Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson skrifar 28. október 2026 07:15 Systurflokkur Samfylkingarinnar í Danmörku heitir Socialdemokratiet, eða danski Jafnaðarmannaflokkurinn. Honum er stýrt af Mette Frederiksen. Um hana hefur Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar farið fögrum orðum. Á Alþingi 30. apríl sl. í umræðu um stefnu í málefnum innflytjenda sagði Kristrún orðrétt: „Ég hef rætt þennan málaflokk margsinnis við flokkssystur mína Mette Frederiksen, og geri mér alveg fyllilega grein fyrir því hvað er í gangi í Danmörku.“ Hvað er það sem Kristrún veit að „er í gangi í Danmörku“? Hvað er það sem Mette Frederiksen hefur um þessi mál að segja? Mette fer ekki í felur með afstöðu sína. Orðin eru afdráttarlaus: Hér eru nokkur ummæli hennar: Ógnin kemur frá fólki með íslamskan bakgrunn (Í ræðu á danska þinginu í ágúst 2026): Á danska þinginu sagði Mette að ógn Evrópu væri ekki eingöngu utanaðkomandi heldur væri öflugur óvinur tekinn að vaxa innan frá og þar væri um að ræða útlendinga sem komið hefðu til Evrópu. Hún bætti við að ógnin kæmi frá fólki með íslamskan bakgrunn sem vildi ekki opið og frjálst evrópskt samfélag. Um innflytjendur frá MENAPT-löndum (í svari á danska þinginu 8. apríl 2025): Í umræðum á danska þinginu sagðist Mette vilja taka af allan vafa um að hún og hennar flokkur stæðu fyrir strangri löggjöf hvað varðar málefni innflytjenda. Hún sagði það vera „… vegna þess að sérstaklega innflutningur fólks frá viðkomandi löndum [MENAPT] hefur haft alltof miklar afleiðingar fyrir land okkar.“ Hún bætti þvi svo við að þau myndu „..herða reglurnarnar svo við getum hent út fleirum sem fremja glæpi í Danmörku“. Um lífsgildi múslima með danskt ríksifang (í þingumræðu á danska þinginu 28. mars 2025): Í umræðu benti hún á of margir þeirra sem nú eru hluti af Evrópu deila ekki grundvallarlýðræðisgildum með þeim sem fyrir eru. Vísaði hún m.a. í könnun sem sýndi að meira en helmingur danskra múslima myndi ekki sætta sig við að barn þeirra vildi lifa opinskátt sem samkynhneigt. Þá benti hún á að um þriðjungur múslima í Danmörku væri að nokkru eða miklu leyti hliðhollur hryðjuverkasamtökunum Hamas. Um samfélagsbreytingar (á ársfundi flokks síns 12. september 2026): Í ræðu á ársfundi Socialdemokratiet sagði hún að staða Danmerkur væri slæm og vék tali sínu sérstaklega að Múslimum Hún sagði meðal annars: „Mikill innflutningur fólks hefur gert samfélag okkar óöruggara og dregið úr öryggistilfinningu fólks.“ Dæmi um afstöðu Mette Frederiksen eru mörg. Sum jafnvel hvassari en að ofan greinir. Ég held samt að þessi bútur úr ræðu hennar á danska þjóðþinginu segi margt um það hvernig við mörg viljum að þingmenn okkar hugsi og tali: „Ég vil hvetja alla...til að halda áfram að vinna saman að því að fylgja eins strangri útlendingastefnu og mögulegt er. Ef við viljum samfélag sem einkennist af samheldni, frelsi og öryggi, er þetta það allra mikilvægasta sem við þurfum að gera og eitt af okkar allra mikilvægustu verkefnum.“ Hann er hvass tónn leiðtoga jafnaðarmanna í Danmörku. Jafnvel hvassari en sá sem fulltrúar Samfylkingarinnar keppast við að gagnrýna hér á landi og fordæma sem rasisma. Mette sagði þessi orð. Spurningin er því einföld: Telja fulltrúar Samfylkingarinnar þau rasísk? Telja þeir tilefni til að ræða þau með vísan til hegningarlaga ef þau eru sett fram hér á landi? Eða breytist mælikvarðinn eftir því hver talar? Höfundur er bæjarstjóri Ölfuss. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Elliði Vignisson Mest lesið Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson Skoðun Takk fyrir, ferðamaður! Björgvin Jóhannesson Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason Skoðun Nýr einkunnakvarði er aðeins hluti af sögunni Margrét Lilja Pálsdóttir Skoðun Skilaboð til landsbyggðarinnar Trausti Hjaltason Skoðun Viðreisn einfaldar regluverk og minnkar báknið Hanna Katrín Friðriksson Skoðun Skoðun Skoðun Öll börn eru hluti af liðinu Thelma Dögg Grétarsdóttir skrifar Skoðun Heljarhestar um veturnætur Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson skrifar Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Málshraðasögur Dvalarleyfi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir skrifar Skoðun Hugsjónasvelta Reykjavík Líf Magneudóttir ,Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Málverkið og mælikvarðinn - Um litadýrð, líffræði og fegurð Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Um Stafræna heilsu: Karp er best með forsjá Alma D. Möller skrifar Skoðun Piparsveinar fagna nýútkominni skýrslu um strandveiðar Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Loftbrúin fjarlægist skosku leiðina Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar Skoðun Þingmaðurinn sem ruglaði saman gagnrýni og andstöðu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Að segja satt frá og gera það strax! Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar Skoðun Takk fyrir, ferðamaður! Björgvin Jóhannesson skrifar Skoðun Sérstaða Íslands: forskot eða fjötur um fót? Hugrún Elvarsdóttir skrifar Skoðun Í framlínu náttúruverndar í 50 ár Magnús Hallur Jónsson skrifar Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar Skoðun Viðreisn einfaldar regluverk og minnkar báknið Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun Kvittanirnar segja meira en pólitískar fyrirsagnir Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason skrifar Skoðun Hefði Evrópa getað keypt sigur á Rússum fyrir tveimur árum?! Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Það er dýrt að hafa lítið val Svanfríður Bergvinsdóttir,Andri Ólafsson skrifar Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar Sjá meira
Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar
Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar
Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar
Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar
Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar
Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar