Skila öllu vatni sem þarf í kolefnisförgun aftur í jörðina Vatni sem dælt verður upp úr ferskvatnsstraumi neðanjarðar við Straumsvík fyrir kolefnisförgunarstöð Carbfix verður öllu skilað aftur ofan í jörðina og hefur ekki áhrif á vatnsból. Opinberar stofnanir segja að rannsaka verði vel umhverfisáhrif gríðarlegrar vatnsnotkunar stöðvarinnar. Viðskipti innlent 22. febrúar 2023 11:02
Mikilvægt að fleiri leggi stund á umhverfisfræði „Enn er margt óljóst um áhrif hlýnunar jarðar. Áhrifanna gætir hraðar en áður var talið á stöðum sem liggja hátt og við verðum að skilja betur hvernig þeir munu halda áfram að breytast og hvernig við þurfum að bregðast við og aðlagast breytingum. Það er því afar mikilvægt að fleiri leggi stund á umhverfisfræði,“ segir Alejandro Salazar Villegas brautarstjóri Umhverfisbreytingar á Norðurslóðum (EnCHiL), tveggja ára meistaranámsbrautar við Landbúnaðarháskóla Íslands. Samstarf 22. febrúar 2023 08:50
Methagnaður Landsvirkjunar fyrst og fremst sóttur til stóriðjunnar Landsvirkjun á núna Kárahnjúkavirkjun skuldlausa sem og allar virkjanir byggðar fyrir hennar tíma. Forstjórinn segir methagnað fyrirtækisins fyrst og fremst sóttan til stóriðjunnar en ekki til almennings. Viðskipti innlent 21. febrúar 2023 22:30
Segir methagnað uppskeru af uppbyggingu virkjana Landsvirkjun skilaði fjörutíuogfimm milljarða króna hagnaði á síðastliðnu ári og leggur stjórn fyrirtækisins til að tuttugu milljarða króna arður verði greiddur í ríkissjóð, fimm milljörðum meira en fjárlög gera ráð fyrir. Forstjórinn segir þetta uppskeru virkjanauppbyggingar síðustu áratuga en endursamningar við stóriðju séu þó stærsti áhrifaþátturinn í góðri afkomu. Viðskipti innlent 21. febrúar 2023 12:36
Áform um 140 milljarða króna fjárfestingu á Bakka runnu út í sandinn Viljayfirlýsing fyrirtækisins Carbon Iceland og sveitarfélagsins Norðurþings um stórfellda uppbyggingu á lofthreinsiveri við Bakka á Húsavík, rann út um síðustu áramót og hefur ekki verið endurnýjuð. Skilyrði um að fyrirtækið næði samningi við Landsvirkjun um afhendingu raforku hafði ekki verið uppfyllt. Innherji 20. febrúar 2023 16:23
Megum ekki hika í orkuskiptum Við eigum möguleika á að verða fyrsta landið til að nota eingöngu endurnýjanlega orku. Því miður hefur stjórnmálafólk og embættismannakerfið sofið á verðinum. Raforkukerfið er uppselt og keyrt við þanmörk. Það má rekja til stöðnunar í málaflokknum í um áratug. Hvernig eiga orkuskiptin – að hætta notkun á olíu og nýta endurnýjanlega orkugjafa – að fara fram við þessar aðstæður? Umræðan 15. febrúar 2023 10:01
Tekist á um gróðursetningu trjáa: „Þetta er svo mikil svikamylla“ Fyrrverandi forstjóri Náttúrufræðistofnunar Íslands gagnrýnir að gróðursetning trjáa sé seld undir þeim forsendum að með því sé verið að kolefnisjafna. Stjórnarformaður Kolviðar segir skýrt tekið fram að það taki tíma fyrir trén að kolefnisjafna og að gróðursetning sé sannarlega betra en að gera ekki neitt. Innlent 15. febrúar 2023 07:00
Bræðslur keyrðar á olíu vegna raforkuskerðingar Annan veturinn í röð hafa fiskimjölsverksmiðjur neyðst til að brenna dísilolíu vegna raforkuskerðingar. Landsvirkjun segir þetta vegna mikils álags, kerfið sé nánast uppselt. Viðskipti innlent 11. febrúar 2023 22:00
Kolefnishlutlaus vöruflutningageiri Á ársfundi Alþjóðaefnahagsráðsins (World Economic Forum), sem haldinn var í janúar 2023 í Davos, voru gefnar út nýjar leiðbeiningar til að styðja við flutningsgeirann til að draga úr losun og ná kolefnishlutleysi. Viðstaddir í Davos fengu tækifæri til að sjá hvernig flutnings- og vörustjórnunarfyrirtæki geti náð betri stjórn á og fylgst betur með, losun sinni. Skoðun 3. febrúar 2023 15:31
Alþjóðlegur dagur votlendis, líka í Hafnarfirði Við Hafnfirðingar erum ekki ríkir af votlendi. Það sem einkennir bæjarlandið er hraun, holt og melar, en nánast ekkert votlendi. Segja má að Hafnarfjörður sé heldur þurr á yfirborðinu þótt við vitum að vatnið renni undir hrauninu. Skoðun 3. febrúar 2023 15:00
Óttast að illa verði komið fyrir húsvernd með sameiningu Sviðsstjóri hjá Minjastofnun er hræddur um að illa verði komið fyrir húsvernd í landinu ef Minjastofnun verður undirsvið í mun stærri stofnun. Ekki hafi verið hlustað á sjónarmið starfsfólks Minjastofnunar í sameiningarferlinu. Minjavernd eigi miklu frekar heima í ráðuneyti menningarmála. Innlent 2. febrúar 2023 13:08
Tíu stofnanir verða að þremur Áform eru um að sameina tíu stofnanir sem heyra undir umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið í þrjár stofnanir. Ráðherra segir að markmiðið með sameiningunni sé að efla stofnanir ráðuneytisins. Innlent 1. febrúar 2023 10:51
Mikil vonbrigði hjá Votlendissjóði og Einar hættir störfum Stjórn Votlendissjóðs og framkvæmdastjóri hafa ákveðið að draga úr rekstri sjóðsins. Ástæðan er sögð skortur á jörðum til endurheimtar votlendis og áhrif krafna um vottun á fjármögnun verkefna. Þar til alþjóðleg vottun kolefniseininga sjóðsins er í höfn verður dregið úr rekstrinum. Innlent 1. febrúar 2023 10:31
„Ljóst að yfirstandandi atburðir hafa stórskaðað samstarf norðurskautsríkja“ Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra er stödd í Tromsø í Noregi en þar stendur yfir norðurslóðaráðstefnan Arctic Frontiers. Innrás Rússlands í Úkraínu og afleiðingar hennar fyrir norðurslóðasamstarf voru efst á baugi í umræðum utanríkisráðherra Íslands, Noregs og Svíþjóðar og ráðuneytisstjóra finnska utanríkisráðuneytisins á ráðstefnunni í dag. Innlent 31. janúar 2023 19:44
Neitar að keppa fyrir Bretland í Ástralíu vegna kolefnisfótspors ferðarinnar Breska frjálsíþróttakonan Innes FitzGerald hefur hafnað boði um að keppa fyrir Bretland í frjálsíþróttakeppni í Ástralíu. Sport 27. janúar 2023 07:30
Íslenskir stjórnendur svartsýnni á árangur í loftlagsmálum en þeir erlendu Stjórnendur 26 prósent fyrirtækja á Íslandi telja að atvinnulífið taki loftslagsbreytingar nógu alvarlega og einungis 5 prósent telja að stjórnvöld á heimsvísu séu að gera nóg. Til samanburðar álíta um 30 prósent stjórnenda á Norðurlöndum og á heimsvísu að bæði fyrirtæki og stjórnvöld séu að taka á vandanum. Yfirmaður sjálfbærniráðgjafar hjá Deloitte segir niðurstöðurnar staðfesta að íslensk stjórnvöld þurfi að bjóða upp á frekari „hvata til jákvæðra aðgerða“ fyrir atvinnulífið. Innherji 25. janúar 2023 10:59
Hyggjast draga úr losun metangass úr maga jórturdýra Milljarðamæringarnir Bill Gates, Jeff Bezos og Jack Ma, stofnandi Alibaba, hafa fjárfest í nýsköpunarfyrirtæki í Ástralíu, sem hefur það að markmiði að stórdraga úr losun metans sem rekja má til kúaropa. Erlent 25. janúar 2023 08:35
Kolefnisbókhald íslenskra fyrirtækja í ólestri Greining á sjálfbærnisskýrslum stærstu fyrirtækja og stofnanna á Íslandi sýnir að kolefnisbókhald margra þeirra er í ólestri og grænþvottur allsráðandi. Skoðun 20. janúar 2023 12:31
NASA og Boeing þróa mun sparneytnari farþegaþotu Bandaríska geimferðastofnunin NASA og Boeing-flugvélaframleiðandinn hafa tekið höndum saman um að þróa nýja tegund farþegaþotu sem á að vera þrjátíu prósent sparneytnari en þær hagkvæmustu sem finnast í dag. Viðskipti erlent 19. janúar 2023 22:22
