„Við erum óþolinmóð“ Smári Jökull Jónsson skrifar 2. október 2026 14:54 Hildur Ingvarsdóttir er skólastjóri Tækniskólans en formlegar viðræður eru hafnar á milli forráðamanna skólans og Reykjavíkurborgar um nýja staðsetningu hans. Vísir/Ívar Fannar/Arnar Hildur Ingvarsdóttir skólastjóri Tækniskólans segir að engum dyrum sé lokað þó að formlegar viðræður við Reykjavíkurborg séu hafnar um nýja staðsetningu skólans. Verið sé að skoða fleiri en einn möguleika í austurhluta borgarinnar og það sé lykiláhersla af beggja hálfu að vinna málið hratt.
Greint var frá því í sameiginlegri yfirlýsingu Hafnarfjarðar og Tækniskólans þann 14. september að samkomulag aðilanna um uppbyggingu nýs húsnæðis við Flensborgarhöfn væri farið út um þúfur þar sem Hafnarfjarðarbæ hefði ekki tekist að útvega skólanum lóð líkt og fyrirhugað var. Í kjölfarið lýsti Hildur Björnsdóttir borgarstjóri yfir áhuga á að finna skólanum nýjan stað innan borgarmarkanna og í gær samþykkti borgarráð samhljóða að skipa viðræðuhóp sem hefði umboð til að semja við Tækniskólann um uppbyggingu nýs skóla. Forráðamenn Tækniskólans og Reykjavíkurborgar hafa átt í óformlegum samtölum síðustu vikur og segir Hildur Ingvarsdóttir skólastjóri skólans að það sem breytist nú sé að málið verði unnið með formlegri hætti. „Nú förum við að skoða þetta skipulega og við erum að hittast í fyrsta skipti í dag. Ég reikna með að þá byrjum við að skoða lóðamöguleika í sameiningu og stilla saman strengi. Svo bara ræðst framhaldið af því,“ sagði skólastjórinn í samtali við Vísi og bætti við að hún vonaðist til að hægt væri að vinna málið hratt og vel. „Ég held að það sé lykiláhersla af beggja hálfu. Við erum óþolinmóð, við skulum segja það. En við viljum vinna þetta vel en ganga rösklega til verks.“ Útilokar ekki önnur sveitarfélög Að sögn Hildar hefur skólinn átt í óformlegum viðræðum við fleiri sveitarfélög en Reykjavík. „Þetta er það fyrsta þar sem þetta skref er stigið. Við höfum verið skýr með það að við ætlum að halda okkur á höfuðborgarsvæðinu,“ segir Hildur og segir koma til greina að hefja formlegar viðræður við fleiri sveitarfélög. „Við útilokum enga kosti. Á endanum viljum við bara fá bestu lóðina sem kostur er á á höfuðborgarsvæðinu. Við lokum engum dyrum þó að við förum í viðræður við Reykjavíkurborg.“ Í frétt Morgunblaðsins um málið er haft eftir borgarstjóra að henni finnist ákjósanlegast að nýr Tækniskóli rísi í efri byggðum Reykjavíkur. „Það er meðal annars verið að skoða upp Úlfarsárdal og norðanvert land Keldna, það má segja að við séum að skoða svæði í austurhluta borgarinnar. Við viljum bara fletta við öllum möguleikum þannig að við getum bara valið besta kostinn,“ segir Hildur skólastjóri um mögulega staðsetningu. „Það er algjör forsenda“ Að hennar sögn eru ákveðin atriði sem horfa þarf til þegar velja skal lóð undir starfsemi skólans. „Hann þarf að vera vel tengdur, bæði almenningssamgöngum og fyrir gangandi, akandi og hjólandi vegfarandur. Svo þurfum við pláss og pláss til framtíðar, við þurfum nógu góða lóð til að skólinn geti stækkað síðar. Svo viljum við líka vera í notalegu umhverfi hvort sem það er í borgarlífi eða náttúru eða hvoru tveggja.“ Áætlanir gera ráð fyrir 30.000 fermetra byggingu en Hildur segir að vilji sé til staðar til að stækka hann í 50.000 fermetra seinna meir. „Stefnan er að byggja samkvæmt ákveðinni hugmyndafræði sem við köllum Skólastræti. Það er nokkus konar göngugata innanhúss, nokkur skonar samfélag skólans sem allt okkar fjölbreytta nám hverfist í kringum,“ segir Hildur. „Þetta verður nokkuð löng bygging þó hún geti verið brotin upp að einhverju leyti. Lengri á annan veginn heldur en hinn og rúmar svokallað Skólastræti. Það er algjör forsenda og var það líka þegar stóð til að byggja í Hafnarfirði.“
Skóla- og menntamál Reykjavík Framhaldsskólar Sveitarstjórnarmál Mest lesið Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vilja hækka samræðisaldur Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Lægðardrag á leiðinni Veður Fleiri fréttir „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Sjá meira