„Vel skipulögð herferð“ gegn ETS-losunarkerfinu Kjartan Kjartansson skrifar 17. febrúar 2026 07:01 Þýskt kolaorkuver spúri reyk út í andrúmsloftið. Evrópsk iðnfyrirtæki þrýsta nú á Evrópusambandið að draga úr kröfum til þeirra um takmörkun á losun gróðurhúsalofttegunda. Vísir/EPA Stóriðjufyrirtæki í Evrópu halda nú uppi harðri gagnrýni á viðskiptakerfi Evrópusambandsins með losunarheimildir. Sérfræðingur í kolefnismörkuðum telur vel skipulagða herferð í gangi til þess að hafa áhrif á endurskoðun kerfisins sem stendur fyrir dyrum.
ETS-viðskiptakerfið með losunarheimildir hefur lengi verið stóriðju í Evrópu þyrnir í augum. Tilgangur þess er að láta iðnfyrirtæki greiða fyrir losun gróðurhúsalofttegunda sem þau valda og skapa hvata til þess að þau dragi úr losuninni. Losun gróðurhúsalofttegunda er orsök loftslagsbreytinga og hnattrænnar hlýnunar sem ógnar stöðugleika samfélaga manna og vistkerfa jarðar. Frá því að ETS-kerfið var tekið upp árið 2005 hefur losun frá iðnaði sem fellur undir það dregist saman um helming. Önnur losun innan Evrópu hefur dregist saman um fimmtung á sama tíma. ETS-kerfið er hannað til þess að gera það smám saman dýrara fyrir fyrirtæki að losa gróðurhúsalofttegundir. Upphaflega fengu fyrirtæki ókeypis heimildir fyrir hluta losunar sinnar en þeim hefur verið fækkað í áföngum. Á þessu ári fá þau í fyrsta skipti engar fríar heimildir. Fulltrúar iðnaðarins skutu fast á ETS-kerfið og vaxandi kostnað fyrirtækja vegna þess á evrópskum ráðstefnum í síðustu viku, að því er kemur fram í frétt dagblaðsins Politico. „Aukinn kolefniskostnaður hrekur virðiskeðjur út úr Evrópu,“ sagði Markus Kamieth, forstjóri þýska efnarisans BASF á ráðstefnu í Antwerp. Friedrich Merz Þýskalandskanslari og leiðtogi Kristilegra demókrata gagnrýndi ETS-kerfið á fundi evrópskra leiðtoga í síðustu viku.. Myndin er úr safni.EPA Nokkrir evrópskir leiðtogar eru einnig sagðir hafa ámálgað áhyggjur af ETS-kerfinu á fundi þeirra í Belgíu á fimmtudag. Friedrich Merz, kanslari Þýskalands, sagðist telja að endurskoða þyrfti kolefnismarkaðinn og jafnvel að taka þyrfti hann úr sambandi. Hann dró þó síðar í land. Verð á losunarheimildum féll um ellefu prósent eftir fréttir af gagnrýni iðnfyrirtækja á kerfið og efasemda evrópskra þjóðarleiðtoga um það. Reuters-fréttastofan segir að verðið hafi fallið um fimmtung frá upphafi árs. Reyna að hafa áhrif á endurskoðunina síðar á þessu ári Undir stjórn Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, er sambandið þegar byrjað að veikja ýmsar umhverfisreglugerðir til þess að létta evrópskum fyrirtækjum lífið. ETS-kerfið sjálft kemur til endurskoðunar síðar á þessu ári til þess að aðlaga það að nýjum loftslagsmarkmiðum ESB fyrir árið 2040. Marcus Ferdinand, aðalgreinandi hjá Veyt, greiningarfyrirtækis kolefnismarkaða, setur árásir evrópskra iðnjöfra á kerfið í samhengi við þá endurskoðun. Síðasta vika virðist þannig „nokkuð vel skipulögð herferð gegn ETS af hálfu hluta af evrópska iðnaðarsamfélaginu til þess að reyna að setja markið lægra þegar ETS verður endurskoðað“, að mati Ferdinand. Herferðin nær einnig til Íslands Íslensk stjórnvöld herjuðu tímabundna og séríslenska undanþágu út úr ESB sem leyfir þeim að niðurgreiða losun flugfélaganna með því að gefa þeim losunarheimildir. Sú sérlausn rennur að óbreyttu út eftir þetta ár. Gagnrýni íslenskra hagsmunaaðila og stjórnvalda á álögur á flugfélög lítur að því að vegna staðsetningar sinnar á útjaðri EES-svæðisins séu flugleiðir lengri að meðaltali til og frá Íslandi en í öðrum ríkjum þess. Þannig leggist aukinn kostnaður við kaup á losunarheimildum þyngra á íslensk flugfélög en önnur. Þrátt fyrir sérlausnina sem Ísland fékk hafa fulltrúar Icelandair gagnrýnt harðlega stóraukinn kostnað við kaup á losunarheimildum. Viðskiptaráð birti einnig gagnrýni á ETS-kerfið í síðustu viku sem það lýsti sem „Atlantshafsálagi“ á Ísland, sérstökum fjarlægðarskatti sem legðist þungt á íslensk fyrirtæki. Lilja Alfreðsdóttir, nýkjörinn formaður Framsóknarflokksins, sagði