FCK hafnaði tveggja milljarða tilboði Salzburg í Hákon Danmerkurmeistarar FC Kaupmannahafnar höfnuðu tilboði Red Bull Salzburg í íslenska landsliðsmanninn Hákon Arnar Haraldsson. Fótbolti 19. janúar 2023 11:42
Segir að dómurinn í máli Söru geti haft svipuð áhrif og Bosman-dómurinn Sif Atladóttir segir að dómurinn í máli Söru Bjarkar Gunnarsdóttur gegn Lyon geti haft svipuð áhrif og Bosman-dómurinn frægi. Fótbolti 19. janúar 2023 09:01
Greiðir 370 milljónir króna vegna miða á fótboltaleik Sádi-arabíski fasteignamógúllinn Mushref Al-Ghamdi hefur greitt andvirði 370 milljóna íslenskra króna fyrir miða á fótboltaleik í kvöld. Miðanum fylgja nefnilega ýmis konar fríðindi. Fótbolti 19. janúar 2023 08:31
Heimskulegt og gert í algjöru hugsunarleysi Sigurður Gísli Bond Snorrason, fyrrverandi leikmaður Aftureldingar, segir það hafa verið heimskulegt af sér að veðja á sína eigin knattspyrnuleiki. Strangt til tekið vissi hann að þetta væri ólöglegt en hann segist aldrei hafa labbað inn á knattspyrnuvöll með neitt annað hugarfar en að vinna leikinn. Fótbolti 19. janúar 2023 00:05
Inter lagði nágranna sína örugglega og lyfti Ofurbikarnum Úrslit ítalska ofurbikarsins, þar sem lands- og bikarmeistarar Ítalíu mætast, fór fram í Riyadh í Sádi-Arabíu í kvöld. Fór það svo að Inter vann öruggan 3-0 sigur á nágrönnum sínum í AC Milan. Fótbolti 18. janúar 2023 21:20
Sverrir Ingi og félagar með óvæntan bikarsigur á Panathinaikos Sverrir Ingi Ingason var í byrjunarliði PAOK sem vann 2-0 sigur á Panathinaikos í fyrri viðureign liðanna í grísku bikarkeppninni í fótbolta. Fótbolti 18. janúar 2023 20:46
Brann vill fá Aron Elís Norska úrvalsdeildarliðið Brann hefur áhuga á íslenska landsliðsmanninum Aroni Elísi Þrándarsyni. Fótbolti 18. janúar 2023 17:02
Luis Suarez með þrennu í fyrsta leik Luis Suarez var fljótur að minna á sig í fyrsta leik sínum með brasilíska félaginu Gremio. Fótbolti 18. janúar 2023 15:30
Megan Rapione styður Söru og skammar Lyon Bandaríska ofurstjarnan Megan Rapinoe hefur sent Lyon tóninn fyrir það hvernig félagið kom fram við Söru Björk Gunnarsdóttur. Fótbolti 18. janúar 2023 14:19
Einfættur maður gæti átt mark ársins hjá FIFA Geggjað mark Marcin Oleksy er eitt af þeim mörkum sem koma til greina sem mark ársins hjá Alþjóða knattspyrnusambandinu. Fótbolti 18. janúar 2023 13:30
Lyon þurfti að borga Söru Björk 12,7 milljónir króna plús vexti Sigur íslensku knattspyrnukonunnar Söru Bjarkar Gunnarsdóttur í máli hennar gegn fyrrverandi félagi hennar, Lyon, er að flestra mati tímamótasigur í réttindum leikmanna um fæðingarorlof og hefur vakið mikla athygli í erlendum miðlum sem og hér á landi. Fótbolti 18. janúar 2023 11:07
Sigur Söru sé tímamótasigur í réttindum leikmanna um fæðingarorlof Leikmannasamtökin FIFPRO segja að sigur Söru Bjarkar Gunnarsdóttur í máli hennar gegn fyrrverandi félagi hennar, Lyon, sé tímamótasigur í réttindum leikmanna um fæðingarorlof. Félaginu var gert að greiða Söru vangoldin laun frá því að hún var ófrísk. Fótbolti 18. janúar 2023 07:01
Lyon svarar Söru og segist hafa gert allt sem það gat til að styðja við bakið á henni Franska knattspyrnufélagið Lyon sendi frá sér fréttatilkynningu fyrr í kvöld þar sem félagið svarar gagnrýni Söru Bjarkar Gunnarsdóttur. Sara skrifaði langa grein á vefsíðunni The Players Tribune þar sem hún segir frá því hvað gerðist þegar hún varð ólétt og hvernig Lyon tók á því, en félagið segist hafa gert allt sem í þeirra valdi stóð til að styðja við hana. Fótbolti 17. janúar 2023 23:16
Toppliðið úr leik eftir tap gegn botnliðinu í vítaspyrnukeppni Napoli, topplið ítölsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta, er fallið úr leik ítölsku bikarkeppninnar Coppa Italia eftir tap gegn botnliði deildarinnar, Cremonese, í vítaspyrnukeppni. Fótbolti 17. janúar 2023 22:55
Rúnar og félagar úr leik eftir tap gegn toppliðinu Rúnar Alex Rúnarsson og félagar hans í Alanyaspor eru úr leik í tyrknesku bikarkeppninni í fótbolta eftir að liðið tapaði 2-1 gegn toppliði tyrknesku úrvalsdeildarinnar Galatasaray í kvöld. Fótbolti 17. janúar 2023 19:45
