

Lögreglumál
Fréttir af verkefnum lögreglunnar á Íslandi.

Rannsókn enn opin hvort fíkniefnasala komi við sögu
Grímur Grímsson, yfirmaður miðlægrar rannsóknardeildar lögreglu, segir tvo fulltrúa frá bandarísku fíkniefnalögreglunni hafa komið að aðgerðum í tengslum við húsleit og handtökur tengdar Davíð Viðarssyni og veitingastöðum og gistihúsum í hans eigum. Sá angi málsins er enn til rannsóknar.

Fjórtán ára piltur féll úr stólalyftu í Bláfjöllum
Fjórtán ára piltur féll tíu metra úr stólalyftu í Bláfjöllum. Að sögn lögreglu vankaðist pilturinn við fallið en rankaði síðan við sér.

Hætta leit að bíl í Þingvallavatni
Viðbragðsaðilar hafa ákveðið að hætta leit við vestanvert Þingvallavatn, en lögreglu barst tilkynning um klukkan ellefu í dag um að bíll hefði farið ofan í og niður um ís.

Leit stendur yfir eftir að tilkynnt var um bíl í Þingvallavatni
Björgunarsveitir, lögreglumenn af Suðurlandi, slökkviliðsmenn frá Brunavörnu Árnessýslu og þyrla Landhelgisgæslunnar eru nú að störfum við Þingvallavatn eftir að tilkynnt var um að bíll hafi farið í vatnið, sem er ísilagt að hluta.

Gabbaði slökkviliðið í útkall og má búast við refsingu
Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað í útkall vegna elds í nótt sem enginn fótur reyndist fyrir. Slökkviliðsmenn voru narraðir og hafa vísað málinu til lögreglu.

Veitingamenn slegnir og kalla eftir skilvirkara eftirliti
Framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði kallar eftir að vinnustaðaeftirlit verði eflt. Veitingamenn séu slegnir eftir umfangsmiklar lögregluaðgerðir í tengslum við meint mansal á veitingastöðum Davíðs Viðarssonar í síðustu viku.

Árásarmaðurinn staðið í hótunum við vararíkissaksóknara
Karlmaður um þrítugt, sem úrskurðaður hefur verið í fjögurra vikna gæsluvarðhald fyrir hnífstunguárás í verslun í Valshverfinu í Reykjavík, er sá sami og hefur um nokkurt skeið staðið í hótunum við Helga Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknara.

Gæsluvarðhald staðfest: „Gríðarlega miklar rannsóknir sem liggja að baki“
Landsréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð héraðsdóms yfir sex sakborningum sem grunaðir eru um aðild að mansali, peningaþvætti og annarri skipulagðri glæpastarfsemi. Sem stendur eru níu sakborningar í málinu og mögulegt að þeir verði fleiri.

Ráðinn sem sérhæfður kokkur en settur í ræstingar
Flestir þeirra sem fá dvalarleyfi á Íslandi vegna sérfræðiþekkingar, líkt og talið er að fórnarlömb meints mansals Davíðs Viðarssonar hafi fengið, koma frá Víetnam. Sviðsstjóri hjá Vinnumálastofnun segir það koma reglulega fyrir að fólk vinni við allt annað en það er sagt ætla að gera við komuna hingað til lands.

Fjölgar um einn í hópi sakborninga
Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir engar frekari aðgerðir vera skipulagðar varðandi meint mansal athafnamannsins Davíðs Viðarssonar en að yfirheyrslur og gagnaúrvinnsla gangi vel.

Stungumaðurinn í Hlíðarenda úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald
Karlmaður um þrítugt var úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjaness í dag fyrir stunguárás sem framin var í Hlíðarendahverfinu í Reykjavík í gær. Var það að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Myndband af fólskulegri stunguárás í Valshverfinu
Maður veittist að tveimur mönnum með hníf í versluninni OK Market í Valshverfinu í gær. Hann var handtekinn og standa yfirheyrslur enn yfir.

Tóku niður crimemarket.is
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu tók þátt í alþjóðlegri lögregluaðgerð í síðustu viku þar sem fíkniefnamarkaður sem kallaður er crimemarket.is var tekinn niður. Ekki leikur grunur á að Íslendingar séu viðriðnir málið.

Stakk tvo menn í Valshverfinu
Maður sem veittist að tveimur mönnum og stakk þá var handtekinn af lögregluþjónum Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gær. Hann hefur verið yfirheyrður í dag og standa yfirheyrslur enn yfir.

Tók langan tíma að vinna traust starfsfólks Davíðs Viðarssonar
Vinnustaðaeftirlit ASÍ hefur í heilt ár heimsótt vinnustaði í eigu Davíðs Viðarssonar til að byggja upp traust hjá starfsfólki sem talið var í vinnumansali. Lögfræðingur hjá ASÍ fagnar því að mál sem þessi séu nú að komast á yfirborðið og vonar að málið rati fyrir dóm og verði fordæmisgefandi. Málið er ekki eina vinnumansalsmálið sem er á borði ASÍ.

