Svona eru jólin Nú styttist í jólin og spennandi að sjá hvort mamma kyssir jólasveininn að þessu sinni. Jólin eru hátíð samverustunda með fjölskyldu og vinum en desember er einnig stærsti útgjaldamánuður allflestra. Skoðun 17. desember 2019 10:30
Allt að 133 prósenta verðmunur á tölvuleikjum milli verslana Verðkönnun ASÍ á tölvuleikjum hefur leitt það í ljós að það getur borgað sig að gera verðsamanburð áður en keypt er í jólapakkana. Viðskipti innlent 14. desember 2019 15:28
Samloka innkölluð eftir að hún var ranglega merkt vegan Matvælastofnun varar við neyslu á tveimur tegundum af samlokum frá vörumerkinu Dagnýju og co. í ljósi þess að merkimiðum á þeim var víxlað með þeim afleiðingum að hvorug varan er með rétta innihaldslýsingu. Viðskipti innlent 13. desember 2019 17:30
Landsmenn hamstra nammi og snakk í óveðrinu Jóhannes Laxdal Sigurðsson, verslunarstjóri í Bónus á Granda, segir mikið hafa verið að gera í versluninni það sem af er degi. Innlent 10. desember 2019 15:46
Sendingum fjölgað um 140 prósent í kjölfar stóru, erlendu verslunardaganna Þá varð 43 prósent aukning í sendingunum á milli ára. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslandspósti. Viðskipti innlent 6. desember 2019 10:47
Innkalla Sriracha sósu vegna sprengihættu Vietnam Market hefur, í samráði við matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, innkallað vöruna Sriracha Hot Chili Sauce vegna þess að flöskurnar eiga á hættu að springa vegna gerjunar. Viðskipti innlent 5. desember 2019 18:17
Flestar kvartanir lúti að misvísandi framsetningu afsláttar Í ár hafa færri kvartanir hafa borist Neytendastofu vegna Svarta föstudagsins en undanfarin ár en Matthildur Sveinsdóttir, sérfræðingur hjá neytendaréttarsviði býst þó við að einhverjar kvartanir muni bætast við í tengslum við hinn Stafræna mánudag sem er í dag. Forsvarsmenn Neytendastofu vonast til þess að þetta sé vísbending um færri brot. Viðskipti innlent 2. desember 2019 13:10
Innkalla kjúkling vegna gruns um salmonellu Matvælastofnun varar við neyslu á ferskum kjúklingi frá Matfugli ehf. með lotunúmerinu 215-19-43-1-06 vegna gruns um salmonellu. Fyrirtækið er nú sagt vinna að innköllun kjúklingsins úr verslunum og frá neytendum. Viðskipti innlent 30. nóvember 2019 11:23
Ungmenni mótmæltu svörtum föstudegi á Glerártorgi Ungmenni á Akureyri gengu fylktu liði að Verslunarmiðstöðinni Glerártorgi í dag til að mótmæla óþarfa neyslu á svörtum föstudegi. Unga fólkið hefur miklar áhyggjur af loftslagsbreytingum. Innlent 29. nóvember 2019 22:15
Dagurinn þegar allt verður brjálað Svartur föstudagur eða "Black Friday“ á sér langa sögu í Bandaríkjunum en tiltölulega stutt er síðan sá siður verslunareigenda að bjóða mikinn afslátt þennan dag náði fótfestu hér á landi. Lífið 29. nóvember 2019 08:15
Hækka verð til að lækka það á svörtum föstudegi Neytendasamtökunum hafa borist ábendingar um að smávöruverslanir hækki verðið í aðdraganda svarts föstudags, eða Black Friday. Ólíkt því sem gerðist í fyrra hafa lánafyrirtæki í auknum mæli auglýst í tilefni dagsins. Viðskipti innlent 29. nóvember 2019 07:30
Síminn sektaður um níu milljónir fyrir ítrekað brot gegn fjölmiðlalögum Póst- og fjarskiptastofnun hefur lagt níu milljóna króna stjórnvaldssekt á Símann fyrir brot á fjölmiðlalögum. Stofnunin telur brot Símans hafa verið meðvituð og markviss, auk þess sem þau hafi haft umtalsverð skaðleg áhrif á fjarskiptamarkaðinn. Viðskipti innlent 29. nóvember 2019 07:00
Verslunin sem hafnar svörtum föstudegi Eigendur verslunarinnar Vistveru við Bústaðaveg ætla ekki að taka þátt í hinum svokallaða "svarta föstudegi“, þvert á þá þróun sem virðist hafa orðið meðal verslana á íslenskum markaði. Viðskipti innlent 28. nóvember 2019 16:00
Fiskikóngurinn varar við gullgrafaraæði á humarmarkaði Kristján Berg Ásgeirsson, best þekktur sem Fiskikóngurinn, varar við því sem hann kallar gullgrafaraæði á humarmarkaði vegna skorts á íslenskum humri. Viðskipti innlent 27. nóvember 2019 12:45
