Engir hermenn í Úkraínu og enginn fundur með Pútín Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, segir ekki hægt að ræða öryggistryggingar handa Úkraínumönnum án aðkomu Rússa, sem eru ástæða þess að Úkraínumenn segjast þurfa öryggistryggingar. Það muni aldrei bera árangur og segir hann að Rússar muni ganga hart fram til að tryggja eigin hagsmuni. Erlent 20.8.2025 17:21
„Stríðin“ sex, stundum sjö, sem Trump segist hafa stöðvað Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur ítrekað haldið því fram að hann eigi friðarverðlaun Nóbels skilið, enda hafi hann bundið enda á eða komið í veg fyrir sex stríð. Stundum sjö. Hvaða stríð það eru sem hann er að tala um er þó ekki öllum ljóst. Erlent 20.8.2025 13:01
Segir ásakanir Evrópu barnalegar Ekki er hægt að koma á langvarandi friði milli Rússlands og Úkraínu án tillits til áhyggja Rússa hvað varðar öryggi og virðingu fyrir rússneskumælandi fólki í Úkraínu. Þetta segir Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, en hann segir einnig að leysa þurfi „grunnástæður“ átakanna og þvertók fyrir að innrás Rússa í Úkraínu snerist um landvinninga. Erlent 19.8.2025 14:03
Annasamt ár á Bessastöðum: Kóngafólk, keisari, umtöluð undirskrift og brúnir skór Innlent 1.8.2025 08:00
Hindranir í vegi þess að lífeyrissjóðirnir taki þátt í hernaðaruppbyggingu Evrópu Viðskipti innlent 9.7.2025 08:02
Sigfús Aðalsteinsson: Trömpistinn sem vill bjarga Íslandi Sigfús Aðalsteinsson varð ungur forstöðumaður á leikskóla en hætti eftir að hafa dregið sér fé og keypti skemmtistað í miðbænum. Hann er í dag fasteignasali en leiðir einnig fjöldahreyfingu þjóðernissinna sem hafa fengið sig fullsadda af streymi hælisleitenda til Íslands. Innlent 14. júní 2025 09:02
Nýkjörinn forseti Póllands: Trúrækinn sagnfræðingur og fyrrverandi hnefaleikakappi Karol Nawrocki, sagnfræðingur og fyrrverandi hnefaleikakappi verður næsti forseti Póllands. Þetta varð ljóst í morgun þegar talningu lauk. Hann hlaut rétt tæpt 51 prósent atkvæða og bar því afar nauman sigur úr býtum gegn Rafał Trzaskowski, fyrrverandi borgarstjóra Varsjár. Erlent 2. júní 2025 15:34
Sérstakar hleranir og símtölin sem gætu alltaf orðið til Leki á gögnum frá sérstökum saksóknara er kominn til rannsóknar hjá lögreglunni á Suðurlandi í máli sem má rekja allt aftur til falls bankanna haustið 2008. Hleranir, njósnir, vanhæfi, auðmenn og embættið sem enginn vildi stýra; allt er orðið að miklum graut og margir hættir að skilja málið. Jafnvel Namibíumál Samherja fléttast inn í það. Innlent 19. maí 2025 07:00
Átök auðkýfinganna: „Ekki farið fram hjá neinum að á milli okkar hefur andað köldu“ „Það hefur ekki farið fram hjá neinum að á milli okkar hefur andað köldu síðan mér var nauðbeygður kostur að reka Róbert úr forstjórastóli Actavis eftir að félagið fór á hliðina undir hans stjórn,“ skrifaði Björgólfur Thor Björgólfsson, auðugasti maður Íslands, á heimasíðu sína um samband þeirra Róberts Wessman í lok árs 2015. Viðskipti innlent 15. maí 2025 09:15
