

Innrás Rússa í Úkraínu
Fréttir af yfirstandandi innrás Rússa í Úkraínu sem hófst 24. febrúar 2022.

Hráolíuverð ekki verið hærra í sjö ár
Olíuverð hefur farið hækkandi síðustu daga og vikur. Tunna af Brent-hráolíu kostar nú 97,44 Bandaríkjadali og hefur ekki verið dýrari í sjö ár.

Vaktin: Innrás Rússlands í Úkraínu
Vladimír Pútín, forseti Rússlands, bað í dag um, og fékk fljótt, formlegt leyfi til að beita hernum utan landamæra ríkisins. Það var degi eftir að hann sendi hermenn inn í austurhluta Úkraínu þar sem aðskilnaðarsinnar sem eru hliðhollir Rússlandi og studdir af Rússum, ráða ríkjum.

Öryggiráðið fundar um stöðuna: Sendir herlið inn í Úkraínu og ber fyrir sig friðargæslu
Vladimir Pútín Rússlandsforseti hefur fyrirskipað að herlið fari inn í Luhansk og Donetsk. Hann segir því ætlað að sinna friðargæslu. Þegar eru um 190 þúsund rússneskir hermenn við landamæri Úkraínu. Nýjustu fréttir birtast í vaktinni hér að neðan.

Pútín viðurkennir sjálfstæði Luhansk og Donetsk
Rússlandsforseti hefur undirritað tilskipun um viðurkenningu Rússlands á sjálfstæði héraðanna Luhansk og Donetsk í austurhluta Úkraínu. Hann sagði í ávarpi í kvöld að Úkraína ætti sér enga sögu um að vera raunveruleg þjóð.

Bíða eftir afdrifaríku svari Pútíns á meðan spennan magnast við landamæri Úkraínu
Vladimir Pútin, forseti Rússlands, íhugar nú hvort hann muni svara ákalli um að viðurkenna sjálfstæði tveggja héraða í austanverðri Úkraínu. Þessu lýsti hann yfir á fundi með öryggisráði sínu í dag.

Ekki öll von úti um diplómatíska lausn í deilunni
Talsmaður Rússlandsforseta segir tilkynningar um leiðtogafund forseta Bandaríkjanna og Rússlands um ástandið í Úkraínu ótímabærar. Utanríkisráðherra segir að ástandið sé þegar orðið grafalvarlegt í Úkraínu.

Engin niðurnegld áform um leiðtogafund að sögn Rússa
Rússnesk yfirvöld segja að sem stendur séu engin niðurnegld áform um að Vladimír Pútín Rússlandsforseti og kollegi hans frá Bandaríkjunum, Joe Biden, hittist á leiðtogafundi til að ræða spennuna á landamærum Rússlands og Úkraínu.

Biden fellst á leiðtogafund með Pútín
Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur í stórum dráttum fallist á leiðtogafund með Vladimír Pútín Rússlandsforseta til að ræða ástandið í Úkraínu.

Rússar hættir við að hætta heræfingum í Hvíta-Rússlandi
Rússar hafa hætt við að kalla hermenn sína í Hvíta-Rússlandi aftur heim til Rússlands og þess í stað fært þá nær norðanverðum landamærum Úkraínu. Spennan á svæðinu magnast sífellt og nú búast flestir við innrás Rússa inn í landið á næstu dögum.

Segir Pútín hyggja á mesta stríð Evrópu frá 1945
Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, segir vísbendingar um að Vladimír Pútín, forseti Rússlands, sé að undirbúa mesta stríð Evrópu frá 1945. Þar að auki sé útlit fyrir að þær áætlanir séu þegar komnar af stað.

Innrás Rússa inn í Úkraínu gæti verið yfirvofandi
Innrás Rússa inn í Úkraínu gæti verið yfirvofandi á næstu dögum og hefði hörmulegar afleiðingar, að mati leiðtoga sem sótt hafa öryggisráðstefnu í Munchen í dag. Íslenskur sérfræðingur segir ómögulegt að segja til um hvað Pútín ætli sér.

Hvetja Íslendinga í Úkraínu til að láta vita af sér
Borgaraþjónusta utanríkisráðuneytisins hvetur íslenska ríkisborgara sem eru í Úkraínu til að láta vita af sér. Ráðuneytið vekur athygli á því að vegna óvissunnar á svæðinu hafa nokkur flugfélög ákveðið að hætta að fljúga til og frá landinu eftir helgi.

Aðskilnaðarsinnar setja á almenna herkvaðningu
Leiðtogar aðskilnaðarsinna í austurhluta Úkraínu, sem studdir eru af Rússlandi, hafa lýst yfir allsherjar herkvaðningu í Donetsk og Luhansk. Í gær tilkynntu þeir að almennir borgarar yrðu fluttir úr héruðunum og til Rússlands.

Sannfærður um að Pútín hafi ákveðið að ráðast inn í Úkraínu
Joe Biden Bandaríkjaforseti segir Vladimir Pútín þegar hafa ákveðið að gera frekari innrás í Úkraínu, meðal annars inn í höfuðborgina Kænugarð.

Blinken segir Vesturlönd standa saman hvað sem Putin geri
Stjórnvöld í Rússlandi hvetja rússneskumælandi Úkraínumenn til að flýja austurhéruð landsins yfir til Rússlands og heita þeim stuðningi. Sendiherra Rússlands er vonsvikinn yfir því sem hann kallar einhliða stuðning forseta Íslands og utanríkisráðherra við málstað Úkraínu.

Leiðtogar aðskilnaðarsinna skipa borgurum að flýja til Rússlands
Denisi Pushilin, leiðtogi aðskilnaðarsinna Donetsk í austurhluta Úkraínu, tilkynnti í dag að almennir borgarar héraðsins yrðu fluttir til Rússlands. Leiðtogar Lunhansk, hins héraðsins þar sem aðskilnaðarsinnar sem studdir eru af Rússum stjórna, hafa einnig tilkynnt að flytja eigi íbúa á brott.

Rússar æfa notkun kjarnorkuvopna
Ráðamenn í Rússlandi tilkynntu í morgun að halda ætti umfangsmikla kjarnorkuvopnaæfingu þar í landi um helgina. Æfingarnar hefjast á morgun en samkvæmt yfirlýsingu frá Varnarmálaráðuneyti Rússlands munu þær meðal annars fela í sér að skjóta eldflaugum sem geta borið kjarnorkuvopn á loft.

Segja Rússa nær því að gera innrás í Úkraínu
Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, segir enn líklegt að Rússar ætli sér að ráðast á Úkraínu og að það gæti gerst á næstu dögum. Þá segja Rússar að þeir neyðist til að bregðast við, verði kröfum þeirra ekki svarað, kröfum sem hefur þegar verið hafnað.

Saka hvora aðra um að brjóta gegn vopnahléi
Stjórnarher Úkraínu segir aðskilnaðarsinna í austurhluta landsins hafa skotið sprengjum að leikskóla. Aðskilnaðarsinnarnir, sem eru studdir af Rússlandi, segja stjórnarherinn hafa skotið sprengjum á þá fyrst.

Segja engin merki um að Rússar séu að draga sig til baka
Háttsettur bandarískur embættismaður segir að fullyrðingar Rússa um að þeir hafi fækkað í herliði sínu við landamærin að Úkraínu séu rangar.

Sigurvegari úkraínsku söngvakeppninnar fer ekki í Eurovision
Úkraínska ríkisútvarpið UA:PBC hefur hætt við að senda hina 28 ára gömlu Alinu Pash í Eurovision fyrir hönd Úkraínu. Söngkonan ferðaðist til Krímsskaga fyrir tæpum sjö árum síðan og ríkisútvarpið hafði ferðalagið sérstaklega til skoðunar.

Sjá ekki að Rússar fækki hermönnum
Forsvarsmenn Atlantshafsbandalagsins segjast ekki sjá ummerki þess að Rússar séu að draga úr viðbúnaði við landamæri Úkraínu. Ráðamenn í Rússlandi segjast vera að fækka hermönnum á svæðinu en þeim yfirlýsingum hefur verið tekið með tortryggni.

Glugginn til innrásar muni líklega lokast í þessari viku
Prófessor við Háskóla Íslands segir enn mikla óvissu um stöðu Rússlands og Úkraínu þrátt fyrir nýjustu yfirlýsingar Rússa. Glugginn til innrásar muni að öllum líkindum lokast í þessari viku en Rússar muni gera allt sem í þeirra valdi stendur til að tapa ekki stöðu sinni.

Rússar segjast flytja hluta hermanna sinna frá landamærunum
Varnarmálaráðuneyti Rússlands segir að hluti þeirra hermanna sem staðsettir hafi verið við landamærin að Úkraínu hafi nú verið dreginn til baka og þeir færðir aftur á herstöðvar sínar í Rússlandi.

Rússland-Úkraína: samningar frekar en stríð
Heimurinn fylgist með tilefnislausum yfirgangi Rússa gagnvart Úkraínu. Aðgerðir Rússa ógna ekki aðeins Úkraínu heldur Evrópu allri og alþjóðafriði sem byggist á ákveðnum reglum.

Leiðtogar Bandaríkjanna, Bretlands og Rússlands eygja enn von á lausn
Leiðtogar Bandaríkjanna, Bretlands og Rússlands segjast nú vongóðir um að hægt verði að leysa Úkraínudeiluna svokölluðu á diplómatískum grundvelli.

Kalla eftir fundi með Rússum
Mikil ólga er enn á landamærum Rússlands og Úkraínu en yfirvöld í Úkraínu hafa óskað eftir fundi með Rússum vegna stöðu mála. Óttast er að innrás sé yfirvofandi en forseti Úkraínu segist ekki hafa neinar sannanir fyrir því.

Almenningur mótmælir hernaðarumsvifum Rússa og æfir sig fyrir innrás
Úkraínumenn söfnuðust saman í miðborg Kænugarðs í gær og mótmæltu hernaðaræfingum Rússa á landamærunum að Úkraínu. Slagorðið „Say no to Putin“, eða Segið nei við Pútín, mátti sjá á spjöldum sem mótmælendur báru.

Tjáði Pútín að Vesturveldin myndu bregðast við af hörku ef til innrásar kæmi
Joe Biden Bandaríkjaforseti ræddi símleiðis við Vladímír Pútín Rússlandsforseta fyrr í dag vegna stöðunnar í Úkraínu en Rússar hafa undanfarið aukið viðbúnað sinn á landamærum Úkraínu og er óttast að þeir hyggi á innrás á næstunni.

„Leyfum okkur að vona það besta en við vissulega búum okkur undir það versta“
Utanríkisráðherra segir stöðuna í Úkraínu mikið áhyggjuefni og versna með hverjum klukkutímanum sem líður. Íslendingur á svæðinu segir að um æsing í vestrænum fjölmiðlum sé að ræða fremur en raunverulega hættu á stríði.