Brynjar telur heift og reiði Kára langt yfir markið Brynjar Níelsson alþingismaður svarar Kára Stefánssyni forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar í pistli á Facebook-síðu sinni eftir að sá síðarnefndi hafði farið fremur ófögrum orðum um þingmanninn. Brynjar segist hafa gaman að hrokafullum mönnum en nú hafi Kári farið vel yfir strikið. Innlent 9. apríl 2021 11:43
Þrír greindust innanlands og einn utan sóttkvíar Þrír greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Tveir þeirra sem greindust voru í sóttkví en einn utan sóttkvíar. Innlent 9. apríl 2021 10:43
Dagný jákvæð og neikvæð en verður heima: Hef spilað fótbolta mikið veikari „Ég finn fyrir vægum einkennum en ég veit ekki hvort þetta séu týpísk Covid-einkenni,“ segir Dagný Brynjarsdóttir sem þarf að bíta í það súra epli að missa af landsleikjunum gegn Ítalíu á morgun og miðvikudag. Fótbolti 9. apríl 2021 09:39
Covid og sveigjanleiki manneskjunnar Ein af okkar grundvallandi þörfum er þörfin fyrir sálrænt öryggi. Þörfin fyrir að vita að það verður í lagi með okkur. Þessi þörf hjálpar okkur að halda lífi og minnir okkur á að gæta okkar, taka ekki óþarfa áhættu, sýna ekki fífldirfsku og skipuleggja líf okkar af skynsemi út frá þekktum forsendum. Skoðun 9. apríl 2021 09:30
Ólympíumeistari lést af völdum veirunnar Ungverska skotfimikonan Diána Igaly lést í gær, 56 ára að aldri, eftir að hafa smitast af kórónuveirunni. Sport 9. apríl 2021 09:01
Solberg gert að greiða 300 þúsund króna sekt fyrir sóttvarnabrotin Erna Solberg, forsætisráðherra Noregs, hefur verið gert að greiða 20 þúsund norskra króna sekt, um 300 þúsund íslenskar, vegna sóttvarnabrota í skíðabænum Geilo í lok febrúar. Erlent 9. apríl 2021 08:17
„Hvaða „alla“ þú ert að tala um veit ég ekki“ Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og formaður Velferðarnefndar Alþingis, segir Kára Stefánsson forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar vaða í villu og svíma í tali sínu um sóttvarnarlög. Þá skammar hún Kára fyrir að tala dómsstóla niður. Innlent 9. apríl 2021 07:15
Opið bréf til Kára Stefánssonar Kæri Kári! Í tilefni af Kastljósviðtali við þig í gærkvöldi fann ég hjá mér einlæga löngun til að skrifa þér bréf. Skoðun 9. apríl 2021 07:00
Fjórir af milljón gætu fengið blóðtappa: Missti bróður sinn en hvetur fólk samt til að þiggja bólusetningu Systir manns sem lést eftir að hafa fengið sjaldgæfan blóðtappa í heila í kjölfar bólusetningar með bóluefninu frá AstraZeneca, segir hann hafa verið ótrúlega óheppinn og hvetur fólk til að þiggja bólusetningu. Erlent 9. apríl 2021 06:50
„Veirufrítt samfélag“ bratt, óraunhæft og kostnaðarsamt „Ég er bara eins og aðrir, að lesa um þetta í fréttum af þessum fundi í morgun, þar sem Þórólfur lýsir þessu sem sinni skoðun,“ segir Sigríður Á. Andersen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, um það markmið sóttvarnalæknis að stefna að veirufríu samfélagi. Innlent 8. apríl 2021 23:33
Telja prófahald stangast á við sóttvarnareglur: „HA hefur verið að draga lappirnar“ Nemendur í viðskiptafræði við Háskólann á Akureyri fengu í dag tölvupóst frá viðskiptadeildinni þar sem þeim var greint frá því að lokapróf deildarinnar muni fara fram í húsnæði skólans. Mikil óánægja ríkir meðal nemenda vegna þessa, enda aðeins tvær vikur í fyrstu lokapróf, og hafa nemendur tekið sig til og safnað undirskriftalista til þess að skora á yfirvöld skólans að halda fjarpróf. Innlent 8. apríl 2021 23:30
„Brynjar Trump Níelsson“ hafi hundsað hagsmuni samfélagsins með Spánarferð Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, er allt annað en sáttur með kveðju Brynjars Níelssonar þingmanns frá Spáni. Hann segir Brynjar reka fingur framan í sóttvarnayfirvöld með hegðun sinni og tekur undir ummæli sóttvarnalæknis að slíkt sé ekki æskilegt. Innlent 8. apríl 2021 23:00
Fyrst til að fá lungnaígræðslu úr lifandi líffæragjafa Japönsk kona varð í dag sú fyrsta til þess að fá lungnaígræðslu frá líffæragjafa sem er á lífi. Konan hafði orðið fyrir því að líffæri hennar biluðu í kjölfar þess að hún smitaðist af kórónuveirunni og fékk hún hluta úr lungum sonar síns og eiginmanns. Erlent 8. apríl 2021 22:57
Velferðarnefnd komin með gögnin í hendurnar Fulltrúar í velferðarnefnd Alþingis hafa fengið gögn frá heilbrigðisráðuneytinu varðandi undirbúning reglugerðar, sem varða skyldun komufarþega til dvalar á sóttkvíarhóteli, afhent. Innlent 8. apríl 2021 21:48
Rauði krossinn ekki upplýstur um nýja reglugerð Rauði krossinn, sem hefur haft umsjón með farsóttar- og sóttvarnahúsum fyrir hönd stjórnvalda, var ekki upplýstur um nýja reglugerð er varðar komu fólks frá útlöndum og tekur gildi á miðnætti. Að mati Rauða krossins setur ný reglugerð sóttvarnir í uppnám. Innlent 8. apríl 2021 21:22
Útlit fyrir hjarðónæmi í Bretlandi á mánudag Allt bendir til þess að hjarðónæmi við kórónuveirunni náist í Bretlandi á mánudag. Spár gera nú ráð fyrir því að 73,4 prósent Breta verði komnir með mótefni við veirunni, annað hvort vegna fyrra smits eða bólusetningar. Erlent 8. apríl 2021 21:07
Svandís segir mögulegt að breyta þurfi sóttvarnalögum Heilbrigðisráðherra setti nýja reglugerð í dag um sóttkví farþega til landsins þar sem skilyrði eru sett um aðstæður í heimasóttkví og ef þau eru ekki uppfyllt skuli fólk fara á sóttvarnahótel því að kostnaðarlausu. Sóttvarnalæknir segir það enga stefnubreytingu að stefnt sé að veirulausu Íslandi. Innlent 8. apríl 2021 19:20
Ískalt á gosstöðvunum og ekki í sóttkví Þau Leyla og Usama frá Marokkó voru mætt í gallabuxum og úlpu á Suðurstrandarveg í dag á leiðinni í fjallgöngu. Þau komu til landsins í gær en töldu sig ekki þurfa að vera í sóttkví sökum þess að þau hefðu farið í próf og sýnt vottorð við komuna til landsins. Innlent 8. apríl 2021 17:31
Svandís útilokar ekki breytingu á lögum Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur kynnt nýja reglugerð um sóttvarnaráðstafanir á landamærum sem tekur gildi á miðnætti. Nú er ekki skylda að fara á sóttkvíarhótel ef maður getur uppfyllt nauðsynleg skilyrði heimasóttkvíar, svo sem um að enginn annar sé til dvalar í sama húsnæði. Innlent 8. apríl 2021 16:54
Nýjar reglur á landamærum taka gildi á miðnætti Skýrari kröfur verða gerðar um skilyrði fyrir heimasóttkví varðandi húsnæði og umgengnisreglur. Þeir sem ekki geta verið í heimasóttkví sem uppfyllir sett skilyrði þurfa að fara í sóttvarnahús. Ekkert gjald verður tekið fyrir dvölina og fólki tryggð útivera. Ekki er gerður greinarmunur á því frá hvaða löndum fólk kemur. Innlent 8. apríl 2021 16:36
Væri ágætis byrjun að biðja fólkið afsökunar á þessu klúðri Bjarni Már Magnússon, lagaprófessor við Háskólann í Reykjavík, gagnrýnir íslensk heilbrigðisyfirvöld fyrir að „grafa undan íslenskum dómstólum“ með viðbrögðum sínum við úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur um að skyldudvöl á sóttkvíarhóteli væri ólögmæt ráðstöfun. Innlent 8. apríl 2021 16:07
Ekkert við ferð Brynjars að gera Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir sárt að sjá að fólk fari ekki eftir tilmælum um að sleppa ónauðsynlegum ferðum til útlanda. Brynjar Níelsson þingmaður hefur verið í fríi á Spáni, sem hann sagði í viðtali við Vísi að væri „ekki lífsnauðsynlegt eða mjög nauðsynlegt.“ Innlent 8. apríl 2021 15:47
Að gjamma burt veiruna Fyrir nokkrum árum var á vefnum Dýrahjálp auglýst eftir nýju heimili fyrir íslenskan fjárhund sem var til heimilis í Reykjanesbæ. Sá hafði tekið upp á þeim leiða sið að alltaf þegar flugvélar komu inn til lendingar eða tóku á loft þá gelti hundurinn þar til vélin var farin úr augsýn, en þá kom hann til húsbændanna ótrúlega stoltur eins og sá sem hrakið hefur óvin í burtu. Skoðun 8. apríl 2021 15:00
Sleggjan á sóttkvíarhótelinu Nær undantekningarlaust eru margar leiðir að sama markmiðinu, en það að aðferð nái settu markmiði gerir hana ekki sjálfkrafa æskilega. Þannig mætti alveg nota sleggju til að festa nagla, en hætta er á að skemma ekki bara naglann heldur einnig vegginn í leiðinni. Skoðun 8. apríl 2021 14:32
Væri til í að sjá slakari reglur varðandi veitingastaði á landsbyggðinni „Það var aldrei planið að opna veitingastað“ segir Halla María Svansdóttir sem rekur farsæla veitingastaðinn Hjá Höllu á Grindavík sem hefur getið sér gott orð fyrir frábæran og hollan mat. Lífið 8. apríl 2021 14:32
Á von á breyttum tilmælum um notkun á AstraZeneca Sigríður Dóra Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri lækninga á höfuðborgarsvæðinu, segist eiga von á breyttum tilmælum frá Þórólfi Guðnasyni, sóttvarnalækni, er varðar bólusetningar með bóluefni AstraZeneca. Innlent 8. apríl 2021 13:39
90% af hagkerfinu í lagi? Frekar 10% Kastljósviðtal við Gylfa Zoëga, hagfræðiprófessor og nefndarmann í peningastefnunefnd Seðlabankans, fyrir páska vakti nokkra athygli. Þar sagði Gylfi að „stóra myndin er sú að 90 prósent af hagkerfinu eru í lagi“ og að aðeins væri kreppa í ferðaþjónustu sem í eðlilegu árferði leggur til um 10% af landsframleiðslu. Skoðun 8. apríl 2021 13:30
Sökuð um brot á sóttkví eftir að hafa tekið lit í íslenskri sól „Þetta kom svo flatt upp á mig að ég náði bara ekki að svara fyrir mig, ég var hreinlega í sjokki. Konan hans stóð bara kinkandi kolli við hliðina á honum,“ segir Kristrún Úlfarsdóttir í færslu sem hún deildi í gær á Facebook síðunni Góða systir. Lífið 8. apríl 2021 12:31
Veirufrítt samfélag forsenda tilslakana Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir að markmiðin með sóttvarnaaðgerðunum hér á landi séu nokkuð ljós, þó að þau kunni að vefjast fyrir mörgum. Stefnt er að nánast veirufríu samfélagi hér á landi, áður en hægt verður að ráðast í tilslakanir. Innlent 8. apríl 2021 11:59
Sýktist aftur af nýrri undirtegund breska afbrigðisins Við erum ennþá að sjá talsverðan fjölda smita greinst innanlands en það er gleðilegt hvað margir eru í sóttkví við greiningu, sagði Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir á upplýsingafundi vegna Covid-19 faraldursins sem var að ljúka. Innlent 8. apríl 2021 11:50
Tjáði sig um ofbeldi sonarins fyrir andlátið: „Ætla aldrei að leyfa honum að koma nálægt mér aftur“ Innlent