Kjaramál
1 2 3 4 5 6 … 181 ›
Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Formaður Eflingar segir það blákalda og augljósa staðreynd að formaður VR reyni að sölsa undir sig ASÍ með tillögu sinni um fækkun varaforseta. Formaður VR segir um að ræða samsæriskenningar, núverandi fyrirkomulag sé ólýðræðislegt. Útlit er fyrir spennandi landsþing ASÍ. Innlent 13.10.2026 16:06
Mikilvæg niðurstaða fyrir launafólk Niðurstaða viðræðna um forsendur kjarasamninganna er mikið fagnaðarefni. Samningarnir halda og jafnframt hefur náðst fram mikilvæg niðurstaða í málum sem geta skilað launafólki verulegum lífskjarabótum á næstu árum. Skoðun 13.10.2026 12:46
Vona að ágreiningur liti ekki þing ASÍ Frambjóðendur til forseta ASÍ vona að ágreiningur síðustu daga vegna endurskoðunar kjarasamninga hafi ekki of mikil áhrif á þing ASÍ sem hefst á morgun. Þeir eru sammála um að verkalýðshreyfingin eigi að hafa frumkvæði að breytingum á vinnumarkaðsmódelinu en eru ekki endilega sammála um hvernig eigi að gera það. Þeir segja kosningabaráttuna háða að mestu af þeim sjálfum. Það sé „engin maskína“ eða peningar að baki baráttunni. Innlent 13.10.2026 10:03
60 milljarðarnir sem enginn talar um Nú styttist í næstu aðgerðir hjá meirihlutanum hjá Reykjavíkurborg miðað við orð borgarstjóra. Þar eru störf fólks líklega undir eins og í síðustu aðgerðum en meirihlutinn hefur lagt mikla áherslu á launakostnað og nauðsyn þess að fækka starfsfólki. Skoðun 13.10.2026 07:31
Engin óbirt loforð eða leynilegt samkomulag Engin óbirt loforð eða leynilegt samkomulag fylgdu niðurstöðunni við VR og fagfélögin, að sögn Bjarna Benediktssonar, framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins. Hann segir enga innistæðu fyrir tortryggni Sólveigar Önnu Jónsdóttur, formanns Eflingar, og segist treysta sér til áframhaldandi samstarfs við verkalýðshreyfinguna þótt hún telji traustið til hans horfið. Innlent 12.10.2026 12:35
Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar segir Samtök atvinnulífsins, SA, hafa valið ófrið við Eflingu og sakar Bjarna Benediktsson framkvæmdastjóra SA um að bjóða upp á klæki í stað heiðarlegra samskipta. Hún segir það ekki hennar hlutverk að stilla til friðar í verkalýðshreyfingunni en átök hennar og formanns VR hafa verið til umræðu í aðdraganda þings ASÍ í vikunni. Innlent 12.10.2026 09:31
Hver vængstýfði hvern við samningaborðið? Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, er enginn nýgræðingur við samningaborðið. Þar fór gamalreyndur hákarl sem hafði mánuðum saman sagt verkalýðsforystunni að ekkert væri til skiptanna. Skoðun 12.10.2026 08:32
„Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Halla Gunnarsdóttir formaður VR segir að svo virðist vera sem Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar hafi hana á heilanum. Hún segir ósætti þeirra á milli algjöra einstefnugötu, ekkert sé til í því að forsætisráðherra hafi sagt ósatt um vaxtabótaauka sem til hafi komið eftir samningaviðræður VR og Samtaka atvinnulífsins. Innlent 11.10.2026 12:25
„Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Formaður Starfsgreinasambandsins segist hafa áhyggjur af stöðunni innan Alþýðusambands Íslands en ársþing sambandsins hefst í næstu viku. Vilhjálmur Birgisson var gestur á Sprengisandi í morgun þar sem hann fór yfir atburðarásina í vikunni þegar kjarasamningar voru framlengdir. Innlent 11.10.2026 12:00
Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Fádæma góðir gestir verma sætin í hljóðverinu á Sprengisandi í dag. Fjörutíu ár eru liðin frá Höfðafundinum og skærur í verkalýðshreyfingunni eru meðal umfjöllunarefna þáttarins í stjórn Páls Magnússonar sem hefst klukkan tíu. Innlent 11.10.2026 09:30
Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar segist telja Höllu Gunnarsdóttur formann VR munu gera tilraun til að sölsa undir sig Alþýðusambands Íslands á aðalþingi sambandsins í næstu viku. Hún segir Höllu hafa komist upp með að draga Samtök atvinnulífsins og stjórnvöld á asnaeyrum án afleiðinga, þvert á móti hafi hún verið verðlaunuð fyrir það í stað þess að trúnaði væri haldið við forystu verka- og láglaunafólks. Því muni fylgja alvarlegar afleiðingar. Innlent 10.10.2026 15:27
Handbremsubeygja inn í haustið Enn og aftur hefur ríkisstjórnin lagt fram frumvarp til laga sem allir – að Stefáni Ólafssyni félagsfræðingi undanskildum – eru sammála um að sé ígildi efnahagslegs sjálfsmarks, svo ekki sé sterkar að orði kveðið. Innherji 10.10.2026 11:59
Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Rætt hefur verið við Katrínu Jakobsdóttur, fyrrverandi forsætisráðherra, um að bjóða sig fram til forseta Alþýðusambands Íslands. Hún staðfestir að hún ætli ekki fram. Nýr forseti verður kjörinn á þingi sambandsins í næstu viku. Innlent 9.10.2026 17:27
Hvenær á að segja upp kjarasamningum? Þá er snarpri lotu um kjaramál lokið, lotu sem hófst í mars 2024 þegar kjarasamningar á almennum markaði voru undirritaðir. Skoðun 9.10.2026 14:30
Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Viðbótarkostnaður ríkissjóðs vegna aðgerðanna sem kynntar voru í gær til að tryggja sátt á vinnumarkaði nemur 1,6 milljörðum króna, að sögn Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra. Hún segir fyrri aðgerðapakka hafa numið tugum milljarða en áherslan nú hafi verið á breytingar á úrræðum og nýtingu fjár sem þegar hafði verið tekið frá. Innlent 9.10.2026 13:46
Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Formaður VR segir skrýtið að standa í metingi við leiðtoga verkalýðsfélaga um niðurstöður kjarasamninga og að það sé rangt að ekkert hafi breyst frá því breiðfylkingin samdi á þriðjudag og þar til VR skrifaði undir samning í gær. Hún segir afskipti formanns Eflingar af innra starfi VR vera með ólíkindum. Innlent 9.10.2026 12:02
Næsta verðhækkun á ekki að vera sjálfgefin Ríkisstjórnin hefur lýst sig reiðubúna til að takmarka hækkanir almennra krónutölugjalda og gjaldskráa ríkisstofnana við 2,5% í stað 5,2%, ef kjarasamningar halda og aðrir leggja sitt af mörkum. Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga hefur lýst yfir vilja til að halda hækkunum almennra gjaldskráa innan 2,5% árið 2027, í sama tilgangi. Skoðun 8.10.2026 19:32
„Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Formaður Starfsgreinasambandsins segir að „fjölmiðlasirkus“ Höllu Gunnarsdóttur, formanns VR, hafi ekki skilað félagsmönnum hennar betri kjörum heldur en Breiðfylkingin svokallaða samdi um fyrr í vikunni. Breiðfylkingin hafi tryggt styttri samningstíma á meðan stytting í samningum VR sé háð verðbólgu. Innlent 8.10.2026 19:08
Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ríkið, sveitarfélög og atvinnulífið ætla að taka höndum saman til að ná niður verðbólgu svo vextir geti lækkað. Til þessa verður gripið til ýmissa aðgerða og reynt að halda aftur af hækkunum á opinberum gjöldum, vörum og þjónustu eins og auðið er. Innlent 8.10.2026 17:55
Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Forsætisráðuneytið boðaði síðdegis í dag til blaðamanna fundar um kjarasamninga. Á fundinum voru forsætisráðherra, forseti Alþýðusambands Íslands, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins og formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga. Innlent 8.10.2026 16:59
