Tíu milljarðarnir sem ráðherra segir hafa farið til bílaleiga Kjartan Kjartansson skrifar 23. september 2026 13:33 Jóhann Páll Jóhannsson, loftslagsráðherra, (t.v.) sagði losunarmarkmið Íslands ekki nást nema erlendir ferðamenn keyrðu rafbíla í stórauknum mæli. Of miklir peningar hefðu verið gefnir bílaleigum í tíð fyrri ríkisstjórnar fyrir of lítinn árangur. Vísir Beinir styrkir til rafbílakaupa, ýmis konar virðisaukaskattsundanþágur og afslættir að andvirði tæpra tíu milljarða króna er það sem loftslagsráðherra vísaði til þegar hann talaði um ríkisstuðning til bílaleigufyrirtækja í gær.
Forstjórar bílaleigufyrirtækja voru sumir hverjir ósáttir við ummæli Jóhanns Páls Jóhanssonar, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, um að fyrirtækin hefði fengið um tíu milljarða króna beint og óbeint í ríkisstuðning í nafni loftslagsmála í tíð síðustu ríkisstjórnar. Ummælin lét ráðherrann falla þegar kynntar voru bráðabirgðatölur um losun Íslands á gróðurhúsalofttegundum árið 2025. Þar kom fram að losun frá vegasamögnum hefði aukist um 1,3 prósent á milli ára. Þrátt fyrir ríkisaðstoðina hefði hlutfall rafbíla sem bílaleigurnar keyptu inn til landsins aðeins aukist úr sjö prósentum í fjórtán. „Það er búið að gefa alveg nógu mikið af peningum. Við verðum að fara vel með peninga. Ómarkvissar peningagjafir í nafni loftslagsmála grafa undan loftslagsaðgerðum, grafa undan trúverðugleika þeirra,“ sagði ráðherrann. Kröfðust sundurliðunar Forstjóri bílaleigunnar Hölds á Akureyri sagðist ekki skilja hvaðan ráðherrann fengi tölurnar sem hann nefndi um stuðning við fyrirtækin í viðtali í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í gær. „Ég skil ekki hvar hann fær þessa tölu, tíu milljarða. Mér er það lífsins ómögulegt, þannig ég hlakka til að fá sundurliðun á þessu,“ sagði Steingrímur Birgisson forstjóri Hölds, sem sjálfur taldi stjórnvöld setja sér of háleit loftslagsmarkmið. Í svipaðan streng tók Sigurður Berndsen, forstjóri Herz, í athugasemdum sem hann sendi Vísi í gær. Fullyrti hann að bílaleigurnar hefðu ekki fengið tíu milljarða króna afhenta úr ríkissjóði til frjálsrar ráðstöfunar. Ráðherrann þyrfti að leggja fram nákvæma sundurliðun á styrkjunum. Afslættir af vörugjaldi, vaskur felldur niður og beinir styrkir Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið vísaði til talna sem komu fram í minnisblaði sem fjármála- og efnahagsráðuneytið sendi efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis í nóvember þegar Vísir óskaði eftir upplýsingum um hvað lægi að baki ummælum Jóhanns Páls. Í minnisblaðinu voru raktar ýmis konar ívilnanir og beinir styrkir sem bílaleigurnar nutu til þess að liðka fyrir að þær rafvæddu bílaflota sinn á árunum 2021 til 2025. Alls hafi andvirði þeirra numið um 9,7 milljörðum króna á tímabilinu. Um það bil 2,5 milljarðar króna hafi runnið til bílaleigufyrirtækja í formi afslátta af vörugjaldi á bíla sem ganga fyrir jarðefnaeldsneyti frá 2021 til 2022. Afslættinum fylgdi skilyrði um að bílaleigurnar skuldbyndu sig til þess að kaupa tiltekið hlutfall rafbíla á tímabilinu. Undanþága frá virðisaukaskatti fyrir endursölu á vistvænum bílum sem bílaleigur fengu frá 2021 til 2025 kostuðu ríkið um tvo milljarða króna. Þá segir ráðuneytið að bílaleigurnar hafi fengið undanþága frá virðisaukaskatti fyrir útleigu vistvænna bíla fyrir tæplega 3,5 milljarða króna frá 2021 til 2025. Útleiga á bílunum hefði alla jafna borið 24 prósent virðisaukaskatt. Beinir styrkir sem bílaleigufyrirtæki fengu frá Orkusjóði til rafbílakaupa frá 2023 til 2025 námu um 1,7 milljörðum króna. Lagðist gegn framlengingu á ívilnunum Í minnisblaðinu sem loftslagsráðuneytið vísar til voru tekin saman viðbrögð fjármálaráðuneytisins við umsögnum bílaleigufyrirtækja um breytingar sem þá voru fyrirhugaðar á kílómetragjaldi og vörugjöldum ökutækja. Fjármálaráðuneytið lagðist þar gegn kröfum bílaleiganna um að virðisaukaskattsívilnanir þeirra yrðu framlengdar. Sú aðgerð hefði upphaflega beinst að almenningi og ekki átt að ívilna bílaleigum sérstaklega enda hefðu margvísleg önnur úrræði boðist þeim til stuðnings orkuskipta í formi skattastyrkja og beinna framlaga úr ríkissjóði. Benti ráðuneytið á að þrátt fyrir ívilnanirnar væri hlutfall nýskráðra rafbíla hjá bílaleigum aðeins níu prósent. Hlutfallið væri 49 prósent hjá öðrum fyrirtækjum og sextíu prósent hjá einstaklinga. Hlutfall hreinorkuabíla í flota bílaleiganna hefði verið átta prósent í nóvember 2025. Jóhann Páll sagði í ávarpi sínu í gær að bílaleigur hefðu mikil áhrif á framboð á notuðum bílum á Íslandi þar sem þær stæðu fyrir hátt í helmingi af öllum nýskráningum fólksbíla. Ekki væri hægt að ná skuldbindingum um samdrátt í samfélagslosun Íslands nema ferðamenn notuðu rafbíla í stórauknum mæli. „Ef ekki, ef við ætlum að líta á það bara sem sjálfsagt mál að mikill meirihluti ferðamanna keyri um á bensín- og dísilbílum, og að það sé þá allt morandi í jarðefnaeldsneytisbílum á eftirmarkaði á næstu árum, þá jafngildir það bara ákvörðun um það að skattgreiðendur á Íslandi niðurgreiði losun ferðamanna í stórum stíl með kaupum úr ríkissjóði á losunarheimildum eftir nokkur ár,“ sagði loftslagsráðherrann.
Bílaleigur Vistvænir bílar Skattar, tollar og gjöld Loftslagsmál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar (2024) Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur (2017-2024) Ferðaþjónusta Orkuskipti Fréttaskýringar Mest lesið Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Sjá meira