Greiðslur Barcelona til varaformanns dómaranefndar hafi ekki haft áhrif á úrslit Spænski ríkissjóðurinn hefur ekki fundið neinar sönnunargögn sem benda til þess að greiðslur spænska stórveldisins Barcelona til fyrirtækis í eigu José María Enríquez Negreira á árunum 2016 til 2018 hafi haft áhrif á úrslit í leikjum félagsins. Negreira var á þessum tíma varaformaður spænsku dómaranefndarinnar, CTA. Fótbolti 22. mars 2023 07:01
Á förum frá Liverpool eftir að hafa leikið aðeins fjórtán mínútur Brasilíski knattspyrnumaðurinn Arthur Melo verður ekki áfram í herbúðum Liverpool eftir að lánssamningur hans frá Juventus rennur út í sumar. Fótbolti 21. mars 2023 23:31
Hlé verði gert á leikjum svo leikmenn geti brotið föstu Dómarar í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu hafa fengið tilmæli um að reyna að gera hlé á kvöldleikjum deildarinnar næsta mánuðinn svo þeir leikmenn sem fagna Ramadan geti brotið föstu. Fótbolti 21. mars 2023 22:37
Börsungar með naumt forskot fyrir seinni leikinn Barcelona vann nauman 0-1 sigur er liðið heimsótti Roma í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu kvenna í knattspyrnu í kvöld. Fótbolti 21. mars 2023 22:00
Íslendingalið Bayern fer með forystu til Lundúna Íslendingalið Bayern München vann góðan 1-0 sigur er liðið tók á móti Arsenal í Meistaradeild Evrópu kvenna í knattspyrnu í kvöld og er því með forskot fyrir seinni leikinn sem fer fram í Lundúnum í næstu viku. Fótbolti 21. mars 2023 19:39
Hákon kemur inn vegna höfuðmeiðsla Elíasar Elías Rafn Ólafsson, markvörður Midtjylland og íslenska karlalandsliðsins í fótbolta, þurfti að draga sig úr landsliðshópnum fyrir komandi leiki við Bosníu og Liechtenstein í undankeppni EM 2024. Hákon Rafn Valdimarsson tekur sæti hans. Fótbolti 21. mars 2023 18:50
Krossbandið slitið og Kyle McLagan ekkert með á tímabilinu Víkingur verður án bandaríska miðvarðarins Kyle McLagan í allt sumar eftir að leikmaðurinn meiddist í leik liðsins gegn Val í undanúrslitum Lengjubikarsins síðastliðinn laugardag. Fótbolti 21. mars 2023 18:30
Ákvörðun um framtíð Conte hjá Tottenham verði tekin fyrir helgi Ákvörðun um framtíð ítalska knattspyrnustjóarns Antonio Conte hjá enska úrvalsdeildarfélaginu Tottenham verður tekin í vikunni. Raunar greina hinir ýmsu miðlar frá því að ákvörðunin verði tekin í seinasta lagi á fimmtudaginn. Fótbolti 21. mars 2023 17:46
Öll landsliðin spila með sorgarbönd í þessari viku Þrjú íslensk landslið munu spila með sorgarbönd í leikjum sínum í vikunni en þetta eru sautján ára og nítján ára landslið karla og svo A-landslið karla. Fótbolti 21. mars 2023 16:31
Ekki auðvelt að vera Messi í Argentínu Lionel Messi er nú eins og flestir landsliðsmenn karla í fótbolta komnir til móts við landslið sín. Fótbolti 21. mars 2023 16:00
Fékk rautt spjald fyrir að pissa Cristian Bunino gat ekki haldið í sér í miðjum fótboltaleik og var rekinn í sturtu áður en hann komst inn á völlinn. Fótbolti 21. mars 2023 15:31
Griezmann fúll að vera ekki gerður að fyrirliða Frakklands Antoine Griezmann íhugar framtíð sína með franska landsliðinu eftir að hann var ekki gerður að fyrirliða þess. Fótbolti 21. mars 2023 14:01
Martröð fyrir Noreg: „Hélt að það væri fyrsti apríl“ „Þetta er það versta sem gat gerst,“ segir sérfræðingur TV 2 í Noregi um þau tíðindi dagsins að framherjinn Erling Braut Haaland væri dottinn út úr norska landsliðshópnum í fótbolta vegna meiðsla. Fótbolti 21. mars 2023 12:31
Allir með á æfingu á svæði Bayern München Allir leikmenn í landsliðshópi Íslands eru heilir heilsu og voru með á æfingu liðsins í München í dag. Ísak Bergmann Jóhannesson var með eftir að hafa glímt við veikindi um helgina. Fótbolti 21. mars 2023 12:00
Segir þjálfara ítalska Íslendingaliðsins hafa ítrekað kallað sig skítuga hóru Sænsk knattspyrnukona segir ömurlega sögu af upplifun sinni sem leikmaður ítalska félagsins Fiorentina. Íslenska landsliðskonan Alexandra Jóhannsdóttir spilar með ítalska liðinu. Fótbolti 21. mars 2023 10:30
Stirður eftir alla löngu boltana hjá nýja þjálfaranum Rúnar Alex Rúnarsson, landsliðsmarkvörður Íslands, tók ekki þátt á æfingu liðsins í München í Þýskalandi í gær þar sem hann var nýlentur eftir leik liðs hans Alanyaspor kvöldið áður. Þar hefur hann þurft að aðlagast leikstíl nýs þjálfara. Fótbolti 21. mars 2023 09:01
