

Handbolti
Fréttir af handbolta og handboltafólki, bæði innanlands sem utan.

Eyjapeyjar sáu um þrif í TM-höllinni
Hvítu Riddararnir, stuðningssveit ÍBV, lagði sitt af mörkum til að sjálfboðaliðar í TM-höllinni í Garðabæ þyrftu ekki að vaka langt fram eftir kvöldi til að þrífa stúkuna eftir leik Stjörnunnar og ÍBV í úrslitakeppni Olís-deildar karla í handbolta í kvöld.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: Stjarnan - ÍBV 23-27 | Eyjamenn snéru taflinu við og sendu Stjörnuna í sumarfrí
ÍBV er komið í undanúrslit í úrslitakeppni Olís-deildar karla eftir að hafa sigrað Stjörnuna í TM-höllinni í Garðabæ nú í kvöld. Lokatölur 23-27 og ÍBV sigraði því einvígið 2-0 eftir að hafa unnið fyrri leikinn í Vestmannaeyjum 37-33 á laugardaginn.

„Þykir þetta vera glórulausar ákvarðanir hjá dómurunum“
Gunnar Steinn Jónsson, leikmaður Stjörnunnar, var eðlilega svekktur eftir að lið hans féll úr leik í átta liða úrslitum Olís-deildar karla í handbolta í kvöld eftir fjögurra marka tap gegn ÍBV.

Umfjöllun og viðtöl: Selfoss - FH 24-33 | FH sendi Selfoss í sumarfrí
Selfoss er úr leik eftir að hafa fengið skell gegn FH á heimavelli. Leikurinn endaði með níu marka sigri FH-inga 24-33. Gestirnir settu tóninn strax í upphafi leiks og sigurinn var gott sem kominn í hálfleik.Tímabilinu er lokið hjá Selfyssingum en FH mætir ÍBV í undanúrslitum.

„Get ekki verið neitt annað en sáttur með mína menn“
Patrekur Jóhannesson, þjálfari Stjörnunnar, gat verið stoltur af sínum mönnum þrátt fyrir að liðið hafi fallið úr leik í átta liða úrslitum Olís-deildar karla í handbolta í kvöld.

Teitur og félagar fengu skell og eru úr leik
Teitur Örn Einarsson og félagar hans í Flensburg eru úr leik í Evrópudeild karla í handbolta eftir átta marka tap gegn Granollers í átta liða úrslitum í kvöld, 27-35.

Íslendingalið Kadetten úr leik eftir grátlegt tap
Íslendingalið Kadetten Schaffhausen, undir stjórn Aðalsteins Eyjólfssonar og með Óðinn Þór Ríkharðsson innanborðs, er úr leik í Evrópudeildinni í handbolta eftir sex marka tap gegn Füchse Berlin í kvöld, 30-24.

Geðþóttaákvörðun IHF gæti skilað Íslandi á HM
Íslenska kvennalandsliðið í handbolta á enn möguleika á að komast á HM í desember, þrátt fyrir tapið gegn Ungverjalandi í umspili um sæti á mótinu.

Fundurinn með HSÍ vísir að leikriti: „Ekki að fara að vinna með þessum mönnum“
Það virðist orðið útilokað að Dagur Sigurðsson verði næsti landsliðsþjálfari karla í handbolta. Hann var fyrsti maðurinn sem að forkólfar HSÍ ræddu við eftir brotthvarf Guðmundar Guðmundssonar en segir fund með þeim hafa minnt á leikþátt og hefur ekki áhuga á að vinna með þeim.

Umfjöllun og viðtöl: Fram – Haukar 20-26 | Óvæntur stórsigur gestanna
Haukar sigruðu Fram, 26-20, í fyrsta leik liðanna í 6-liða úrslitum Olís deildar kvenna í Úlfarsárdal í kvöld. Haukakonur leiða nú einvígið eftir sannfærandi sigur og eru einu skrefi nær undanúrslitum.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: Stjarnan – KA/Þór 24-19 | Garðbæingar byrja vel
Stjarnan vann góðan fimm marka sigur á KA/Þór í fyrstu umferð úrslitakeppni Olís-deildar kvenna í handbolta.

„Við þurfum að mæta dýrvitlausar í leikinn“
Jafnt var í fyrri hálfleik 10-10 en KA/Þór misstu leikinn frá sér í seinni hálfleik og endaði leikurinn 24-19.

Blær hefur trú á því að strákarnir komist í úrslit og þá ætlar hann að reyna vera klár
Blær Hinriksson meiddist illa í leik gegn Fram í gær og margir töldu að tímabilinu væri lokið hjá miðjumanninum. Hann gæti nú mögulega snúið aftur ef Afturelding kemst alla leið í úrslitaeinvígið.

Misjafnt gengi Íslendingaliðanna
Íslendingaliðin Álaborg og Ribe-Esbjerg áttu misjöfnu gengi að fagna í úrslitakeppni danska handboltans í dag.

Blær er ekki brotinn
Blær Hinriksson, leikmaður Aftureldingar, sem meiddist illa í sigurleik gegn Fram í Úlfársárdal í fyrsta leik liðanna í 8-liða úrslitum Olís-deildar karla er ekki ökklabrotinn.

