Skóla- og menntamál

Skóla- og menntamál

Fréttir af skóla- og menntamálum á Íslandi.

Fréttamynd

Sam­ræmd við­brögð full­orðinna skipta öllu þegar barn verður fyrir of­beldi

Öryggi barns getur oltið á einu samtali eða einu réttu viðbragði. Þegar barn verður fyrir ofbeldi skiptir því sköpum hvernig fullorðin bregðast við. Foreldrar og fagfólk þurfa að vita hvernig á að bregðast við og samræma viðbrögð, óháð því hvort málið kemur upp í skóla, frístund eða heima. Öryggi barna byggir á sameiginlegum verkfærum og samstilltum viðbrögðum.

Skoðun
Fréttamynd

Menntun fyrir fram­tíðina

Ef við ætlum að innleiða metnaðarfulla atvinnustefnu verðum við að byrja þar sem öll verðmætasköpun á rætur sínar. Í menntun. Menntakerfið er ekki aukaatriði í framtíðarsýn Íslands. Það er burðarásinn.

Skoðun
Fréttamynd

Já­kvæð á­hrif Kópavogsleiðarinnar

Umræða um leikskólamál hefur verið lífleg undanfarið og Kópavogsleiðin sérstaklega til umræðu. Skoðanir eru skiptar, eins og eðlilegt er þegar gerðar eru breytingar á mikilvægu samfélagskerfi.

Skoðun
Fréttamynd

Skóla­stjórinn um­deildi snýr ekki aftur

Dagný Kristinsdóttir, skólastjóri Víðistaðaskóla í Hafnarfirði, snýr ekki aftur til starfa í skólanum. Hún var send í leyfi í nóvember á meðan ráðist var í úttekt á stjórnunarháttum í skólanum. Úttekt sem kostaði 3,9 milljónir króna.

Innlent
Fréttamynd

Inn­leiða gervi­greindina í MS

Menntaskólinn við Sund og upplýsingatæknifyrirtækið Apró hafa gert með sér samning um víðtækt þróunarsamstarf á sviði gervigreindar. Samstarfið lýtur annars vegar að innleiðingu á Vitanum, öruggu gervigreindarumhverfi fyrir nemendur og starfsfólk, og hins vegar að ráðgjöf og stefnumótun fyrir þróun kennslu og náms í gervigreind.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Fyrirmyndarverkefni í grunn­skólum Reykja­víkur­borgar

Í Reykjavík eru tæplega 40 grunnskólar, hver með sína sérstöðu og styrkleika. Sú sérstaða birtist meðal annars í fjölbreytni nemendahóps, öflugu starfsfólki, aðstöðu og staðsetningu skólanna. Allir grunnskólar borgarinnar leggja ríkan metnað í að skapa fjölbreytt og skapandi námsumhverfi í takt við Menntastefnu Reykjavíkur – Láttu draumana rætast.

Skoðun
Fréttamynd

Blómin í haganum og börnin í boxinu

Reykjavíkurborg gaf nýverið út drög að aðgerðaáætlun um líffræðilega fjölbreytni. Þar er rætt um mikilvægi þess að vernda vistkerfi, fylgjast með þróun tegunda og tryggja að lífríki borgarinnar fái að dafna.

Skoðun
Fréttamynd

Þó­nokkuð margir búnir að stytta leikskóla­vist á föstu­dögum

Fimmtán prósent foreldra eða forráðafólks leikskólabarna í Reykjavík hafa breytt dvalartíma barna sinna vegna innleiðingar Reykjavíkurleiðarinnar. Skrifstofustjóri á leikskólasviði Reykjavíkurborgar segir marga stytta dvalartíma á föstudögum. Það sé ánægjulegt hversu margir hafa þegar brugðist við.

Innlent
Fréttamynd

Opið bréf frá leikskólastjórnendum í Kópa­vogi

Kæri bæjarstjóri og bæjarstjórn í Kópavogi, takk fyrir að hlusta á ákall okkar leikskólastjórnenda og annarra hagsmunaaðila leikskóla og bregðast við þeim stórkostlega vanda sem blasti við starfsemi leikskóla í Kópavogi.

Skoðun
Fréttamynd

Láta alla nem­endur sem mega þreyta sam­ræmdu prófin

Samræmd próf verða í marsmánuði lögð fyrir grunnskólanemendur í fyrsta sinn í fimm ár. Skólastjóri segist heilt yfir sáttur við nýtt fyrirkomulag prófanna, þó ýmsir vankantar séu til staðar. Nemendur séu rólegir vegna prófanna. 

