Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson skrifar 6. október 2026 10:02 Það vakti verðskuldaða athygli í upphafi árs þegar Inga Sæland, nýr mennta- og barnamálaráðherra, gekk vasklega fram með aðgerðir til að bæta íslenskt menntakerfi. Símafriður, skýrari einkunnagjöf og lenging skólaársins. Við hjá Heimili og skóla, landssamtökum foreldra, fögnuðum þessum aðgerðum. Það sem gerðist næst olli okkur vonbrigðum. Í stað þess að ræða hvernig bæta megi nám barna, beindist umræðan að því að gera lítið úr staðreyndum og hreinlega rangfærslum. Formaður Kennarasambands Íslands, Magnús Þór Jónsson, hélt því fram opinberlega að kennsludagar í íslenskum grunnskólum væru 180 og að það væri sambærilegt á öllum hinum Norðurlöndunum. Hvorugt er rétt. Kennsludagar eru ekki 180, heldur um 170 Samkvæmt grunnskólalögum eru skóladagar nemenda 180, en af þeim eru kennsludagar aðeins um 170. Þetta er í samræmi við gögn OECD og Eurydice og kemur skýrt fram í minnisblaði mennta- og barnamálaráðuneytisins. Munurinn skiptir máli, því inni í 180 dögunum eru dagar þar sem lítil sem engin kennsla fer fram: Skólasetning getur náð yfir tvo daga, þar sem hver nemandi mætir aðeins í 10 til 15 mínútur annan daginn. Þetta er ekki kennsludagur. Jólaball í tvær klukkustundir, þar sem engin kennsla fer fram, er ekki kennsludagur. Foreldraviðtal oft haldið tvisvar á ári í 10 til 15 mínútur er ekki kennsludagur. Skólaslit, þar sem nemendur mæta í stutta samveru en ekki kennslu, er ekki kennsludagur. Allir þessir dagar teljast samt inn í 180 daga skólaársins. Að kalla þá „kennsludaga" er einfaldlega rangt. Skólaárið er ekki sambærilegt á Norðurlöndunum. Önnur fullyrðingin stenst ekki heldur. Samkvæmt OECD og Eurydice er skólaárið á Íslandi 30 dögum styttra en í Danmörku, 20 dögum styttra en í Noregi, 17 dögum styttra en í Finnlandi og 8 dögum styttra en í Svíþjóð. Dönsk börn fá um 40% fleiri kennslustundir en íslensk börn, sem samsvarar um fjórum heilum kennsluárum yfir grunnskólagönguna. Fullyrðing um að þetta sé „sambærilegt á öllum hinum Norðurlöndunum" stenst því enga skoðun. Erindi til Kennarasambandsins Stjórn Heimilis og skóla hefur ákveðið að senda erindi til stjórnar Kennarasambandsins og óska eftir því að kannað verði hvort ummæli formannsins samrýmist siðareglum sambandsins. Erindi stjórnar Heimilis og skóla til Kennarasambands Íslands Við berum fulla virðingu fyrir kennurum og styðjum að þeir búi við góð kjör og starfsaðstæður. En þegar forystumaður Kennarasambandsins gengur fram með rangfærslur um skólastarf á opinberum vettvangi hefur það vissulega áhrif. Um hvað á skólaþróun að snúast? Skólaþróun á Íslandi á ekki að snúast fyrst og fremst um kjarabaráttu kennara. Hún á að snúast um nemendur, um árangur þeirra og um hvernig við gerum íslenskt menntakerfi betra. Því miður vekur það ugg að í nýjustu tillögum ráðherra til að bæta námsárangur barna í kjölfar PISA er ekkert um lengingu skólaársins. Maður hlýtur að spyrja sig hvort rangfærslurnar og upplýsingaóreiðan, sem haldið var uppi þegar málið kom fyrst fram, hafi orðið til þess að bakkað var með það. Ef svo er, þá hefur kjarabarátta kennara bitnað á börnunum, ekki er lengur hægt að ræða málin út frá staðreyndum, og íslensk börn fá ekki skólaár sem er raunverulega sambærilegt, í lengd, kennsludögum og tíma, við það sem jafnaldrar þeirra á Norðurlöndunum njóta. Heimili og skóli, landssamtök foreldra, skora á Ingu Sæland mennta- og barnamálaráðherra að gefast ekki upp fyrir kjarabaráttu kennara, heldur endurvekja áform um að lengja og styrkja skólaárið, íslenskum börnum til aukins árangurs. Börnin okkar eiga það skilið að ákvarðanir um skólann þeirra byggi á staðreyndum, og að hagsmunir þeirra séu settir í fyrsta sæti. Höfundur er faðir þriggja barna í leik- og grunnskóla og formaður Heimilis og skóla, landssamtaka foreldra. Heimildir: Lög um grunnskóla.Frétt af vef mennta og barnamálaráðuneytisins „Nánari skilgreining á skóladögum nemenda”.Frétt á vef umboðsmanni barna.Frétt á vef mennta og barnamálaráðuneytisins.Frétt af vef Kennarasambandsins frá 28.03.2026. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kjaramál Skóla- og menntamál Mest lesið Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir Skoðun Til kall Drífa Snædal Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Skoðun Alnetið er dautt! Lengi tóri lýðræðið! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Til hvers ætlum við að virkja? Andrés Kristjánsson skrifar Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason skrifar Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Ábyrg sýn í málefnum útlendinga Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar Skoðun Þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason skrifar Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Til kall Drífa Snædal skrifar Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Atlaga að fátækt Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason skrifar Skoðun Hvernig tala ég við barnið mitt um netið? Skúli Bragi Geirdal skrifar Skoðun Ríkið þrengir að frelsi og samkeppni á fjölmiðlamarkaði Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Öll börn eru hluti af liðinu Thelma Dögg Grétarsdóttir skrifar Skoðun Heljarhestar um veturnætur Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson skrifar Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Málshraðasögur Dvalarleyfi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir skrifar Skoðun Hugsjónasvelta Reykjavík Líf Magneudóttir ,Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Sjá meira
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar
Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar
Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun