„Heilaþvotturinn“ náð lengra í alþjóðlegu grúppunum Eurovision-senan á Íslandi hefur logað síðustu vikur vegna þátttöku Ísraels í keppninni í maí. Umdeild tilkynning Ríkisútvarpsins í vikunni blés nýju lífi í umrótið. Við tókum púlsinn á gallhörðum Eurovision-aðdáanda í Íslandi í dag og fórum yfir pólitíkina sem löngum hefur gegnsýrt hina „ópólitísku“ söngvakeppni. Lífið 26. janúar 2024 10:33
Ísland í annað sæti í Eurovision veðbönkum Íslandi er nú spáð öðru sæti í Eurovision söngvakeppninni af veðbönkum. Ísland heldur því áfram að skjótast upp í veðbönkum en fyrir örfáum dögum var landinu spáð 18. til 20. sæti. Lífið 25. janúar 2024 18:44
Magnús Jónsson er sá sem dró sig út úr Júróinu Aðeins einn hefur dregið framlag sitt til baka úr Eurovision eða Sönglagakeppni Ríkisútvarpsins. Sá er Magnús Jónsson sem meðal annars hefur verið kenndur við Gus Gus. Lífið 25. janúar 2024 14:37
Íslandi nú spáð þriðja sæti í Eurovision Íslandi er nú spáð þriðja sæti í Eurovision, sem fer fram í Malmö í Svíþjóð 7. til 9. maí næstakomandi. Það er stökk úr 18. sæti frá því í gær og má rekja stökkið til frétta af því að hinn palestínski Bashar Murad taki þátt í Söngvakeppni sjónvarpsins. Tónlist 25. janúar 2024 13:48
Ísland tók stökk í Eurovision-veðbönkum Ísland tók stökk í Eurovision-veðbönkum í gær og er nú spáð sjöunda sæti. Fyrir það hafði Íslandi verið spáð 18. og 20. sæti. Lífið 25. janúar 2024 07:53
Ákvörðun RÚV „skrípaleikur“ og „fáránleg“ Íslendingar vilja margir hverjir að Ísland taki ekki þátt í Eurovision vegna þátttöku Ísraels í keppninni. Palestínumaður mun taka þátt í undankeppninni hér á landi í næsta mánuði. Innlent 24. janúar 2024 21:30
Palestínumaðurinn Bashar Murad keppir í Söngvakeppninni Palestínski tónlistarmaðurinn Bashar Murad mun keppa í Söngvakeppni sjónvarpsins. Murad er landsmönnum kunnugur en hann gaf út lag með hljómsveitinni Hatara, eftir Eurovision ævintýri sveitarinnar í Tel Aviv árið 2019. Tónlist 24. janúar 2024 17:01
Grunar að palestínskur söngvari keppi í Söngvakeppninni Tónlistarkonuna Ágústu Evu Erlendsdóttur grunar að palestínskur tónlistarmaður taki þátt í Söngvakeppni sjónvarpsins í ár. Það sé ástæða þess að Ríkisútvarpið ætli ekki að taka ákvörðun um þátttöku í Eurovision fyrr en niðurstöður Söngvakeppninnar liggja fyrir. Palestínski tónlistarmaðurinn Bashar Murad hefur verið nefndur sem keppandi. Tónlist 24. janúar 2024 13:55
Viðbrögð við Júró-útspili RÚV: „Galið“ að leggja ákvörðunina á sigurvegarann Ákvörðun Ríkisútvarpsins um að bíða þar til eftir Söngvakeppni sjónvarpsins um að taka ákvörðun um þátttöku í Eurovision í Svíþjóð hefur fallið misvel í kramið hjá landsmönnum. Margir segja þetta útspil galið og vinsælla væri ef Söngvakeppnin væri haldin án möguleika á að fara til Svíþjóðar. Innlent 24. janúar 2024 11:12
Stjórnarmaður segir ábyrgðinni varpað yfir á listafólkið án aðkomu stjórnar Stjórnarmaður í Ríkisútvarpinu segir að stjórnendur stofnunarinnar hafi varpað allri ábyrgð á þátttöku Íslendinga í Eurovision yfir á listafólkið sem tekur þátt í Söngvakeppninni. Það hafi verið gert alfarið á aðkomu stjórnar hlutafélagsins opinbera. Innlent 23. janúar 2024 22:00
