Kvittanirnar segja meira en pólitískar fyrirsagnir Ragnar Sigurðsson skrifar 26. október 2026 21:55 Eydís Ásbjörnsdóttir heldur því fram í grein sinni á Vísi að hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi sé staðreynd. En hærri fjárheimild á blaði jafngildir ekki auknum stuðningi við íbúana. Það sést svart á hvítu á meðfylgjandi kvittunum. Eins og þingmaðurinn bendir réttilega á kostaði Loftbrúin um 740 milljónir króna í fyrra, þótt fjárheimildin væri 600 milljónir. Framlagið var vanáætlað og bæta þurfti við fjármagni, eins og gert hafði verið undanfarin ár. Að hækka vanáætlaða fjárheimild og skerða afsláttarfyrirkomulagið samhliða gerir breytinguna ekki að kjarabót fyrir landsbyggðarfólk. Skoðum raunveruleg dæmi um flug milli Egilsstaða og Reykjavíkur. Einn flugleggur í desember 2023 Í desember 2023 var afsláttur Loftbrúar af einum fluglegg 10.134 krónur. Með 9.000 króna niðurgreiðslu hefði farþeginn þurft að greiða 1.134 krónum meira fyrir nákvæmlega sama miða. Tveir flugleggir í desember 2024 Í desember 2024 var afslátturinn af ferð fram og til baka 19.934 krónur. Með nýja fyrirkomulaginu hefði hann verið 18.000 krónur. Farþeginn hefði þurft að mæta 1.934 króna mismun. Tveir flugleggir í febrúar og mars 2025 Í ferðinni frá febrúar–mars 2025 nam afslátturinn 33.454 krónum. Með 9.000 krónum á hvorn fluglegg hefði hann lækkað í 18.000 krónur. Það er 15.454 króna skerðing, eða rúmlega 46%. Sá kostnaður hefði lent á farþeganum. Tveir flugleggir í apríl og maí 2023 Í ferðinni frá apríl–maí 2023 var afslátturinn 21.774 krónur. Með nýja fyrirkomulaginu hefði hann verið 3.774 krónum lægri. Einn flugleggur árið 2022 Síðasta dæmið er einn flugleggur frá árinu 2022. Þar var afsláttur Loftbrúar 19.336 krónur. Níu þúsund króna niðurgreiðsla hefði þýtt 10.336 króna skerðingu, rúmlega helmingi minni afslátt. Þetta eru eldri miðar á þáverandi verðlagi. Níu þúsund krónur hefðu ekki einu sinni dugað til að halda stuðningnum óbreyttum þá. Í öllum þessum dæmum hefði farþeginn þurft að greiða meira. Hér þarf að greina á milli fjárheimilda og afsláttarins sjálfs. Fjárheimildir Loftbrúarinnar hafa ekki fylgt verðlagi. En 40% afslátturinn hefur fylgt miðaverðinu: þegar miðinn hækkar, hækkar niðurgreiðslan. Með fastri krónutölu hverfur sú tenging og farþeginn ber alla frekari verðhækkun. Í bókun bæjarráðs Fjarðabyggðar frá 26. október segir: „Bæjarráð Fjarðabyggðar mótmælir harðlega boðaðri skerðingu á Loftbrúnni. Leita þarf leiða til að auka stuðninginn og tryggja að hann haldi verðgildi sínu.“ Bæjarráð bendir jafnframt á nauðsyn flugsamgangna til að sækja þjónustu og hefur þungar áhyggjur af áhrifum ferðakostnaðar á þátttöku barna og ungmenna í íþrótta- og æskulýðsstarfi. Það kemur mér á óvart að þingmaðurinn skuli lýsa gagnrýni kjörinna fulltrúa sem pólitísku leikriti, sérstaklega eftir að hafa séð viðbrögð íbúanna hér. Reiðin og áhyggjurnar eru raunverulegar. Fólk sér fram á að þurfa að greiða meira fyrir að sækja nauðsynlega þjónustu og halda tengslum við sína nánustu. Þau viðbrögð eiga skilið að á þau sé hlustað. Ég virði viljann til ráðdeildar. Það er vel hægt að skera niður hjá hinu opinbera. En hér er kostnaði velt yfir á íbúana. Austfirðingar eiga að greiða meira fyrir aksturinn og fá minni afslátt af dýrari flugmiðum, á meðan svigrúm er fundið til aukinna útgjalda annars staðar. Það er pólitísk forgangsröðun sem við sættum okkur ekki við. Kvittanirnar liggja fyrir. Að kalla breytinguna eflingu breytir engu um þá staðreynd að í þessum ferðum hefði stuðningurinn lækkað og reikningur farþeganna hækkað. Formaður Sambands sveitarfélaga á Austurlandi Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ragnar Sigurðsson Mest lesið Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Læsisáætlun án bóka Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Kvittanirnar segja meira en pólitískar fyrirsagnir Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason skrifar Skoðun Hefði Evrópa getað keypt sigur á Rússum fyrir tveimur árum?! Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Það er dýrt að hafa lítið val Svanfríður Bergvinsdóttir,Andri Ólafsson skrifar Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar Skoðun Nýr einkunnakvarði er aðeins hluti af sögunni Margrét Lilja Pálsdóttir skrifar Skoðun Skilaboð til landsbyggðarinnar Trausti Hjaltason skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar vernd barns týnist milli kerfa? Inga Henriksen skrifar Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Öryggi þjóðarinnar verður ekki tryggt í Excel-skjali Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Þegar stóru ríkin verða veikasti hlekkurinn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Viðreisn – góð stefna dugar ekki ein og sér Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson skrifar Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Hallgrímskirkja heillar Sigurður Árni Þórðarson skrifar Skoðun Sameiginleg þjónusta þarf að vera aðgengileg öllum Haraldur Líndal Haraldsson skrifar Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar Skoðun Þegar báðir græða Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Opið bréf til innviðaráðherra og atvinnuvegaráðherra Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar Skoðun Bókaklúbbur borgarstjórans Michelle Spinei skrifar Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty skrifar Skoðun Nýi kaflinn í iðnsögunni Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Loftbrú: Ráðherra í 0% tengingu við landsbyggðina Ásta Kristín Pjetursdóttir skrifar Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Hver á takkana? Þegar aðrir snerta gömul sálræn sár Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Orð eru ekki heldur stefna – opið bréf til bæjarstjóra Ölfuss Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Aðeins annar hluti jöfnunnar er ekki nóg Sveinn Ólafsson skrifar Sjá meira
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar
Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar
Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar
Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun