

Jólavefur Vísis
Allt um undirbúninginn, aðventuna, uppskriftir, jólalög og margt fleira.

Endurnýtt á jólaborðið
Marga dreymir um að draga úr neysluhyggjunni um jólin. Ein leið er að kaupa notað jólaskraut og borðbúnað. Erla Ósk Arnardóttir Lilliendahl vinnur sem sjálfboðaliði á nytjamarkaði ABC barnahjálpar og lagði á borð með munum og skrauti úr versluninni til að gefa fólki hugmyndir.

Pabbi eyðilagði öll jól
"Hann fór duglegur að hóta okkur. Var einu sinni að keyra með okkur fullur og hótaði að fara fram af ef mamma myndir fara frá honum,“ segir Guðrún Lára Sveinbjörnsdóttir sem er 35 ára flugfreyja, íþróttafræðingur og einstæð móðir sex ára stúlku.

Eins og gangandi diskókúla
Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi Sósíalistaflokksins, stressar sig aldrei yfir því að kaupa sér nýjan jólakjól. Hún sækist eftir litríkum, glæstum og fágætum flíkum í verslunum sem selja notaðan fatnað og þar sem ágóðinn rennur til góðgerðarmála.

Stekkjastaur kom til byggða í nótt
Stekkjastaur kom til byggða í nótt. Honum fannst best að sjúga ærnar en var með staurfætur svo það gekk heldur erfiðlega.

Jólasveinar í skegg- og hársnyrtingu
Jólasveinarnir styrktu Hjálparstarf kirkjunnar um eina milljón króna

Dæturnar miðpunktur jólahaldsins
Ester Bergmann Halldórsdóttir setur jólaskrautið upp snemma en er jafn fljót að taka það niður aftur. Hún er ekki með mjög fastmótaðar jólahefðir og spilar jólahaldið í takt við þarfir ungra dætra.sinna.

Lausn fyrir lélega föndrara
Hrafnkell Örn Guðjónsson, eða Keli úr Agent Fresco, trommarinn sem allir þekkja og elska, sýnir á sér leyndar hliðar í nýju myndbandi fyrir UNICEf.

Dásamlega góðir marengstoppar
Ólöf Anna Bergsdóttir er ellefu ára Vesturbæingur sem töfrar fram smákökur og annað góðgæti fyrir jólin. Hún veit fátt skemmtilegra en að koma ættingjum og vinum á óvart með með nýjum uppskriftum.

Æðisleg jólaterta með rjómaostakremi
Unnur Anna Árnadóttir hefur mikla ástríðu fyrir bakstri og er dugleg að prófa sig áfram með nýjungar. Hún útbjó sérstaka jólatertu fyrir lesendur sem er bæði falleg og bragðgóð. Hægt er að skreyta tertuna að vild.

„Svolítið í Íslendingum að finnast það vera ódugnaður að ráða ekki við streituna“
Ólafur Þór Ævarsson, geðlæknir, segir heilbrigðisstarfsmenn nú sjá nýjan hóp í heilbrigðiskerfinu, það er fólk sem glímir við það sem kallað er sjúkleg streita.

Bakað með konu jólasveinsins
Bakarinn og grunnskólakennarinn Sveindís Ólafsdóttir kennir ungmennum í Fellaskóla veislubakstur í aðdraganda jóla. Hún segir börnin stolt af því að geta boðið upp á eigið jólagóðgæti.

Súrmjólkurbúðingur: Óvænt sælkeratromp á jólum
Súrmjólkurbúðingur er undurfrískandi ábætisréttur sem var einkar vinsæll á jólum fortíðar. Siglfirski hússtjórnarneminn Kolbrún Björk Bjarnadóttir lagaði rammíslenskan búðinginn sem hún segir einstakt sælgæti, en hún er annars vön að poppa út á jólaísinn.

Jólatré úr gömlum herðatrjám
Sigurjón Már Svanbergsson hefur gaman af því að smíða og endurnýta. Hann fékk þá hugmynd að gera jólatré úr gömlum herðatrjám og varð útkoman betri en hann þorði að vona. Efniviðinn í tréð fékk hann ýmist gefins eða á nytjam

Vegan mest viðeigandi á jólum
Guðrún Sóley Gestsdóttir segir að það sé auðvelt og skemmtilegt að venja sig á að borða vegan fæði á jólum og það eigi aldrei betur við, því bæði veganismi og jólin snúist um kærleika, frið og samkennd.