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rússar ítreka umfangsmiklar kröfur og Trump hótar að fara í fússi Friðarviðleitni Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, og erindreka hans virðist ekki ætla að bera árangur. Trump virðist þreyttur á að reyna að stilla til friðar og hefur hann sakað Úkraínumenn og Vólódímír Selenskí, forseta Úkraínu, um að standa í vegi friðar með því að vilja ekki verða við umfangsmiklum kröfum Rússa og þá sérstaklega fyrir það að vilja ekki viðurkenna tilkall Rússa til Krímskaga. Erlent 30. apríl 2025 07:31
Hvernig er nýr páfi valinn? Frans páfi er látinn og því mun kaþólska kirkjan, stærsta trúfélag heims, brátt velja sér nýjan leiðtoga. Kjör nýs páfa má hefjast að fjórtán dögum liðnum frá andláti sitjandi páfa. Um páfakjör gilda strangar, aldagamlar reglur og hefðir. Erlent 21. apríl 2025 11:03
Það sem við vitum og vitum ekki um manndrápið hrottalega Þrír karlmenn sæta enn einangrun grunaðir um aðkomu að manndrápi karlmanns í Þorlákshöfn á sjötugsaldri. Tveir þeirra hafa komið við sögu lögreglu í umtöluðum sakamálum. Spurningunni hvernig og hvers vegna ofbeldisfólkið komst í samband við karlmanninn er ósvarað. Vinkona segir hinn látna hafa verið einstakan mann. Innlent 4. apríl 2025 07:03
Það sem við vitum og vitum ekki í máli Ásthildar Lóu Barnsfaðir Ásthildar Lóu Þórsdóttur var nýorðinn sextán ára og sjálfráða þegar barn kom undir. Forsætisráðuneytið segir engum trúnaði hafa verið heitið konunni sem vakti athygli á málinu þvert á fullyrðingar hennar. Konan segist nýverið hafa komist að því að Ásthildur Lóa væri konan sem átti barnið, verið misboðið og því sett sig í samband við ráðuneytið. Innlent 25. mars 2025 10:19
Áföll hafa mótað Guðmund Inga: „Ég læt ekki valta yfir mig“ Guðmundur Ingi Kristinsson, sem tók um helgina við embætti mennta- og barnamálráðherra, hefur marga fjöruna sopið. Hann hefur mætt ýmsu mótlæti í gegnum tíðina, slysum sem leiddu til örorku og hefur verið lýst sem „sjálflærðum sérfræðingi“ en hann lauk ekki stúdentsprófi. Innlent 25. mars 2025 08:02
Af hverju talar Áslaug Arna um „smjörklípumenn“? Þegar Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins stóð í ritdeilum við Össur Skarphéðinsson í gær, kallaði hún Össur „þrautreyndan smjörklípumann.“ Íslenskum stjórnmálamönnum er enda tíðrætt um smjörklípur og smjörklípuaðferðir, gjarnan þegar erfið pólitísk mál eru í deiglunni. Lífið 23. mars 2025 17:09
Íhuga að sleppa taumnum á NATO lausum Ríkisstjórn Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, er með til skoðunar að gera umfangsmiklar breytingar á yfirstjórn herafla Bandaríkjanna. Ein þeirra gæti verið að Bandaríkin afsali sér stjórn á herafla Atlantshafsbandalagsins og þykir það til marks um að mögulega ætli Bandaríkjamanna að draga úr umsvifum sínum innan bandalagsins. Erlent 22. mars 2025 14:30
Hvað var Trú og líf? „Við kölluðum okkur Trú og líf því vildum lifa fyrir trú, en við vildum líka hafa lífið og vera lifandi,“ segir Halldór Lárusson, einn af stofnendum og helstu forsvarsmönnum Trúar og lífs, félagsskapar ungs fólks af trúarlegum toga sem var starfandi á níunda áratug síðustu aldar. Innlent 22. mars 2025 10:12
