Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Árni Sæberg skrifar 17. ágúst 2026 16:26 Guðmundur Fertram Sigurjónsson, stofnandi Kerecis. Vísir/Arnar Guðmundur Fertram Sigurjónsson, stofnandi Kerecis, hefur látið af störfum sem framkvæmdastjóri sára- og vefjaviðgerðasviðs Coloplast, sem keypti Kerecis á sínum tíma. Þess í stað tekur hann við stöðu aðalráðgjafa forstjóra Coloplast í nýsköpun og tækni.
Í tilkynningu þess efnis frá Coloplast segir að í nýju hlutverki, sem hafi þegar tekið við, muni Guðmundur Fertram einbeita sér að því að efla nýsköpunarstefnu Coloplast, sérstaklega á sviði líftækni, háþróaðrar sárameðferðar og nýrrar tækni. „Ástríða mín fyrir heilbrigðisþjónustu, sáragræðslu og nýsköpun er jafnmikil og áður. Ég er spenntur fyrir því að takast á við þetta nýja hlutverk og nýta reynslu mína og frumkvöðlasjónarmið til að þróa næstu kynslóð tækni og lausna í sárameðferð. Ég hlakka til að vinna náið með teyminu og hjálpa til við að breyta vænlegum hugmyndum í þýðingarmiklar lausnir sem geta skipt sköpum fyrir sjúklinga,“ er haft eftir honum. Forstjórinn tekur við Þá segir í tilkynningu að Gavin Wood, forstjóri Coloplast, taki við stjórn sára- og vefjaviðgerðasviðs félagsins til bráðabirgða. Coloplast keypti Kerecis árið 2023 fyrir um 180 milljarða króna og síðan á hefur íslenska fyrirtækið verið uppistaðan í sára- og vefjaviðgerðasviði Coloplast. „Framlag [Guðmundar] Fertrams til Kerecis og Coloplast hefur verið einstakt. Sem stofnandi Kerecis hefur hann byggt upp glæsilega tækni sem byggir á djúpri klínískri innsýn, auk fyrirtækis með sterka frumkvöðlamenningu. Það gleður mig að Coloplast muni áfram njóta góðs af reynslu og nýsköpunarhugsun Fertrams í nýju hlutverki hans. Þegar við leiðum sára- og vefjaviðgerðasviðið inn í næsta kafla hlakka ég til að byggja á þeim sterka grunni sem [Guðmundur] Fertram og teymið hafa skapað,“ er haft eftir Wood. Nýr mannauðsstjóri Þá er í tilkynningunni einnig greint frá ráðningu Amöndu Rajkumar í stöðu framkvæmdastjóra mannauðsmála hjá Coloplast. Hún hafi þriggja áratuga alþjóðlega reynslu af stjórnun mannauðsmála hjá alþjóðlegum neytenda- og fjármálaþjónustufyrirtækjum. Síðast hafi hún gengt stöðu framkvæmdastjóra mannauðsmála, starfsfólks og menningu hjá Adidas, þar sem hún hafi borið ábyrgð á alþjóðlegum mannauðsmálum fyrirtækisins. Þar áður hafi hún verið framkvæmdastjóri mannauðsmála fyrir Ameríku hjá BNP Paribas. Fyrr á ferlinum hafi hún gegnt stjórnunarstöðum í mannauðsmálum hjá JPMorgan Chase.
Nýsköpun Vistaskipti Mest lesið Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Viðskipti innlent Willum í stjórn Litla spítalans Viðskipti innlent Kostar allt að 580 þúsund Neytendur Undirbúningur kólnunar: Ekki endilega best að byrja á niðurskurði Atvinnulíf Eggert ráðinn til Litla spítalans Viðskipti innlent Skoða að sameina Tesla og SpaceX Viðskipti erlent Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Viðskipti innlent Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Viðskipti innlent Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Viðskipti innlent Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Sjá meira