Jón Dagur skoraði í grátlegu jafntefli Jón Dagur Þorsteinsson skoraði eina mark OH Leuven er liðið þurfti að sætta sig við 1-1 jafntefli gegn Eupen í belgísku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Fótbolti 17. janúar 2023 19:27
Forseti franska knattspyrnusambandsins sakaður um kynferðislega áreitni Forseti franska knattspyrnusambandsins, Noël Le Graët, er til rannsóknar vegna kynferðislegrar áreitni. Fótbolti 17. janúar 2023 17:46
Sara fékk ekki greidd laun hjá Lyon og mátti ekki taka soninn með í útileiki Sara Björk Gunnarsdóttir, fyrrverandi landsliðsfyrirliði, hefur svipt hulunni af því sem gerðist hjá Lyon þegar hún varð ólétt og eftir að hún eignaðist son sinn. Lyon borgaði henni ekki laun eftir að hún varð ólétt og framkvæmdastjóri Lyon sagði að ef hún færi með málið til FIFA ætti hún sér enga framtíð hjá félaginu. Fótbolti 17. janúar 2023 16:52
Leikmaður Aftureldingar veðjaði á eigin leiki og hundruð til viðbótar Knattspyrnumaður sem spilaði með Aftureldingu í næstu efstu deild Íslandsmótsins sumarið 2022 veðjaði á hundruð knattspyrnuleikja hér á landi á sama sumar. Meðal annars leiki sem hann spilaði. Fótbolti 17. janúar 2023 16:34
„Ef þið fallið þá getið þið hvergi falið ykkur“ Spænska knattspyrnufélagið Sevilla hefur upplifað mun betri tíma en þá sem leikmenn og stuðningsmenn þurfa að ganga í gegnum þessa dagana. Fótbolti 17. janúar 2023 13:30
KSÍ styður Norrænu EM-umsóknina Knattspyrnusamband Íslands styður sameiginlega umsókn Danmerkur, Finnlands, Noregs og Svíþjóðar um að halda EM kvenna eftir tvö ár. Fótbolti 17. janúar 2023 13:01
Mjög ósáttar með að fá ekki æfingaferð í sólina eins og karlaliðið Íslendingaliðið Rosenborg í norsku kvennadeildinni hefur fengið á sig gagnrýni fyrir að tíma ekki að bjóða kvennaliði sínu upp á það sama og karlaliðið fær. Fótbolti 17. janúar 2023 10:00
Drepinn af hundunum sínum Fótboltasamfélagið í Sambíu hefur síðustu daga syrgt fyrrverandi landsliðsframherjann Philemon Mulala sem lést eftir að hundarnir hans réðust á hann. Hann var sextugur að aldri. Fótbolti 17. janúar 2023 08:01
Albert og félagar með mikilvægan sigur í „Íslendingaslag“ Genoa vann mikilvægan 1-0 sigur á Venezia í Serie B, næstefstu deild Ítalíu í knattspyrnu. Albert Guðmundsson var í byrjunarliði Genoa á meðan enginn Íslendingur var í leikmannahópi Venezia að þessu sinni. Fótbolti 16. janúar 2023 20:31
Mikael Egill á förum frá Spezia Landsliðsmaðurinn Mikael Egill Ellertsson er á förum frá ítalska úrvalsdeildarfélaginu Spezia á næstu dögum. Mikael Egill var hvergi sjáanlegur þegar Spezia lagði Torino 1-0 á útivelli í gær, sunnudag. Fótbolti 16. janúar 2023 18:00
Taktleysi í Tórínó: Kevin Spacey heiðursgestur á leik Nokkra athygli vakti þegar bandaríski leikarinn Kevin Spacey var heiðursgestur á leik Torino og Spezia í ítölsku úrvalsdeildinni í gær. Fótbolti 16. janúar 2023 16:01
Sjáðu hvernig táningurinn kláraði Real Madrid Hinn átján ára gamli Pablo Martín Páez Gavira, eða Gavi eins og hann er oftast kallaður, átti sannkallaðan stórleik þegar Barcelona vann í gær sinn fyrsta titil undir stjórn Xavi. Fótbolti 16. janúar 2023 14:30
Dybala með tvö fyrir Roma í góðum sigri Paulo Dybala skoraði bæði mörk Roma sem sagði Fiorentina í Serie A í kvöld. Í Frakklandi tapaði PSG gegn Rennes. Fótbolti 15. janúar 2023 21:49
Dagný í liði West Ham sem tapaði fyrir Manchester City Dagný Brynjarsdóttir lék allan leikinn í liði West Ham sem beið lægri hlut á heimavelli gegn Manchester City í dag. West Ham er í sjötta sæti ensku úrvalsdeildarinnar. Fótbolti 15. janúar 2023 21:42
Barcelona vann spænska ofurbikarinn eftir öruggan sigur á erkifjendunum Barcelona tryggði sér í kvöld spænska ofurbikarinn í knattspyrnu eftir 3-1 sigur á erkifjendum sínum í Real Madrid. Sigur Barcelona var öruggur en Real klóraði í bakkann í uppbótartíma. Fótbolti 15. janúar 2023 21:06