Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Lovísa Arnardóttir skrifar 2. október 2026 07:14 Munur er á lokaeinkunn og einkunn fyrir verkefni eða próf. Vísir/Anton Brink Mennta- og barnamálaráðuneytið segir markmið fyrirhugaðra breytinga á námsmati við lok grunnskóla að gera framsetningu einkunna skýrari og samræmdari og þannig stuðla að auknu jafnræði nemenda, óháð því hvaða skóla þeir sækja. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ráðuneytinu en þar er einnig farið ítarlega yfir merkingu hverrar einkunnar fyrir sig.
Í nýju námsmati er samkvæmt tilkynningu gerður greinarmunur á lokaeinkunn og einkunn fyrir einstaka verkefni og próf. Í tilkynningu segir að þegar komi að námsmati á verkefnum og einstaka prófum megi nota einkunnakvarðann 1 til 10 og þá geti einkunnin 7 merkt að nemandinn hafi náð 70 prósent árangri í viðkomandi verkefni eða prófi. Sé hins vegar um að ræða lokaeinkunn nemanda eftir heilt skólaár skuli hún birt á kvarðanum 4 til 10. Lokaeinkunn ekki sama og verkefnaeinkunn „Hér er afar mikilvægt að hafa í huga að lokaeinkunn samkvæmt aðalnámskrá er mat á „hæfni” nemenda eftir heilt skólaár en er ekki einkunn fyrir eitt lokapróf. Nemendur fá ýmis konar leiðsögn og endurgjöf yfir skólaárið sem felur ekki alltaf í sér eina einkunn. Hæfniviðmið aðalnámskrár sem kennarar byggja kennslu á eru lýsing á því sem nemandi á að hafa náð tökum á,“ segir um þetta í tilkynningu mennta- og barnamálaráðuneytisins. Merking lokaeinkunna er svona í nýju námsmati samkvæmt tilkynningu ráðuneytisins: Einkunnin 4 sýnir að hæfniviðmiðum hefur ekki verið náð. Einkunnirnar 5 og 6 lýsa stigvaxandi hæfni hjá nemandanum. Einkunnin 7 sýnir að nemandinn hefur náð lágmarksviðmiði til að hefja nám á öðru hæfniþrepi framhaldsskóla í íslensku, stærðfræði og ensku. Einkunnirnar 8–10 lýsa stigvaxandi dýpt, öryggi, sjálfstæði og aukinni færni í að beita þekkingu. Þannig fær nemandi 9 eða 10 fyrir framúrskarandi tök á þeirri hæfni sem gerð er krafa um í grunnskóla. Að gefnu tilefni er tekið fram að ekki er gerð krafa um að slíkur nemandi þurfi að ljúka framhaldsskólaáfanga. Í tilkynningu segir að samhliða breytingu á námsmati sé stefnt að því að bæta upplýsingagjöf til nemenda og foreldra þannig að þeir eigi auðveldara með að átta sig á stöðu í námi, framförum og þeirri hæfni sem nemandinn hefur náð. Inga Sæland kynnti breytingarnar í sumar. Vísir/Anton Brink Í tilkynningu ráðuneytisins er fjallað nokkuð ítarlega um muninn á verkefna- eða prófaeinkunn og lokaeinkunn. Þar segir að lokaeinkunn sé annars eðlis og skuli lýsa hæfni sem nemandi hafi náð eftir heilt skólaár. Við lokamat á hæfni nemenda sé því litið til allra verkefna, prófa og annarrar frammistöðu sem nemandi hefur sýnt af sér yfir allan veturinn. Ekki forsvaranlegt að gefa einn, tvo eða þrjá Þá kemur fram að ekki sé talið forsvaranlegt að gefa barni lokaeinkunnina 1, 2 eða 3 eftir heilt skólaár. Lokaeinkunn í grunnskóla eigi fyrst og fremst að meta stöðu nemandans í námi. Einkunnin fjórir segi einfaldlega að hæfniviðmiðum hafi ekki verið náð og þá fylgir umsögn með lokaeinkunn sem segir hvar nemandinn stendur og hvað þarf að bæta. „Eins og fyrr segir þá er lokaeinkunn byggð á frammistöðu alls skólaársins en ekki einu prófi. Að sjálfsögðu geta nemendur fengið 1–4 í einkunn fyrir einstök próf og verkefni sem tekin eru á skólaárinu. Fái nemandi ítrekaðar einkunnir á bilinu 1–4 kallar það eftir viðbrögðum skólans í formi aukins stuðnings eða einstaklingsmiðaðs náms,“ segir að lokum. Breyting á kvarða sé ekki til hins betra Grunnskólakennari gagnrýndi nýjan kvarða