„Þetta er hálft skref í rétta átt“ Daníel Ágúst Haraldsson, sem var einn fjölda tónlistarmanna sem mótmæltu fyrirhugaðri þátttöku Íslendinga í Eurovision, segist fagna því að yfirmenn Ríkisútvarpsins hafi frestað endanlegri þátttöku fram yfir Söngvakeppni sjónvarpsins. Hann hefði þó viljað sjá skrefið stigið til fulls. Innlent 23. janúar 2024 18:25
Ákveða sig eftir Söngvakeppnina Ríkisútvarpið ætlar ekki að taka neina ákvörðun um þátttöku sína í Eurovision í Svíþjóð fyrr en að lokinni Söngvakeppni sjónvarpsins. Að óbreyttu verður Ísland meðal þátttökuþjóða í Malmö í maí. Innlent 23. janúar 2024 17:10
„Enginn íslenskur listamaður þvingaður til þátttöku í Eurovision“ Það verður enginn íslenskur tónlistarmaður þvingaður til þátttöku í Eurovision. Þetta sagði útvarpsstjóri eftir mótmæli tónlistarfólks við Ríkisútvarpið í dag. Minnst 550 tónlistarmenn vilja að RÚV beiti sér fyrir því að Ísraelum verði meinuð þátttaka í keppninni ellegar dragi Íslendingar sig úr henni. Innlent 19. janúar 2024 00:27
Ísrael verður ekki meinuð þátttaka í Eurovision Ísrael verður ekki meinuð þátttaka í Eurovision söngvakeppninni sem fram fer í Malmö í ár. Þetta er ákvörðun skipuleggjenda keppninnar í Samtökum evrópskra sjónvarpsstöðva (EBU). Lífið 18. janúar 2024 11:43
Hatari skorar á skipuleggjendur Eurovision Hljómsveitarmeðlimir í Hatara skora á skipuleggjendur Eurovision söngvakeppninnar að meina Ísraelsmönnum um þátttöku í keppninni í ár. Lífið 17. janúar 2024 22:50
„Ég vona að þessir strákar fái extra knús“ Söngkonan María Ólafsdóttir segir það stinga sig að horfa upp á algjör niðurbrot á samfélagsmiðlum á stundum líkt og í kvöld, þar sem karlalandslið Íslands í handbolta tapaði örugglega gegn liði Ungverjalands á EM í handbolta. Lífið 16. janúar 2024 23:12
Finnskir tónlistarmenn hvetja til sniðgöngu Eurovision Yfir 1300 tónlistarmenn í Finnlandi hafa skrifað nafn sitt á undirskriftarlista þar sem þess er krafist að finnska ríkisútvarpið sniðgangi Eurovision söngvakeppnina í Malmö í ár taki Ísrael þátt í keppninni. Lífið 10. janúar 2024 15:32
Eurovision-stjörnur á Tenerife um áramótin Farþegar með flugi Play til Tenerife í morgunsárið höfðu mögulega einhverjir áhyggjur af því að geta ekki dottað í vélinni enda miklir söngfuglar um borð. Lífið 28. desember 2023 19:01
FÁSES skorar á Rúv að senda ekki lag í Eurovision FÁSES skorar á forsvarsmenn Rúv og leggja til að Ísland sendi ekki keppendur í Eurovision á næsta ári, verði Ísrael með í keppninni. Þetta var ákveðið með atkvæðagreiðslu á félagafundi sem haldinn var á dögunum vegna umræðu um sniðgöngu Eurovision. Innlent 23. desember 2023 15:55
„Troðið í ykkur klökum og haldið helvítis kjafti“ Izhar Cohen, sem vann Eurovision fyrir hönd Ísrael árið 1978, segir Ísraela vita að Íslendingum sé illa við þá. Íslendingar hafi sýnt það þegar söngvakeppnin fór fram í Tel Aviv og íslenski hópurinn hafi umgengst öfgafulla Palestínumenn og stutt hryðjuverkastarfsemi gegn Ísraelum. Erlent 23. desember 2023 10:57