Ekki rétt sem Halla segir Bjarni Benediktsson framkvæmdastjóri SA segir ekki rétt að SA og fyrirtækin sem þau eru í forsvari fyrir hafi ekki komið til móts við stéttarfélögin í þeirri von um að halda kjarasamningum. Forsvarsfólk VR, Rafiðnaðarsambands Íslands og Fagfélaganna funda nú með SA. Félögin hafa heimild til þess að rifta kjarasamningum en frestur til þess að gera það rennur út klukkan 16. Innlent 8.10.2026 14:01
Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Forsætisráðherra hefur reynt að hafa milligöngu um lausn í kjaradeilunni við Samtök atvinnulífsins, að sögn Höllu Gunnarsdóttur, formanns VR. Hún segir viðleitnina vel metna en stöðuna enn óbreytta. Verið sé að prenta út og undirrita skjöl vegna uppsagna kjarasamninga. Innlent 8.10.2026 12:08
Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Samkomulag náðist á milli VR, Fagfélaganna og LÍV annars vegar og Samtaka atvinnulífsins hins vegar um að kjarasamningar héldu rétt fyrir klukkan fjögur í dag eða í þann mund sem frestur til að segja þeim upp vegna forsendubrests rann út. Vísir fylgist með þróun mála í fréttavakt. Innlent 8.10.2026 10:54
Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ „Það hefur alltaf legið fyrir af okkar hálfu að við værum ekki tilbúin til þess að festa okkar fólk inni í áframhaldandi launalækkunum.“ Þetta segir Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, sem hyggst slíta kjarasamningum í dag. Innlent 8.10.2026 08:04
„Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Formaður Kennarasambands Íslands segir að sambandið sé tilbúið að skoða lengingu skólaársins ef samfélagið telji það sér til framdráttar. Kennarasambandið kynnti í dag tillögur að stefnumótun í menntamálum til framtíðar þar sem það kallaði eftir samfélagslegu samtali um skólastarf. Innlent 7.10.2026 16:20
SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Hluti starfsmanna Samtaka atvinnulífsins heldur á morgun í árshátíðarferð til eyjunnar Hvar við strendur Króatíu, sama dag og frestur til þess að slíta kjarasamningum rennur út. Innlent 7.10.2026 15:53
Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Formaður VR segir stöðuna í viðræðum félagsins við Samtök atvinnulífsins grafalvarlega og útlit sé fyrir að þær séu leið inn í blindgötu. Framkvæmdastjóri SA segir stál í stál eins og sakir standa. Innlent 7.10.2026 14:20
Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Það er skammsýni að leggja mikla áherslu á launahækkanir við núverandi aðstæður, að mati Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra. Hann segir lægri verðbólgu og lægri vexti vera það sem íslensk heimili þurfi helst á að halda og hafnar fullyrðingum um að laun hafi ekki áhrif á verðbólgu. Innlent 7.10.2026 13:04
Sex atvinnulausir um hvert laust starf Um sex atvinnulausir eru um hvert laust starf og hlutfallið hefur ekki verið svo hátt frá því í farsóttinni. Seðlabankastjóri viðurkennir hættu á að vöxtum verði haldið of háum of lengi og atvinnuleysi aukist meira en nauðsynlegt sé. Innlent 7.10.2026 12:51
Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Formaður Eflingar segir það glapræði að hafna tæplega fimm prósenta launahækkun sem sé væntanleg í janúar samkvæmt núgildandi kjarasamningum. Hún segir það setja þau í undarlega stöðu ætli VR að efna til átaka á vinnumarkaði. Formaður VR gefur lítið fyrir þessi ummæli og reynir félagið nú að ná lendingu með Samtökum atvinnulífsins í Karphúsinu. Innlent 7.10.2026 12:09