Reykjavík

Reykjavík

Mannfjöldi: 138.772 (2025). Flatarmál: 244 ferkílómetrar.


Fréttamynd

Rúta valt á Kjalar­nesi

Tveir voru fluttir til skoðunar eftir að lítil rúta valt á Kjalarnesi um klukkan 14 í dag. Aðgerðum er lokið á vettvangi.

Innlent
Fréttamynd

Hleypt inn í hollum í Vesturbæjarlaug

Á föstudaginn langa, í gær, var svo mikið að gera í Vesturbæjarlaug að hleypt var inn í hollum. Vaktstjóri segir gesti mega búast við álíka önnum á morgun, páskadag.

Innlent
Fréttamynd

Mæla gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni

Snjóflóðavakt Veðurstofunnar mælir gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni og að göngufólk á höfuðborgarsvæðinu hugi vel að leiðarvali. Í tilkynningu frá snjóflóðavaktinni kemur fram að snjó hafi bætt við víða á landinu í gær og að léleg binding sé við eldri snjó. Víða séu veikleikar í kringum höfuðborgarsvæðið.

Innlent
Fréttamynd

Brotist inn og gert sig heima­kominn

Lögreglan brást við útkalli þar sem par var sagt rífast hástöfum í verslunarmiðstöð í Reykjavík. Brotist var inn í íbúð og þegar lögreglu bar að garði hafði viðkomandi gert sig heimakominn og var búinn að róta talsvert í eigum íbúa.

Innlent
Fréttamynd

Hver ber á­byrgð á heimilis­leysi á Ís­landi?

Það er óhætt að segja að enginn kýs að vera heimilislaus, húsaskjól er jú ein af grunnþörfum fólks. Alls konar aðstæður og áföll geta hins vegar komið upp í lífi hvers og eins sem geta gert það að verkum að viðkomandi missir húsnæði.

Skoðun
Fréttamynd

Kostnaður við borgar­stjórn Reykja­víkur

Það er ekki beinlínis fallið til vinsælda að verja kerfi þar sem launakjör kjörinna fulltrúa koma við sögu og ég ætla ekki að gera tilraun til þess. Hinsvegar langar mig að varpa ljósi á kostnaðinn við kjörna fulltrúa í Reykjavík annarsvegar og stærstu sveitarfélaga landsins hinsvegar.

Skoðun
Fréttamynd

Gestum neyðarskýla fækkar veru­lega milli ára

Gestum neyðarskýla Reykjavíkurborgar hefur fækkað verulega á milli ára. Gestir gista jafnframt færri nætur að meðaltali í skýlunum. Deildarstjóri segir ánægjulegt að sjá slíka fækkun og að hana megi rekja til nýrra úrræða og betri þjónustu við heimilislausa í Reykjavík. Reykjavíkurborg stefni að frekari uppbyggingu húsnæðis á þessu ári.

Innlent
Fréttamynd

Biðin bitnar á börnunum

Í Reykjavík fer fram öflugt og fjölbreytt íþróttastarf. Slíkt starf styrkir nærsamfélög og hverfabrag og er ómetanlegt fyrir vellíðan og forvarnir barna. En í of mörgum hverfum er aðstaðan ekki í samræmi við það mikilvæga starf sem unnið er.

Skoðun
Fréttamynd

„Ég stend ekki hér út af minni for­tíð“

Nýr oddviti Flokks fólksins í Reykjavík segir að ekki sé hægt að bendla hann við flokkaflakk eftir að hafa skipt um flokk fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Hann segir mestu máli skipta að mikilvæg málefni hljóti hljómgrunn. Það sé gott að fá annað tækifæri eftir að hafa afplánað 16 ár í fangelsi. 

Innlent
Fréttamynd

Guð­mundur Ingi leiðir Flokk fólksins

Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu, verður oddviti Flokks fólksins í Reykjavík fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Hann tók þátt í prófkjöri Samfylkingarinnar fyrir sömu kosningar en var hafnað. 

Innlent
Fréttamynd

Förgun bóka á­þekk því að lóga gælu­dýrum

Þær notuðu bækur sem Bjarni bók­sali Harðar­son í Bóka­kaffinu tekur við í tonna­tali komast, eðli málsins sam­kvæmt, ekki allar í endur­sölu og enda í Sorpu­gámum. Með Bjarna sem milli­lið friðar fólk þó sam­viskuna enda segir hann förgun bóka ekki ósvipaða því að að lóga gælu­dýrum.

Lífið
Fréttamynd

Feiminn í æsku en fann sig í tískunni

„Þetta gefur mér mikinn tilgang þrátt fyrir að vera mjög krefjandi og tímafrekt. Þetta er áskorun á hverjum degi og ég bara elska þetta,“ segir hinn 22 ára gamli Haraldur Björnsson sem rekur sitt eigið fatamerki undir nafninu Coppermine. 

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Hundruðum þúsunda bóka fargað á ári hverju

Mörg hundruð þúsund bækur enda í ruslinu á hverju ári samkvæmt sviðsstjóra samskipta- og þjónustusviðs Sorpu. Ýmsum sárnar að sjá meistaraverk stórhöfunda í ruslinu en hundrað þúsund bækur fara á sölu hjá Góða hirðinum á hverju ári. Framboð sé langt umfram eftirspurn neytenda og sviðsstjórinn býður Hallgrími Helgasyni í kaffi.

Innlent
Fréttamynd

Leita að fjöl­skyldu til að vista allt að fjögur börn í neyð

Barnavernd Reykjavíkur leitar að fjölskyldu eða einstaklingi til að reka neyðarheimili í Reykjavík fyrir allt að fjögur börn í allt að þrjá mánuði. Laun fyrir slíka vistun eru um 1,5 milljónir á mánuði óháð því hvort barn dvelur á heimilinu. Aukalega er svo greitt fyrir hvert barn sem dvelur á heimilinu miðað við lengd sem það dvelur.

Innlent
Fréttamynd

Sögu­leg stund í KR heimilinu

Það var gríðarleg stemning á tónleikum rappsveitarinnar Mobb Deep síðastliðinn þriðjudag. „Það er óhætt að segja að þetta hafi verið stærstu tónleikar sem við höfum staðið fyrir hingað til,“ segir Benni B-ruff einn af lykilskipuleggjendum þessarar tónleikaveislu.

Tónlist
Fréttamynd

Neitaði að segja til nafns og hafði í hótunum við lög­reglu

Einn var handtekinn í hverfi 108 í gærkvöldi eða í nótt fyrir brot á lögreglusamþykkt. Í dagbók lögreglu kemur fram að hann hafi neitað að segja til nafns og hafi svo hótað lögreglu með ofbeldi. Fram kemur í dagbók að fjórir hafi gist í fangageymslu eftir nóttina.

Innlent