Oumph! wellington og sætkartöflumús með karamellupekanhnetum
"Það getur eiginlega ekki klikkað að leiða saman Oumph! og dýrðina sem er smjördeig. Það var góður dagur þegar ég uppgötvaði að langflest smjördeig er vegan, enda langoftast framleitt úr smjörlíki og olíum,“ segir Guðrún Sóley Gestsdóttir dagskrárgerðarkona.

Ódýr og öðruvísi bleik jól
Stílistinn og fjölmiðlakonan Þórunn Högna er alltaf með puttann á púlsinum í nýjustu tískustraumum heimilisins og hún hefur meðal annars verið að undanförnu að vinna fyrir Hús og Híbýli.

Ljúf jólastemning í skógræktinni í Heiðmörk
Jólamarkaður hefur verið haldinn við Elliðavatnsbæinn í Heiðmörk undanfarna áraratugi og er heimsókn á markaðinn orðin hluti af aðventuvenjum margra. Markaðurinn er opinn milli klukkan 12 og 17 allar helgar fram að jólum.

Jólamúffur Svandísar: Lærði að baka á Instagram
Svandís Nanna Pétursdóttir treysti sér ekki til að baka skírnartertu fyrir frumburð sinn í fyrra en gerir nú hverja listakökuna á fætur annarri. Hún hefur nær alfarið lært af myndböndum sem hún finnur á Instagram og þar fékk hún líka hugmynd að jólamúffum.

Skrúfum fyrir kranann
Hildur Dagbjört Arnardóttir og fjölskylda hennar hafa fyrir sið að gefa aðeins þeim jólagjafir sem halda með þeim upp á jólin. Þetta er liður í því að fækka gjöfum og minnka þannig það neyslubrjálæði sem við Íslendingar virðumst föst í, sérstaklega um hátíðirnar.

Eins og jólasveinninn á sterum
Hrönn Bjarnadóttir kann að gera sér og öðrum dagamun og þá sérstaklega í kringum jól. Hún gefur öllum sem hún þekkir heimagert konfekt, sendir hátt í hundrað jólakort og sér til þess að öll fjölskyldan, og þar með talið hundurinn, eigi samstæð jólanáttföt.

Toblerone-ís fyrir tólf
Uppskriftin dugir vel fyrir tólf og ísinn er bestur með jarðarberjum og þeyttum rjóma.

Bragðgóður þríleikur: Kransakökubitar með núggati, ostastangir og bláberjasörur
Hanna Þóra Th. Guðjónsdóttir tók jólabaksturinn snemma og gefur uppskrift að þremur gómsætum en afar ólíkum smákökum.

Alltaf í bað á aðfangadag
Þegar hillir undir lok 30. afmælisárs Stjórnarinnar er það dísæt rúsína í pylsuendanum að Sigga Beinteins og Grétar Örvarsson syngi saman nýútkomið og eina jólalag sveitarinnar.

Ljósin á Oslóartrénu tendruð í dag
Dagskráin hefst klukkan 16.00.

Jólatónleikar fyrir milljarð
Jólatónleikar og aðrir hátíðarviðburðir hafa aldrei verið fleiri á Íslandi en í ár. Áætlað heildarverðmæti miða nemur tæpum milljarði króna.

Vetrarparadís á Akureyri vekur athygli víða
Linda Ólafsdóttir tók myndir í morgun sem eru í deilingu um allan heim.

Bera saman heimagert og rándýrt piparkökuhús
Hópur sem kallar sig The Try Guys greina oft á tíðum frá sínum tilraunum á YouTube og birta skemmtileg innslög.

Oslóartrénu komið fyrir á sínum stað
Tréð verður tendrað á sunnudaginn, fyrsta í aðventu, klukkan 16.

Jólakötturinn kostaði 4,4 milljónir en verður ódýrari á næsta ári
Jólakötturinn hefur vakið mikla athygli eftir að ljós á honum voru tendruð við hátíðlega athöfn í miðbænum á laugardag.

Ungur háskólanemi gefur út hátíðarsmáskífu
Bergur Leó Björnsson, tvítugur háskólanemi, gaf út á dögunum sína fyrstu smáskífu.