Fyrsta kjaftasagan hafi farið á flug skömmu eftir tilkynningu lögreglu
Bróðir Stefáns Arnars Gunnarssonar segist vona að færsla sem hann skrifaði á Facebook-síðu sína um helgina muni koma í veg fyrir að hlutir endurtaki sig í starfsumhverfi þjálfara á Íslandi. Hann segir fyrstu kjaftasöguna um bróður sinn hafa farið á flug sex tímum eftir að lögreglan lýsti eftir honum.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: Fram - Afturelding 30-33 | Mosfellingur leiða í einvíginu
Afturelding er komin í 1-0 í einvígi sínu gegn Fram í 8-liða úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn eftir þriggja marka sigur í framlengdum leik. Lokatölur 30-33 en staðan var 27-27 eftir venjulegan leiktíma.

Einar Jónsson: Ýmislegt annað sem má laga í þessum handboltaleik
Framarar eru lentir undir, 1-0, í einvígi sínu gegn Aftureldingu í 8-liða úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn. Varð það ljóst eftir framlengdan leik liðanna í Úlfarsárdal í kvöld þar sem lokatölur voru 30-33 Aftureldingu í vil.

Umfjöllun og viðtöl: Valur - Haukar 22-24 | Hafnfirðingar byrja einvígið með látum
Haukar eru komnir með forystuna í einvígi sínu í átta liða úrslitum Olís-deildar karla eftir sigur á Íslandsmeisturum Vals.

Ýmir Örn og félagar í Löwen bikarmeistarar eftir vítakeppni
Rhein-Neckar Löwen er þýskur bikarmeistari í handbolta eftir ævintýranlegan sigur á Magdeburg í úrslitum. Leikurinn fór alla leið í vítakeppni, að henni lokinni stóðu Ýmir Örn Gíslason og félagar í Löwen uppi sem sigurvegarar, lokatölur 36-34.

Segir Arnar Birki þurfa að velja á milli ÍBV og Svíþjóðar
Arnar Daði Arnarsson, umsjónarmaður hlaðvarpsins Handkastið, segir að Arnar Birkir Hálfdánsson þurfi á velja á milli ÍBV í Olís-deildinni og liðs í sænsku úrvalsdeildinni.

Umfjöllun og viðtöl: FH - Selfoss 30-29 | Óbærileg spenna í fyrsta leik
FH tók forystuna í einvíginu við Selfoss í átta liða úrslitum Olís-deildar karla í handbolta með sigri í fyrsta leik liðanna í kvöld, 30-29. Einar Sverrisson gat jafnað fyrir Selfyssinga úr vítakasti eftir að leiktíminn var runninn út en skaut í stöng.

„Úrslitakeppnin, er hún ekki bara byrjuð?“
Sigursteinn Arndal, þjálfari FH, var enn í miðju umróti tilfinninganna þegar hann mætti í viðtal eftir sigur sinna manna á Selfossi í kvöld, 30-29.

Gísli Þorgeir frábær þegar Magdeburg komst í úrslit
Það verður Íslendingaslagur í þýsku bikarkeppninni í handbolta þar sem Rhein-Neckar Löwen og Magdeburg mætast.

„Á endanum hafði Arnar minn ekki kraftinn til að standa af sér þennan storm“
Samúel Ívar Árnason, bróðir Stefáns Arnars Gunnarssonar, hefur á undanförnum vikum reynt að fá svör við því hvers vegna saga bróður hans endaði með þeim hætti sem hún gerði. Arnar fannst látinn fyrir tveimur vikum en þá hafði hans verið leitað í um mánuð.

Umfjöllun og viðtöl: ÍBV - Stjarnan 37-33 | Eyjamenn komnir í forystu
ÍBV vann fjögurra marka sigur á Stjörnunni í fyrsta leik liðanna í einvígi þeirra í 8-liða úrsltum Olís-deildarinnar. ÍBV leiddi allan tímann en Stjarnan náði að gera leikinn spennandi undir lokin.

Stórleikur Donna í sigri PAUC
Kristján Örn Kristjánsson skoraði níu mörk fyrir lið sitt PAUC þegar liðð vann 37-35 sigur á Créteil í frönsku úrvalsdeildinni í handknattleik í kvöld.

Elvar hetjan í ótrúlegri endurkomu Ribe-Esbjerg gegn Álaborg
Aron Pálmarsson og samherjar hans í Álaborg naga sig eflaust í handarbökin eftir ótrúlegt hrun liðsins gegn Ribe-Esbjerg þegar liðin mættust í úrslitakeppni dönsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik í kvöld.

Ísland upp um styrkleikaflokk og líkurnar á EM-sæti aukast
Líkurnar á að íslenska kvennalandsliðið í handbolta komist á EM 2024 jukust heldur betur í dag.

„Þetta lá þungt á mér“
Gunnar Magnússon, landsliðsþjálfari karla í handbolta, segir að mál þeirra Björgvins Páls Gústavssonar og Kristjáns Arnar Kristjánssonar hafi legið þungt á sér. Mikill léttir sé að lausn hafi fundist.