Lækka leiguverð til að halda í leigjendur Innkoma Bjargs íbúðafélags á leigumarkaðinn hefur strax haft áhrif á leiguverð á markaðnum. Þannig hafa leigusalar á almennum markaði lækkað leiguverð til þess að halda í leigjendur, frekar en að missa þá. Viðskipti innlent 27. nóvember 2019 12:20
Sólrún Diego og Tinna Alavis brutu lög með duldum auglýsingum Sólrúnu Lilju Diego Elmarsdóttur og Tinnu Alavisdóttur hefur verið gert að hætta birtingu duldra auglýsinga á samfélagsmiðlum. Viðskipti innlent 26. nóvember 2019 13:00
Telja ósannað að Extra tyggjó sé nú betra fyrir tennurnar Heildsalan Innnes er talin hafa gerst brotleg við lög með fullyrðingum framkvæmdastjóra þess um að Extra tyggjó sé nú betra fyrir tennurnar og tannheilsu. Viðskipti innlent 25. nóvember 2019 15:21
Varar við framsetningu íslenskra verslana í aðdraganda svarts fössara Árvökull Akureyringur segir AB varahluti svipta neytendur af rétti sínum til að taka upplýsta ákvörðun við kaup með auglýsingum sínum um vörur á tilboði. Viðskipti innlent 25. nóvember 2019 13:42
Kílóið af humri á allt að tuttugu þúsund krónur Kílóið af stórum íslenskum humri getur kostað allt að tuttugu þúsund krónur út úr búð. Þá hefur mikill aflabrestur orðið til þess að óvenjulítið af humri hefur ratað í fiskbúðir. Innlent 24. nóvember 2019 22:15
Fjármál, ímynd og samfélagsleg ábyrgð Rannsóknir hafa sýnt að mikill meirihluti neytenda vill skipta við ábyrg fyrirtæki. Neytendaáhrifin eru að aukast og við þurfum nýjar viðskiptaaðferðir til að koma til móts við þau. Skoðun 20. nóvember 2019 12:00
Eru íslensk heimili farin að dempa hagsveifluna? Neysla íslenskra heimila mun væntanlega mýkja hagsveifluna talsvert á komandi fjórðungum öfugt við það sem oftast hefur verið í íslensku hagkerfi. Skoðun 18. nóvember 2019 14:45
Breyta 1850 fermetrum í mínígolf "töfraveröld“ Athafnamaðurinn Sigmar Vilhjálmsson stefnir á að opna nýjan veitinga- og afþreyingarstað í Skútuvogi fyrir upphaf Evrópumótsins í knattspyrnu næsta sumar Viðskipti innlent 15. nóvember 2019 08:00
Auðveldum okkur lífið í jólavertíðinni Jólavertíðin í verslun er að ganga í garð með tilheyrandi traffík í verslunum landsins. Skoðun 15. nóvember 2019 08:00
Segja Orkuveituna skulda notendum milljarða króna Stjórn Neytendasamtakanna sakar Orkuveitu Reykjavíkur (OR) um að hafa innheimt vatnsgjöld umfram það sem lög leyfi sem nemi milljörðum króna undanfarin ár. Álykta samtökin þetta á grundvelli þess að OR hafi verið óheimilt að greiða eigendum sínum út arð. Viðskipti innlent 14. nóvember 2019 19:50
Landsmenn geta skoðað sektirnar sínar á netinu Lögreglan hefur tekið í notkun nýja tækni og hér eftir verður hægt að nálgast upplýsingar um sektir í pósthólfi á island.is sem er upplýsinga- og þjónustuveita opinberra aðila á Íslandi. Innlent 14. nóvember 2019 11:42
Auglýsir eftir túlípönum Ráðgjafarnefnd um inn- og útflutning á búvörum hefur hafnað erindi Félags atvinnurekenda (FA) um að fella niður tolla á túlípönum. Viðskipti innlent 14. nóvember 2019 07:00
Fyrstu skrefin í opnun netverslunar Netverslun á Íslandi hefur tekið stakkaskiptum undanfarin ár þar sem vöxtur hefur verið mikill og væntingar viðskiptavina aukist jafnt og þétt. Skoðun 13. nóvember 2019 11:00
Ekkert bólar á viðbrögðum vegna túlípana Enga túlípana er að fá í landinu þar sem innlendir framleiðendur geta einungis boðið upp á þá frá desember til páska. Viðskipti innlent 12. nóvember 2019 06:15
Íslendingar sjúkir í sódavatn Íslendingar hafa undanfarinn tæpan áratug í auknum mæli sagt skilið við sykraða gosdrykki og keypt kolsýrt vatn í staðinn, oft nefnt sódavatn. Þetta kemur fram í sölutölum úr matvöruverslunum og bensínstöðvum sem Félag atvinnurekenda birtir á heimasíðu sinni í dag. Viðskipti innlent 11. nóvember 2019 14:30