fyrr í vikunni og spurði í hvaða vitleysu einkunnakerfi hérlendis væru stödd. Reglugerð um nýja einkunnagjöf sem eigi að innleiða í vor sé ekki úthugsuð en það þurfi fyrst að breyta aðalnámskrá og því næst eigi að setja upp kvarða sem passi fyrir þá aðalnámskrá. Það sé skammsýni að telja að nýr kvarði verði breyting til hins betra. Þann 7. ágúst tilkynnti menntamálaráðherra um breytingar á námsmati í grunnskóla. Einkunnir verða birtar í tölum í stað bókstafa og verða breytingarnar innleiddar í tveimur áföngum, í 10. bekk næsta vor og 4. og 7. bekk vorið 2028. Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambandsins, sagði um breytingarnar í sumar að kennarar hefðu viljað samráð frekar en samtal um ákvörðun er varðar breytt námsmat í grunnskólum landsins. Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur mikill hiti verið á fundum kennara, skólastjórnenda og fulltrúa ráðuneytisins síðustu daga.
Skóla- og menntamál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Grunnskólar Börn og uppeldi Tengdar fréttir Nemendum mismunað með ósamræmi einkunna Barna- og menntamálaráðherra segir misræmi í einkunnagjöf við útskrift nemenda úr grunnskóla búa til falskt öryggi. Verið sé að mismuna nemendum sem komast ef til vill ekki í sitt fyrsta val um framhaldsskóla vegna þessa. Þá er hún döpur yfir fylgi Flokks fólksins sem mælist utan þings. 2. júlí 2026 08:20 Einkunnir verða birtar í tölustöfum í stað bókstafa Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur hrint af stað breytingum á námsmati í grunnskólum með það að markmiði að gera einkunnagjöf skýrari. Meðal áforma er að einkunnir verði birtar í tölustöfum í stað bókstafa. 7. ágúst 2026 14:09 Bókstafir verði að tölustöfum Áform mennta- og barnamálaráðuneytisins um breytingar á námsmatshluta aðalnámskrár grunnskóla sem miða að því að námsmat verði sett fram með tölum en ekki bókstöfum hafa verið kynnt í samráðsgátt stjórnvalda. Ráðgert er að allar lokaeinkunnir verði settar fram í tölum og að kvarðinn verði skyldubundinn við lok fjórða, sjöunda og tíunda bekkjar. 27. maí 2026 15:28 Mest lesið Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Innlent Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Innlent Ungmenni gripin við innbrot Innlent Fleiri fréttir Seðlabankinn lagði Þorstein Má Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Geta nú lokað Reykjanesbrautinni með fjarstýringu Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Ungmenni gripin við innbrot „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Sjá meira
Nemendum mismunað með ósamræmi einkunna Barna- og menntamálaráðherra segir misræmi í einkunnagjöf við útskrift nemenda úr grunnskóla búa til falskt öryggi. Verið sé að mismuna nemendum sem komast ef til vill ekki í sitt fyrsta val um framhaldsskóla vegna þessa. Þá er hún döpur yfir fylgi Flokks fólksins sem mælist utan þings. 2. júlí 2026 08:20
Einkunnir verða birtar í tölustöfum í stað bókstafa Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur hrint af stað breytingum á námsmati í grunnskólum með það að markmiði að gera einkunnagjöf skýrari. Meðal áforma er að einkunnir verði birtar í tölustöfum í stað bókstafa. 7. ágúst 2026 14:09
Bókstafir verði að tölustöfum Áform mennta- og barnamálaráðuneytisins um breytingar á námsmatshluta aðalnámskrár grunnskóla sem miða að því að námsmat verði sett fram með tölum en ekki bókstöfum hafa verið kynnt í samráðsgátt stjórnvalda. Ráðgert er að allar lokaeinkunnir verði settar fram í tölum og að kvarðinn verði skyldubundinn við lok fjórða, sjöunda og tíunda bekkjar. 27. maí 2026 15:28