Skrautlegir fyrstu mánuðir hjá Flokki fólksins Mikið hefur gustað um Flokk fólksins á fyrstu þremur mánuðum ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur. Aðeins vika er síðan fráfarandi mennta- og barnamálaráðherra baðst afsökunar á ummælum um íslenska dómstóla. Innlent 21. mars 2025 19:01
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Í vandræðum í Kúrsk en bætt staða í austri Úkraínskir hermenn eiga í töluverðum vandræðum í Kúrskhéraði í Rússlandi, þar sem yfirráðasvæði þeirra hefur dregist mjög saman. Mögulegt er að hermenn verði umkringdir eða þurfi að hörfa frá bænum Sudzha í héraðinu. Erlent 11. mars 2025 09:02
Kaninn selur langmest af vopnum en framtíðin óviss Umsvif bandarískra hergagnaframleiðenda á heimsvísu hafa aukist til muna á undanförnum árum. Frá 2020 til og með ársins 2024 seldu bandarísk fyrirtæki um 43 prósent af öllum hergögnum sem gengu kaupum og sölu ríkja á milli, talið í veltu, en fimm árin þar áður var hlutfallið 35 prósent. Erlent 10. mars 2025 13:03
Ætla að sigra í vopnakapphlaupi við Rússa Leiðtogar ríkja Evrópusambandsins ætla í umfangsmikla hernaðaruppbyggingu á næstu árum. Stíft er fundað um varnarmál í Brussel þessa dagana en í dag fer fram leiðtogafundur þar sem þeir ræða auknar fjárveitingar til varnarmála og uppbyggingu hergagnaframleiðslu í Evrópu. Erlent 6. mars 2025 14:44
Ísland gæti orðið leiðandi í notkun hugvíkkandi efna Mikil og velheppnuð ráðstefna þar sem notkun hugvíkkandi efna í lækningaskyni fór fram um síðustu helgi. Þar talaði meðal annarra Rick Doblin sálfræðingur - afar þekktur meðal þeirra sem hafa gefið hugvíkkandi efnum í tengslum við meðferðarstarf gaum. Hann taldi Ísland hafa allt til að taka forystu á heimsvísu í þessum efnum. Og sá engin tormerki á því. Innlent 4. mars 2025 07:03
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Sýndi á spilin fyrir viðræður Vladimír Pútín, forseti Rússlands, vann líklega stóran sigur í gær. Hann gerði það ekki á víglínunni í Úkraínu eða í Kúrsk, heldur á alþjóðasviðinu og hafa málpípur hans fagnað ákaft. Erlent 13. febrúar 2025 14:11
Hefnd Ingu kom í bakið á Einari Enginn veit hvað verður með meirihlutann í borgarstjórn eftir að Einar Þorsteinsson sleit meirihlutasamstarfinu í borginni. Afdráttar- og fordæmalaus yfirlýsing Ingu Sæland, formanns Flokks fólksins, hefur heldur betur sett strik í reikninginn. Eins og staðan er núna er líklegast að vinsælasti borgarfulltrúinn: Sanna Magdalena Mörtudóttir verði næsti borgarstjóri. Innlent 10. febrúar 2025 10:55
Framsókn nær andanum þökk sé óvæntri ákvörðun Þegar Einar Þorsteinsson borgarstjóri tilkynnti oddvitum meirihlutans í borginni í gærkvöldi að hann ætlaði að sprengja samstarfið var fullkomlega óljóst hvort hann héldi velli sem borgarstjóri eða yrði dæmdur til starfa í minnihluta. Hann gaf flokknum sínum aftur á móti nauðsynlegt súrefni. Innlent 8. febrúar 2025 18:24
Hvað gengur Trump til með tollum? Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, vill beita Kanada, Mexíkó og Kína umfangsmiklum tollum og segir tolla gegn Evrópu væntanlega á næstunni. Viðbrögð markaða hafa að mestu verið á einn veg, þar sem flest ljós loga rauð í kauphöllum heimsins. Erlent 3. febrúar 2025 11:40