Skoðun

Of­beldi kemur ekki úr vega­bréfi. Það sprettur af fá­tækt, úti­lokun og lygum

Ian McDonald skrifar

Það er auðvelt að kenna innflytjendum um ofbeldi. Það gefur fólki andlit til að beina reiði sinni að. En það skýrir ekkert og gerir engan öruggari.

Hvar sem ofbeldi hefur verið rannsakað eru það sömu þættirnir sem spá fyrir um það: fátækt, ótryggt húsnæði, atvinnuleysi og fólk sem hefur verið ýtt út á jaðarinn og á engan hlut í samfélaginu í kringum sig. Fæðingarstaður er ekki á þeim lista. Það sem verður um fólk eftir að það kemur er það.

Þann 1. janúar 2026 voru innflytjendur 77.226 talsins, eða 19,6% landsmanna. Þeir þrífa sjúkrahúsin okkar, standa vaktina í verslunum, vinna í fiskvinnslunni og byggja heimilin okkar. Hvergi innan OECD er hlutfall innflytjenda í vinnu hærra en á Íslandi. Við komum hingað til að vinna, og við vinnum.

Það sem við fáum ekki er raunverulegt tækifæri til að tilheyra. Aðeins um 18% innflytjenda á Íslandi segjast hafa gott vald á íslensku, samanborið við um 60% að meðaltali í öðrum OECD-ríkjum. Það stafar ekki af leti. Opinber fjárframlög til tungumálanáms fullorðinna eru lág miðað við hin Norðurlöndin, og verið er að skera þau enn frekar niður einmitt núna.

Nánast allir greiða sjálfir fyrir að læra tungumálið. Oftast kostar það tugi þúsunda króna og hundruð klukkustunda af frítíma, bara til að reyna að bjarga sér.

Ef við viljum að fólk verði hluti af samfélaginu þurfum við að opna dyrnar. Ísland hefur skellt þeim í lás.

Stjórnmálamennirnir sem hæst láta um að innflytjendur valdi ofbeldi eru ekki að reyna að opna þessar dyr. Þeir vilja loka þeim enn frekar. Snorri Másson, þingmaður Miðflokksins, hefur sagt að hann telji ekki skynsamlegt að hafa Ísland opið í stórum stíl fyrir fólki utan EES. Og þegar hann ræddi innflytjendamál og „great replacement“-kenninguna í myndbandi sagði hann: „Þetta er ekki kenning, þetta er tölfræðileg staðreynd.“

Þetta orðalag skiptir máli. Kenningin um „stóru skiptin“ (Great Replacement) er hrakin samsæriskenning hvítra þjóðernissinna sem franski rithöfundurinn Renaud Camus setti fram. Hún gengur út á að verið sé að skipta innfæddum íbúum skipulega út fyrir innflytjendur. Gögnin styðja einfaldlega ekki þessa kenningu.

Að daðra við hana, jafnvel með varfærnu orðalagi, segir fólki að nágrannar þess séu innrásarlið, og menn eins og Snorri vita nákvæmlega hvaða viðbrögð það kallar fram. Það þarf ekki annað en að líta á Twitter-síðuna hans til að sjá yfirlýsta nýnasista endurbirta og deila efni hans. Skilaboðin komast til skila og þau eru skilin.

Við höfum séð hvert þetta leiðir

Sumarið 2024 sýndi Bretland okkur það. Eftir að rangar fullyrðingar um að árásarmaðurinn í Southport væri innflytjandi breiddust út á netinu réðust óeirðaseggir á hótel sem hýstu hælisleitendur og kveiktu í þeim. Í Rotherham kveiktu óeirðaseggir í byggingunni á meðan meira en 200 manns höfðust við inni.

Lygin um það hverjir beita ofbeldi leiddi af sér ofbeldið.

Þetta er hin raunverulega hætta í þessari umræðu. Ekki ræstitæknirinn á næturvaktinni. Ekki fjölskyldan sem bíður eftir plássi á íslenskunámskeiði. Hættan stafar af stjórnmálamönnum sem líta á heilan hóp fólks sem ógn og þykjast svo hissa þegar einhver tekur þá á orðinu.

Hvað gerir okkur í raun öruggari? Sanngjörn laun. Mannsæmandi húsnæði á viðráðanlegu verði. Íslenskunámskeið sem fólk kemst raunverulega að á. Skólar sem styðja börn innflytjenda í stað þess að missa þau frá sér. Samfélag þar sem allir hafa einhverju að tapa og einhvers staðar að tilheyra.

Ef Snorri hefur svona miklar áhyggjur af því að Ísland glati sjálfsmynd sinni, að tungumálið deyi út eða af einhverri óljósri tilvistarógn, ætti hann að berjast fyrir því að auðveldara verði fyrir fólk að verða íslenskir ríkisborgarar, ekki erfiðara.

Útilokun elur af sér einmitt þau vandamál sem þessir stjórnmálamenn segjast óttast. Inngilding er ekki barnaskapur. Hún er það eina sem hefur nokkurn tíma virkað.

Höfundur er innflytjandi og verkamaður.




Skoðun

Sjá meira


×