Úr kuldanum hjá Rooney í hlýjan faðm Heimis Ravel Morrison, fyrrverandi ungstirni Manchester United, er þrátt fyrir vandræði sín í DC United í nýjasta landsliðshópi Heimis Hallgrímssonar í Jamaíku. Fótbolti 21. mars 2023 08:00
Munu bjóða í Man United á nýjan leik Talið er að Sheikh Jassim Bin Hamad Al Thani muni bjóða í enska knattspyrnufélagið Manchester United í annað sinn á miðvikudaginn. Sir Jim Ratcliffe mun gera slíkt hið sama. Frá þessu er greint á vef Sky Sports. Enski boltinn 20. mars 2023 22:01
Vill að Mitrović og Fernandes fái tíu leikja bann Framherjinn fyrrverandi og sparkspekingurinn Chris Sutton situr sjaldan á skoðunum sínum. Hann segir að Aleksandar Mitrović, framherji Fulham, og Bruno Fernandes, miðjumaður Manchester United, eigi að fá 10 leikja bann fyrir framkomu þeirra í garð dómara. Enski boltinn 20. mars 2023 21:15
Vill láta kné fylgja kviði með landsliðinu: „Getum gert helling í þessum riðli“ Hákon Arnar Haraldsson æfði ekki með íslenska karlalandsliðinu í fótbolta sem kom saman í München í Bæjaralandi í dag enda spilaði hann með félagi sínu FC Kaupmannahöfn í dönsku úrvalsdeildinni í gær. Hann gekk hins vegar frá nýjum samningi við félagið áður en haldið var í landsliðsverkefnið. Fótbolti 20. mars 2023 19:00
Stjóri Bayern segir leikmenn sína lata Julian Nagelsmann, knattspyrnustjóri Bayern München, var æfur eftir tap liðsins fyrir Bayer Leverkusen, 2-1, í þýsku úrvalsdeildinni í gær og gagnrýndi leikmenn þess harðlega. Fótbolti 20. mars 2023 14:01
Segir að Hákon sé með „alþjóðlega hæfileika“ og „mikla fótboltagreind“ Hákon Arnar Haraldsson er nú með fjögurra ára samning við danska úrvalsdeildarfélagið sem framlengdi við íslenska landsliðsstrákinn áður en hann mætti í leiki með íslenska landsliðinu í undankeppni EM 2024. Fótbolti 20. mars 2023 13:01
Hákon Arnar samdi aftur við FCK: „Einn sá áhugaverðasti sem ég hef séð í mörg ár“ Hákon Arnar Haraldsson kemur til móts við íslenska A-landsliðið með nýjan samning í vasanum. Fótbolti 20. mars 2023 12:32
Fyrirliðinn fyrrverandi segir leikmenn Man Utd þurfa spark í afturendann Þrátt fyrir 3-1 sigur Manchester United á Fulham í 8-liða úrslitum FA-bikarkeppninnar á sunnudag segir fyrirliðinn fyrrverandi Roy Keane að leikmenn liðsins þurfi spark í afturendann. Enski boltinn 20. mars 2023 10:31
Hamrén rekinn frá Álaborg Erik Hamrén, fyrrverandi landsliðsþjálfari Íslands, hefur verið rekinn sem þjálfari Álaborgar í dönsku úrvalsdeildinni. Fótbolti 20. mars 2023 09:08
Átta spor, enginn heilahristingur og Sævar Atli er klár í landsleikina Sævar Atli Magnússon þurfti að fara af velli eftir þungt höfuðhögg í 1-1 jafntefli Lyngby og AC Horsens í dönsku úrvalsdeildinni. Hann var á dögunum valinn í íslenska A-landsliðið en talið var að hann myndi missa af komandi leikjum vegna meiðslanna. Svo verður ekki. Fótbolti 20. mars 2023 08:00
„Tekur menn misjafnlega langan tíma að ná taktinum sem er hérna“ Íslandsmeistarar Breiðabliks fóru á kostum í Bestu deild karla í knattspyrnu síðasta sumar. Þeir hefja titilvörn sína þann 10. apríl. Lykilleikmenn hafa horfið á braut og ljóst að liðinu bíður vandasamt verkefni ætli það sér að endurtaka leikinn. Íslenski boltinn 20. mars 2023 07:30
„Vorum klárlega betra liðið“ Marco Silva, þjálfari Fulham, sagði lið sitt hafa verið betra en Manchester United þegar liðin mættust í 8-liða úrslitum FA-bikarkeppninnar í gær, sunnudag. Silva, sem og tveir leikmenn Fulham, voru sendir í sturtu þegar Fulham var 1-0 yfir í leiknum. Gekk Man United á lagið eftir það og vann 3-1 sigur. Enski boltinn 20. mars 2023 07:01
Undanúrslitin klár: Man City fær B-deildarlið og Man United mætir Brighton Búið er að draga í undanúrslit FA-bikarkeppninnar á Englandi. Mancester City mætir B-deildarliði Sheffield United á meðan Brighton & Hove Albion mætir Manchester United. Enski boltinn 19. mars 2023 23:00
Stelpurnar okkar mæta Nýja-Sjálandi í Tyrklandi Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu mun mæta Nýja-Sjálandi í vináttuleik þann 7. apríl. Leikið verður í Tyrklandi. Fótbolti 19. mars 2023 22:31