Nýsköpun

Nýsköpun

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Sprota­fyrir­tæki í al­var­legri stöðu

Framkvæmdastjóri Íslenska sjávarklasans segir nýsköpunarfyrirtæki í alvarlegri stöðu eftir að hafa fengið synjun um endurgreiðslu á kostnaði sem fylgir rannsóknum og þróun. Hann kennir auknu skrifræði um og hvetur stjórnvöld til þess að einfalda fyrirkomulagið og standa við gefin fyrirheit um stuðning.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Stefna Rann­ís vegna neitunar um endur­greiðslu

Húðvörufyrirtækið Bioeffect hefur stefnt Rannsóknamiðstöð Íslands, Rannís, vegna synjunar á umsókn félagsins um framlengingu skattafrádráttar vegna rannsókna og þróunar. Fjölmörg nýsköpunarfyrirtæki hafa átt erfitt með að sækja endurgreiðslur til Rannís, sem þar til fyrir skömmu voru auðsóttar.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Samtalshermir til að æfa okkur fyrir erfiðu og við­kvæmu sam­tölin

„Ég áttaði mig á því mjög fljótt hversu mikil áhrif þetta var að hafa á nemendur. Sem á augabragði gátu nú breytt öllu rituðu námsefni í hljóðefni, lært í göngutúrum eða hvar sem þeim hentaði, spurt spurninga og sniðið kennsluna að því hvernig þau vildu læra en ekki hvernig ég vildi kenna,“ segir Hinrik Jósafat Atlason, stofnandi og framkvæmdastjóri Atlas Primer.

Atvinnulíf
Fréttamynd

Sjávartengd ný­sköpun skilar þjóðinni milljörðum

Nýlega var greint frá því að íslenska ríkið muni fá um 40 milljarða króna eingreiðslu í kjölfar sölu á hugverkaréttindum Kerecis til danska fyrirtækisins Coloplast. Skattur vegna sölunnar verður greiddur í einu lagi í haust og heimild til að dreifa greiðslum yfir sjö ár verður ekki nýtt.

Skoðun
Fréttamynd

Affineva bar sigur úr býtum

Verkefnið Affineva bar sigur úr býtum í nýsköpunarkeppninni Gulleggið. Markmið Affineva er að þróa sértækar líftæknilausnir í greiningu og meðhöndlun sjúkdóma.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

„Ægi­lega hamingju­samur“ með milljarðana frá Kerecis

Það er gríðarlegt ánægjuefni að fjörutíu milljarða skattgreiðsla frá Kerecis komi að óbreyttu til með að snúa við rekstri ríkissjóðs á þessu ári, að sögn fjármálaráðherra. Ekki var gert ráð fyrir tekjunum í fjármálaáætlun en ráðherra gerir ráð fyrir að peningarnir nýtist til að ná betra jafnvægi í ríkisreksturinn.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Kerfið er vanda­málið ef það styður ekki ný­sköpun

Með nýsköpun í heilbrigðiskerfinu er hægt að framlengja sjálfstæða búsetu fólks, draga úr þörf fyrir innlagnir og leysa stóran vanda, að mati sérfræðings hjá Fjársýslu ríkisins. Framlínustofnanir þurfi að snúa bökum saman og kerfið eigi að treysta heilbrigðisstarfsfólki til þess að leita lausna.

Innlent
Fréttamynd

Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III

Stofnaður hefur verið 7,2 milljarða króna vísisjóður, Brunnur III, með þátttöku ellefu íslenskra lífeyrissjóða, Nýsköpunarsjóðsins Kríu og Silfurbergs ehf. Sjóðurinn hefur lokið áskriftarsöfnun en hefur heimild til stækkunar upp í tíu milljarða króna með þátttöku fagfjárfesta fyrir lok febrúar.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Fram­tíð ís­lenskrar líf­tækni

Undanfarin ár hefur líftækni orðið ein af burðarstoðum íslensks efnahagslífs. Útflutningur lyfja og líftæknitengdra vara hefur vaxið hratt og er í dag einn stærsti einstaki útflutningsflokkur landsins.

Skoðun
Fréttamynd

Freyr lætur af störfum sem for­stjóri Kapps

Freyr Friðriksson, stofnandi og eigandi Kapps ehf. hefur ákveðið að hætta sem forstjóri félagsins og verður stjórnarformaður þess. Ólafur Karl Sigurðarson, sem gegnt hefur stöðu aðstoðarforstjóra Kapps, síðastliðið rúmt ár, tekur við sem forstjóri.

Viðskipti innlent