Maður um tvítugt lést í mótorhjólaslysinu í Heiðmörk
Karlmaður um tvítugt lést í mótorhjólaslysinu sem varð í Heiðmörk um kvöldmatarleytið í gær. Maðurinn ók mótorhjólinu vestur Heiðmerkurveg en virðist hafa misst stjórn á hjólinu og hafnaði utan vegar.

Greiddi sautján milljónir fyrir aðstoð við að koma hingað og vinna
Alþýðusamband Íslands, stéttarfélög og lögregla hafa ítrekað fengið skilaboð um bága stöðu starfsmanna Quang Lé, sem einnig er þekktur undir nafninu Davíð Viðarsson.

Maðurinn sem lýst var eftir er fundinn
Lögreglan höfuðborgarsvæðinu lýsti í kvöld eftir manni.

Kæra gæsluvarðhaldsúrskurði til Landsréttar
Fimm af þeim sex sem sitja í gæsluvarðhaldi, vegna gruns um aðild að mansali, peningaþvætti og annarri skipulagðari glæpasamstarfi, hafa kært gæsluvarðhaldsúrskurðinn til Landsréttar.

Ráðast ekki í frekari aðgerðir vegna Davíðs enn sem komið er
Mál athafnamannsins Davíðs Viðarssonar og fimm annarra sem eru í gæsluvarðhaldi grunaðir um peningaþvætti, mansal og skipulagða glæpastarfsemi er nú til rannsóknar hjá miðlægri rannsóknardeild lögreglu. Ekki verður ráðist í frekari aðgerðir vegna málsins sem stendur.

Kom til landsins á þriðja eftirnafninu og í tvöföldu endurkomubanni
Karlmaður hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 14. þessa mánaðar á meðan hugsanleg brottvísun hans af landinu er til meðferðar hjá Útlendingastofnun. Hann hefur ítrekað komið hingað til lands á þremur mismunandi eftirnöfnum. Maðurinn sætir tvöföldu endurkomubanni inn á Schengen-svæðið.

Fara yfir öryggisbúnað og uppfæra hættumat
Almannavarnanefnd Austurlands hefur ásamt sveitarfélögunum Múlaþingi og Fjarðabyggð hafið vinnu við að rýna verkferla varðandi skíðasvæðin í Stafdal og Oddsskarði. Snjóflóð féllu þar um síðustu helgi.

Ökumaðurinn alvarlega slasaður en ekki í lífshættu
Maðurinn sem lenti í alvarlegu umferðarslysi á Hafnarfjarðarvegi í nótt er alvarlega slasaður á gjörgæsludeild Landspítalands, en er ekki talinn í lífshættu. Jepplingur sem hann keyrði fór út af veginum og lenti á girðingu.

Rannsaka hvort Davíð hafi þegið milljónir fyrir að koma fólki til landsins
Lögregla rannsakar hvort að Davíð Viðarsson og fleiri sem eru nú í gæsluvarðhaldi vegna umfangsmikillar rannsóknar lögreglu á vinnumansali hafi þegið greiðslur frá víetnömsku fólki fyrir aðstoð við að koma þeim til landsins. Þetta herma heimildir fréttastofu.

Segja Wok On ekki tengjast mathöllinni og slíta markaðssamstarfi
Forsvarsmenn mathallarinnar Borg29 í Borgartúni í Reykjavík segja veitingastaðinn Wok On í Borgartúni ekki tengjast mathöllinni og sé ekki í beinu viðskiptasambandi við Borg29. Fyrirtækin hafi þó verið í markaðssamstarfi, sem hafi nú verið slitið.

Höfðu haft grun um ólögmæta starfsemi í nokkur ár
Nokkur ár eru síðan athygli lögreglu var vakin á meintu mansali og annarri ólögmætri starfsemi víetnamska athafnamannsins Davíðs Viðarssonar. Börn voru á heimilum bæði brotaþola og grunaðra í málinu.

Þögull sem gröfin um söluna á Wok On til Davíðs
Kristján Ólafur Sigríðarson, stofnandi og fyrrverandi eigandi og framkvæmdastjóri Wok on veitingastaðanna, segir lögreglu ekki hafa rætt við sig í tengslum við umfangsmiklar aðgerðir embættisins víða um land í gær. Hann segist enda ekki tengjast málinu með nokkrum hætti.

Á leið í gæsluvarðhald
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur fallist á kröfur Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um gæsluvarðhald yfir öllum sex sem handtekin voru í gær. Fallist var á vikulangt gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna í tengslum við mál Vy-þrifa og tengdra fyrirtækja.

Þrír karlar og þrjár konur í vikulangt gæsluvarðhald
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu mun fara fram á vikulangt gæsluvarðhald yfir þremur körlum og þremur konum í tengslum við umfangsmiklar lögregluaðgerðir í gær. Ekki hefur fengist staðfest hvort Davíð Viðarsson, eigandi fjölda fyrirtækja sem lokað var í gær, sé meðal þeirra.

„Algjör forsendubrestur í viðskiptasambandi okkar við Wok On“
Forsvarsmaður Gróðurhússins í Hveragerði segir að unnið sé að því að slíta viðskiptasambandi við veitingastaðinn Wok On, sem er í mathöll Gróðurhússins. Staðnum var lokað í gær í umfangsmiklum aðgerðum lögreglu.