu frumkvæðið lengst af í leiknum og náðu að standa af sér mikið áhlaup gestanna í síðari hálfleik. ÍR er nú í 7. sæti deildarinnar með 12 stig en Keflavík situr í 5. sætinu með 20 stig. Nánari umfjöllun um leikinn verður á Vísi snemma í fyrramálið.

    Körfubolti
    Fréttamynd

    ÍR tekur á móti Keflavík í kvöld

    Einn leikur er á dagskrá í úrvalsdeild karla í körfubolta í kvöld en þar tekur ÍR á móti Keflavík í Seljaskóla. Keflvíkingar hafa verið í vandræðum í vetur og hafa enn ekki fundið taktinn, en ÍR-ingar hafa náð að hrista af sér dapra byrjun og eru nú í baráttu um sæti í úrslitakeppninni í vor. Leikurinn hefst klukkan 19:15.

    Körfubolti
    Fréttamynd

    Njarðvík vann Snæfell í toppslagnum

    Njarðvík heldur sínu striki í Iceland Express-deild karla í körfubolta og í toppslag kvöldsins vann liðið góðan sigur á Snæfelli, 77-67, í ljónagryfjunni í Reykjanesbæ. KR og Skallagrímur unnu einnig leiki sína í kvöld og eru skammt undan Njarðvíkingum í toppbaráttunni.

    Körfubolti
    Fréttamynd

    Haukar steinláu í Vesturbænum

    KR-ingar unnu yfirburðasigur á Haukum í kvöld, 105-67, og komust þannig við hlið Njarðvíkur á toppi Iceland-Express deildar karla á ný. Einn annar leikur var á dagskrá í kvöld, Skallagrímur vann Fjölni með 100 stigum gegn 89.

    Körfubolti
    Fréttamynd

    Njarðvíkingar sigruðu í grannaslagnum

    Fjórir leikir voru á dagskrá í úrvalsdeild karla í körfubolta í kvöld. Íslandsmeistarar Njarðvíkur eru enn á toppnum eftir góðan sigur á grönnum sínum í Grindavík 98-94 eftir framlengdan leik, en þetta var níundi sigur liðsins í röð. Keflavík lagði Þór Þorlákshöfn 86-74, Snæfell burstaði ÍR 95-72 og Hamar vann góðan útisigur á Tindastól 94-83.

    Körfubolti