Sjálfbært land en ósjálfbær þjóð Fréttir af takmörkuðum árangri sjálfbærniumbóta á alþjóðavísu líkt og á umhverfisþinginu, COP27, hafa verið áberandi undanfarin misseri. Þrátt fyrir fjölda áætlana í takt við breyttan heim, markmiðasetningu og stór loforð ríkir enn mikið aðgerðaleysi meðal stjórnvalda heims til að sporna við loftslagsvánni og þeim margvíslegu breytingum í umhverfinu sem fylgja hlýnun jarðar. Skoðun 19. janúar 2023 15:00
Smitsjúkdómar færist í aukana með loftlagsbreytingum Smitsjúkdómalæknir segir það einungis tímaspursmál hvenær annar heimsfaraldur líkt og Covid kemur upp. Nýlegar rannsóknir bendi til þess að allflestir smitsjúkdómar muni færast í aukana samhliða loftslagsbreytingum. Innlent 18. janúar 2023 21:00
Hvítabirnir á Suðaustur-Grænlandi koma vísindamönnum á óvart Lítill en einangraður stofn hvítabjarna, sem heldur til á Suðaustur-Grænlandi, hefur sýnt einstaka hæfni við að laga sig að breyttum lífsskilyrðum með hverfandi hafís og er auk þess erfðafræðilega frábrugðinn öðrum stofnum. Þetta er niðurstaða alþjóðlegs hóps vísindamanna, sem kallar eftir sérstakri verndun þessa undirstofns. Erlent 17. janúar 2023 22:50
Greta Thunberg handtekin við mótmæli í Þýskalandi Umhverfisaðgerðarsinninn Greta Thunberg var handtekin í dag ásamt fleiri mótmælendum vegna mótmæla við kolanámu í Luetzerath í Þýskalandi. Erlent 17. janúar 2023 17:36
Ábyrgð, lausnir og von Um þarsíðustu helgi var fjórði og síðasti landsfundur Ungra umhverfissinna (UU) haldinn í bili. Umræðuefnið að þessu sinni voru loftslagsmálin frá ýmsum sjónarhornum og fengu þeir ungu umhverfissinnar sem sóttu þingið fjölbreytta fræðslu um orsakir, afleiðingar og lausnir við loftslagsvánni sem rædd var til hlítar. Skoðun 17. janúar 2023 14:01
Forstjóri olíufyrirtækis næsti forseti COP28 Forstjóri Olíufyrirtækis og forystumaður í stofnun Hringborðs Norðurslóða verður næsti forseti loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, COP28 sem fram fer í Sameinuðu arabísku furstadæmunum í lok ársins. Erlent 12. janúar 2023 14:02
Vísindamenn vilja að framleiðendur greiði fyrir kolefnisbindingu Hópur vísindamanna hefur lagt til að framleiðendur jarðefnaeldsneyta verði skikkaðir til að „taka til baka“ það koldíoxíð sem losnar við notkun framleiðsluvara þeirra og gera þá þannig ábyrga fyrir þeirri mengun sem þeir valda. Erlent 12. janúar 2023 10:49
Óþolandi ástand vegna loftmengunar Stjórn Landverndar telur að íbúar á höfuðborgarsvæðinu hafi ítrekað upplifað óþolandi ástand vegna loftmengunar. Mengunin sé algjörlega óviðunandi og kallað er eftir aðgerðum. Innlent 11. janúar 2023 13:25
Hlýjasta sumar í Evrópu frá því mælingar hófust Síðasta sumar var það hlýjasta í Evrópu frá því að mælingar hófust og annað hlýjasta árið í álfunni. Í öllum löndum Evrópu, nema á Íslandi, var hitinn yfir meðaltali samanborið við árin 1991 til 2020. Erlent 10. janúar 2023 16:18
Fá byr í seglin með 1,4 milljarða styrk frá ESB Evrópusambandið hefur veitt orkuskiptaverkefninu WHISPER 1,4 milljarða króna styrk og er hann til fjögurra ára. Fjögur íslensk fyrirtæki eru hluti af þessu fjölþjóðlega samstarfi en það eru SideWind, Samskip, BBA//FJELDCO og Athygli. Þar að auki leiðir verkfræðistofan Verkís verkefnið. Viðskipti innlent 10. janúar 2023 12:04
Harry prins og Oprah þurftu að flýja aurskriður Enn einn stormurinn gekk yfir Kalíforníu í Bandaríkjunum í gær og flæddu ár yfir bakka sína og stórsjór gekk á land. Erlent 10. janúar 2023 07:21
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu: „Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent