

Ólympíuleikar 2024
Fréttir af Ólympíuleikunum sem fram fóru í París í Frakklandi dagana 26. júlí til 11. ágúst 2024.

Simone Biles hoppaði upp í 3,6 metra hæð
Bandaríska fimleikakonan Simone Biles er kannski bara 142 sentímetrar á hæð en það kemur ekki veg fyrir að hún getur hoppað upp í svakalega hæðir í æfingum sínum. Þetta sýndi hún heldur betur á úrtökumótinu fyrir Ólympíuleikana í París.

Sú besta verður í París: „Vissi að ég myndi snúa aftur“
Fimleikadrottningin Simone Biles tekur þátt á Ólympíuleikunum í París. Hún hefur unnið fjögur Ólympíugull á ferli sínum til þessa.

Segir að Golden State banni Wiggins að spila á ÓL
Framkvæmdastjóri kanadíska körfuboltalandsliðsins segir að Golden State Warriors banni Andrew Wiggins að spila á Ólympíuleikunum í París. Félagið hefur aðra sögu að segja.

Reyndi að komast á Ólympíuleikana en greindist svo með þrjú óskurðtæk æxli í heila
Skoski sundgarpurinn Archie Goodburn greindist með þrjú stór óskurðtæk æxli í heila, skömmu eftir að hann freistaði þess að tryggja sér þátttökurétt á Ólympíuleikunum í París.

Fimmfaldur Ólympíumeistari keppir ekki í París
Jamaíski spretthlauparinn Elaine Thompson-Herah getur ekki bætt fleiri Ólympíuverðlaunum í glæsilegt safn sitt á leikunum í París.

Dæmdur barnaníðingur keppir fyrir hönd Hollands á Ólympíuleikunum
Hollenski strandblakarinn Steven van de Velde játaði að hafa nauðgað 12 ára barni þrisvar sinnum. Hann hefur nú tryggt sér sæti á Ólympíuleikunum í París í sumar.

Stór ákvörðun Hayes: Morgan ekki með á Ólympíuleikana
Emma Hayes, nýráðinn þjálfari bandaríska kvennalandsliðsins í knattspyrnu, var ekki lengi að láta til sín taka. Hún ákvað að skilja stórstjörnuna og tvöfalda heimsmeistarann Alex Morgan eftir heima þegar Bandaríkin halda til Parísar.

Snoop vottaði Kobe virðingu sína á hlaupabrautinni
Tónlistarmaðurinn Snoop Dogg verður í París þegar Ólympíuleikarnir fara fram. Þar mun hann starfa fyrir sjónvarpsstöðina NBC sem sýnir leikina í Bandaríkjunum. Að því tilefni hljóp hinn 52 ára gamli Snoop 200 metra á dögunum.

Ólympíumeistarinn datt í miðju hlaupi og kemst ekki til Parísar
Ekkert verður af því að Athing Mu vinni gullverðlaun í átta hundruð metra hlaupi á öðrum Ólympíuleikunum í röð.

Snæfríður Sól á Ólympíuleikana í París
Sundkonan Snæfríður Sól Jórunnardóttir mun keppa fyrir Ísland á Ólympíuleikunum sem fram fara í París síðar í sumar.

Dró fram Yu-Gi-Oh!-spil og tryggði sig inn á Ólympíuleika
Noah Lyles, ríkjandi heimsmeistari í 100 metra hlaupi karla, tryggði sig um helgina inn á Ólympíuleikana sem fram fara í París síðar í sumar. Virðist lukkugripur hans hafa hjálpað honum að þessu sinni.

Datt í garðinum heima, fótbrotnaði og missir af Ólympíuleikunum
Ekkert verður af þátttöku skosku Ólympíumeistarans Katie Archibald á leikunum í París seinna í sumar. Hún meiddist nefnilega á fremur neyðarlegan hátt á dögunum.

Þrettán ára stelpa tryggði sér sæti á Ólympíuleikunum í París
Heili Sirviö verður meðal keppenda á Ólympíuleikunum í París í sumar og skrifar þar með nýjan kafla í sögu finnskra íþrótta.

Tryggði sér Ólympíusætið og trúlofaði sig í kjölfarið
Bandaríska sundkonan Lilly King átti eftirminnilegan dag á úrtökumóti bandaríska sundlandsliðsins fyrir komandi Ólympíuleika í París.

Ennþá allt of mikið af E. coli í vatninu sem Guðlaug Edda keppir í á ÓL í París
Ísland á í fyrsta sinn keppenda í þríþrautarkeppni Ólympíuleikanna því Guðlaug Edda Hannesdóttir varð annar Íslendingurinn til að vinna sér þátttökurétt á leikunum í París.

Ólympíudraumur Eyþóru úti eftir grátlegt slys
Draumur Eyþóru Elísabetar Þórsdóttur um að keppa á þriðju Ólympíuleikunum í röð er úti eftir slys á æfingu í gær. Hún greinir frá gríðarlegum vonbrigðum á samfélagsmiðlum sínum.

Féll á lyfjaprófi en sleppur við refsingu
Bandaríski spretthlauparinn Erriyon Knighton á enn möguleika á því að keppa á Ólympíuleikunum í París í sumar þrátt fyrir að hafa fallið á lyfjaprófi í vor.

Kínverjar senda umdeilda keppendur til leiks á ÓL
Sundfólk sem kom við sögu í umfangsmiklu lyfjamáli fyrir síðustu leika hefur verið valið í Ólympíulið Kínverja fyrir leikana í París í sumar.

Ein sú besta í heimi velur heilsuna yfir Ólympíuleikana
Aryna Sabalenka mun ekki taka þátt í Ólympíuleikunum í París í sumar en hún er númer þrjú á heimslistanum í tennis.

Átján ára strákur sem átti að keppa á ÓL í sumar lést í slysi
Brimbrettastrákurinn Jackson James Rice átti að keppa á Ólympíuleikunum í París í sumar en því miður verður ekkert af því.

Vill ekki spila á Wimbledon því það gæti skemmt undirbúning fyrir Ólympíuleikana
Tenniskappinn Rafael Nadal hefur ákveðið að draga sig frá keppni á Wimbledon mótinu sem hefst 1. júlí. Á Wimbledon er spilað á grasi og Nadal vill frekar setja sína orku í að æfa á leirvelli til að ná sem bestum árangri á Ólympíuleikunum í sumar.

Hákon Þór fer á Ólympíuleikana í París
Haglabyssuskyttan Hákon Þór Svavarsson mun keppa fyrir Íslands hönd á Ólympíuleikunum í París í sumar.

Fyrsta trans konan til að vinna háskólatitil fær ekki að keppa á ÓL
Bandaríska sundkonan Lia Thomas, sem varð á sínum tíma fyrsta trans íþróttamanneskjan til að vinna NCAA háskólatitil, fær ekki að keppa á Ólympíuleikunum í París eftir að hafa tapað dómsmáli gegn Alþjóðasundsambandinu, World Aquatics.

Sakaður um tilraun til nauðgunar en sektaður fyrir að bera sig
Benoît Kounkoud, samherji Hauks Þrastarsonar hjá Kielce í Póllandi og leikmaður franska landsliðsins í handbolta, var á mánudag sektaður fyrir að bera sig á almannafæri. Hann var upprunalega sakaður um tilraun til nauðgunar.

Fötluð en fer á Ólympíuleikana í sumar
Brasilíski borðtennisspilarinn Bruna Alexandre verður í sumar fyrsti Brasilíumaðurinn til þess að hafa keppt bæði á ÓL fatlaðra og ófatlaðra.

Clark ekki valin í landsliðið: „Þeir vöktu skrímslið“
Það vakti mikla athygli um nýliðna helgi að stórstjarnan Caitlin Clark var ekki valin í bandaríska landsliðið fyrir Ólympíuleikana í sumar.

Martínez dreymir um Ólympíugull en Aston Villa meinar honum þátttöku
Markverði Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni, Emiliano Martinez, dreymir um gullverðlaun með argentínska landsliðinu á Ólympíuleikunum en segir félagið standa í vegi fyrir för hans til Parísar.

Spilaði í NBA en mun nú keppa í strandblaki á Ólympíuleikunum
Chase Budinger spilaði sjö ár í NBA-deildinni í körfubolta er er nú á leið til Parísar þar sem Ólympíuleikarnir fara fram til að keppa í strandblaki. Hinn 36 ára gamli Budinger spilar með Miles Evans en þeir tryggðu sér sæti á leikunum í dag, miðvikudag.

Þúsundir heimilislausra fluttir frá París í aðdraganda Ólympíuleika
Þúsundir heimilislausra manna hafa verið fluttir frá París og nágrenni sem hluti af hreingerningaraðgerð vegna Ólympíuleikanna sem fara fram í borginni í sumar.

Landin hættir í landsliðinu eftir Ólympíuleikana
Handboltamarkvörðurinn Niklas Landin hefur ákveðið að hætta í danska landsliðinu eftir Ólympíuleikana í sumar.