Þrír fjórðu þjóðarinnar vill útiloka Ísrael frá Eurovision Þrír af hverjum fjórum Íslendingum vilja útiloka Ísrael frá þátttöku í Eurovision í Malmö í Svíþjóð í maí. Þetta er niðurstaða könnunar Prósents. Lífið 22. desember 2023 15:03
Af vindvélum og þjóðarmorði Íslendingar eru örsmá þjóð, staðsett á eyju fjarri meginlandi Evrópu. Við erum fámenn þjóð forréttinda í alþjóðlegu samhengi, sem hefur lítil formleg áhrif á Evrópuvettvangi. Skoðun 20. desember 2023 16:01
Júródansari Little Big er látinn Rússneski dansarinn Dmitry Krasilov, betur þekktur undir listamannsnafninu Pukhlyash, er látinn. Krsailov var 29 ára gamall og er hvað þekktastur hér á landi fyrir að hafa dansað í atriði rússnesku sveitarinnar Little Big í Eurovision árið 2020. Lífið 20. desember 2023 07:20
„Það er ákveðinn tvískinnungur í afstöðu allra“ Nokkur fjöldi fólks kom saman við Ríkisútvarpið í Efstaleiti síðdegis til að mótmæla þátttöku Íslands í Eurovision vegna þátttöku Ísraels. Útvarpsstjóri segir ekki hlutverk RÚV að taka pólitíska afstöðu. Innlent 18. desember 2023 19:21
Mótmæla aðgerðaleysi RÚV og vilja að Ísland taki fyrsta skrefið Mótmælt verður fyrir utan Ríkisútvarpið í Efstaleiti síðdegis vegna þátttöku Ísrael í Eurovision. Hátt í tíu þúsund hafa skrifað undir kröfu um að RÚV dragi Ísland úr keppni. Einn skipuleggjenda segir hræsni að Ísrael fái að taka þátt. Innlent 18. desember 2023 12:00
RÚV í úlfakreppu vegna þátttöku í Eurovision Bragi Valdimar Skúlason, formaður Félags tónskálda og textahöfunda, spyr hvað verði þegar tónlistarmenn fari að týnast úr Eurovison-verkefninu einn af öðrum? Innlent 14. desember 2023 11:40
Vildu ekki greiða atkvæði um Eurovision þátttöku Íslands Stjórnarmeðlimur RÚV kveðst hafa lagt fram tillögu að ályktun vegna Eurovision þess efnis að Ísland taki ekki þátt í keppninni taki Ísrael þátt, á fundi stjórnarinnar. Hann segir fundinn hafa hafnað því að taka tillöguna til atkvæða. Varaformaður stjórnar RÚV segir trúnað ríkja á fundum stjórnarinnar. Innlent 13. desember 2023 20:18
Félagsfundur boðaður: Ekki skoðun hvort heppilegt sé að myrða börn Félag áhugafólks um Söngvakeppni evrópska sjónvarpsstöðva, FÁSES, hefur boðað til félagsfundar til þess að ræða ályktun félagsins um þátttöku Ísrael í Eurovision. Ósætti ríkir meðal hluta félagsmanna vegna afstöðuleysis félagsins. Lífið 12. desember 2023 09:52
Skora á RÚV og vilja Ísrael út Stjórn Félags tónskálda og textahöfunda hefur sent áskorun til útvarpsstjóra og stjórnar Ríkisútvarpsins þess efnis að taka ekki þátt í Eurovision-söngvakeppninni á næsta ári nema Ísraelum verði vikið úr keppni. Innlent 12. desember 2023 08:44
Vilja að Ísrael verði vikið úr Eurovision Hátt í sjö þúsund manns hafa skorað á Ríkisútvarpið að neita þátttöku í Eurovision nema Ísrael verði vísað úr keppni. Útvarpsstjóri hefur sagt að ekki standi til að Ísland dragi sig úr keppni í mótmælaskyni. Almenningur virðist nokkuð sammála um að Ísrael eigi ekki að fá að keppa. Innlent 11. desember 2023 19:27