kolefnisgjöldin á flugfélög og iðnað „galin“ í viðtali í morgun og að hún trúði ekki að ESB ætlaði að skattleggja Ísland til jafns við Evrópuríki þar sem hægt væri að ferðast á milli landa í lestum, rútum og bílum. Í Evrópu er jarðefnaeldsneyti eins og kol og jarðgas enn víða notað til kyndingar og raforkuframleiðslu. Orkufyrirtæki þar þurfa því að greiða fyrir losunarheimildir, ólíkt íslenskum orkufyrirtækjum sem nota að mestu leyti vistvæna orkugjafa. Telja kolefnistolla á skussa veikja stöðu Íslands Til þess að reyna að jafna samkeppnisstöðu evrópsks iðnaðar gagnvart fyrst og fremst bandarískum og kínverskum fyrirtækjum sem sæta ekki sömu kvöðum vegna losunar ætlar Evrópusambandið að innleiða sérstakan kolefnistoll á innfluttar vörur frá slíkum ríkjum. Viðskiptaráð sagði í áliti sínu í síðustu viku að slíkar aðgerðir kæmu álverum á Íslandi illa. Kolefnistollar af þessu tagi jöfnuðu aðeins samkeppnisstöðu fyrirtækja sem seldu ál innan Evrópu. Framleiðendur utan Evrópu sem seldu vörur sínar á öðrum mörkuðum greiddu ekkert kolefnisgjald og þannig verðlegðu evrópsku kolefnistollarnir í reynd íslenska álframleiðslu út af mörkuðum utan Evrópu. Vildi ráðið að íslensk stjórnvöld fengju varanlega undanþágu frá ETS-kerfinu en gripu að öðrum kosti til aðgerða til þess að losa sig undan skuldbindingum þess. Álver Rio Tintó í Straumsvík. Það er eitt þeirra fyrirtækja á Íslandi sem fellur undir ETS-viðskiptakerfið evrópska.Vísir/Vilhelm Hnattræn hlýnun nemur nú meira en heilli gráðu borið saman við viðmiðunartímabil fyrir iðnbyltingu og styrkur gróðurhúsalofttegunda í lofthjúpi jarðar hefur að líkindum ekki verið meiri í milljónir ára. Losun manna nemur nú tugum milljarða tonna af koltvísýringsígildum á hverju ári. Haldi hún áfram í þeim takti gæti hnattræn hlýnun náð hátt í fjórum gráðum fyrir lok aldarinnar, langt umfram þau mörk sem ríki heims komu sér saman um að þau treystu sér að lifa með í Parísarsamkomulaginu. Vegna þess að gróðurhúsalofttegundir safnast upp í lofthjúpnum til allt að þúsund ára er eina leiðin til þess að stöðva hnattræna hlýnun að hætta alfarið losun gróðurhúsalofttegunda.
Stóriðja Fréttir af flugi Evrópusambandið Loftslagsmál Fréttaskýringar Mest lesið Hafna ásökunum um hönnunarstuld Viðskipti innlent Birgitta Líf ráðin framkvæmdastjóri Viðskipti innlent Eldrauð Kauphöll Viðskipti innlent Iðnaðurinn forherðist í andstöðu gegn ESB Viðskipti innlent Opna Lindex þar sem Útilíf var Viðskipti innlent Verða af hundruðum þúsunda á ári þegar akstursdagbókin gleymist Samstarf Taka skemmtiferðaskip í Vör Viðskipti innlent Netflix kaupir gervigreindarfyrirtæki Affleck Viðskipti erlent Losun Landsvirkjunar jókst vegna virkjanaframkvæmda Viðskipti innlent Hagnaður tveimur milljörðum meiri en árið áður Viðskipti innlent Fleiri fréttir Iðnaðurinn forherðist í andstöðu gegn ESB Opna Lindex þar sem Útilíf var Hafna ásökunum um hönnunarstuld Losun Landsvirkjunar jókst vegna virkjanaframkvæmda Birgitta Líf ráðin framkvæmdastjóri Eldrauð Kauphöll Taka skemmtiferðaskip í Vör Hagnaður tveimur milljörðum meiri en árið áður Pipar/TBWA með flesta Lúðra Skipti ekki máli hvaðan olían er Pálmi til liðs við Sagafilm Máttu ráðast í húsleit hjá Skel og Lyfjum og heilsu Þorsteinn nýr formaður stjórnar Samtaka iðnaðarins Bein útsending: Iðnþing 2026 Birgitta Líf gefur ekkert upp um næstu skref Hildur fer frá Hörpu til KPMG Ríkarður ráðinn aðstoðarforstjóri Hrafn frá Össuri til Gosfélagsins Útflutningstekjur tækni- og hugverkaiðnaðar hærri en í sjávarútvegi í fyrsta sinn Stríðið geti ýtt undir stöðuna í hagkerfinu Bein útsending: Orkueyjan og alþjóðleg samkeppni Hagkerfið allt í hættu 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Átökin geri baráttuna við verðbólguna enn erfiðari Mun leiða Fab Lab Reykjavík Jón Örn genginn í eigendahópinn Óvíst að fullyrðing um kjaragliðnun standist skoðun Halla ráðin markaðsstjóri BM Vallár Andri Þór hættir sem forstjóri Ölgerðarinnar Gjaldþrot Play nemur 21 milljarði króna Sjá meira