Innlent
Fréttamynd

„Þá er bara búið að skemma MR“

Fyrrverandi og núverandi nemendur Menntaskólans í Reykjavík eru á einu máli um gagnsemi latínunáms. Táknræn mótmæli vegna umdeildra breytinga á latínukennslu skólans beinast að rektor skólans og eiga rætur að rekja rúm 170 ár aftur í tímann.

Innlent
Fréttamynd

Fyrsti dagur sam­ræmdra prófa í fimm ár

Í fyrsta skipti í fimm ár voru samræmd próf lögð fyrir grunnskólanemendur landsins. Þrátt fyrir minni háttar tæknivandræði fyrri hluta dags segir forstjóri Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu að próftakan hafi almennt gengið vel. 

Innlent
Fréttamynd

Latína er list mæt

Ég lærði aldrei latínu í menntaskóla, einfaldlega vegna þess að hún var ekki í boði þegar það kom að áfangavali.

Skoðun
Fréttamynd

Um rektor tala ég ekki

„Schevingum metuo, Egilsson laudibus orno,Gunnlaugsson adamo, de Lectore dicere nolo.“Kváðu skólapiltar Bessastaðaskóla á öndverðri 19. öld og gáfu okkur seinni tíma mönnum þar með ágæta og skemmtilega sýn inn í þann anda og stemmningu sem ríkti yfir einu íslensku menntastofnun þess tíma.

Skoðun
Fréttamynd

Fram­úr­skarandi skóli án hugsunar?

Það er nauðsynlegt að ígrunda reglulega í hverju góð menntun felst. Stjórnendur, kennarar, nemendur, foreldrar og almennir borgarar ættu að spyrja sig hvers vegna, hvernig og í þágu hvers?

Skoðun
Fréttamynd

Síðustu vígi vís­dómsins

Í síðastliðinni viku fékk ég kassa heim til mín frá mömmu, fullan af gömlum námsbókum frá því að ég var í MR. Hún sagði mér að fara í gegnum þetta ef ég vildi eiga eitthvað af þessu, gefa það eða henda. Um þessar mundir er ég að leikstýra leikfélagi skólans, Herranótt, og bauð nemendum að hirða eitthvað af þessu.

Skoðun
Fréttamynd

Borgin biðst af­sökunar: „Þetta er svo petty af hálfu borgarinnar“

Lögmaður telur Reykjavíkurborg hafa bakað sér margra milljóna skaðabótaskyldu í kjölfar uppsagnar verktaka við Ölduselsskóla. Engar upplýsingar sé að fá um ástæðuna. Loka þurfti skólanum vegna öryggismála eftir uppsögnina. Borgin biðst afsökunar á því hvernig staðið var að málinu.

Innlent
Fréttamynd

„Þetta kom okkur al­gjör­lega í opna skjöldu“

Reykjavíkurborg harmar hvernig staðið var að uppsögn verktaka í Ölduselsskóla, en starfsmenn skólans urðu vitni að orðaskaki fulltrúa beggja aðila í kjölfar uppsagnar. Verktakinn hafnar því að borgin hafi margoft krafist úrbóta. 

Innlent
Fréttamynd

Segja verktakann hafa fallið á prófinu

Reykjavíkurborg segir að verktaki sem kom að framkvæmdum í Ölduselsskóla í Breiðholti hafi ekki uppfyllt gæðakröfur við frágang á verkinu. Vegna þessa var ákveðið að slaufa samstarfinu og fá annan í staðinn. Hættuástand skapaðist við skólann eftir að verktakinn tók saman búnað sinn í gær. Til stendur að hefja skólastarf samkvæmt stundatöflu á mánudag.

Innlent
Fréttamynd

Hafa til sunnu­dags að breyta dvalar­tíma upp á nýju gjöldin

Foreldrar leikskólabarna í Reykjavík verða að breyta dvalartíma barna sinna fyrir miðnætti á sunnudag vilji þau að greiðsluseðill í apríl taki mið af breyttri gjaldskrá. Sviðsstjóri á skóla- og frístundasviði segir borgina vinna að því að finna aðrar leiðir og ekki sé þörf á panikki. Umsóknarkerfið verður fryst á mánudag í sex vikur vegna „stóru innritunarinnar“ fyrir haustið.

Innlent
Fréttamynd

Skóli blásinn af og for­eldrar eitt stórt spurningar­merki

Skólahald í öllum tíu árgöngum Ölduselsskóla í Breiðholti í Reykjavík hefur verið fellt niður á morgun með skömmum fyrirvara með hagsmuni og öryggi barna og starfsfólks að leiðarljósi. Foreldrar barna í skólanum skilja hvorki upp né niður og velta fyrir sér hvað hafi eiginlega komið upp á.

Innlent