Trump rangtúlkar orð Zelensky og segist hreinsaður af sök Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu, er ekki þeirrar skoðunar að umdeilt símtal hans og Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, hafi falið í sér svokallað "kaup kaups“ (e. Quid pro quo). Hann gagnrýndi Bandaríkin þó harðlega fyrir að koma fram við Úkraínu sem peð í pólitískri skák. Erlent 2. desember 2019 23:00
Trump mætir ekki fyrir nefndina til að svara fyrir meint embættisbrot Donald Trump, Bandaríkjaforseti, og lögfræðingar hans hafa gefið það út að þeir ætli ekki mæta fyrir dómsmálanefnd fulltrúadeildar Bandaríkjaþings næstkomandi miðvikudag til þess að gefa skýrslu. Erlent 2. desember 2019 06:23
Trump fór í óvænta heimsókn til Afganistan Bandarískir hermenn sem fagna þakkagjörðarhátíðinni á Bagram herstöðinni í Afganistan fengu óvæntan gest Bandaríkjaforseti sjálfur, Donald Trump, heiðraði herliðið með nærveru sinni. Erlent 28. nóvember 2019 21:06
Undirritar lög til stuðnings lýðræðissinnum í Hong Kong Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur undirritað lög sem veita lýðræðissinnum og mótmælendum í Hong Kong ákveðinn stuðning. Erlent 28. nóvember 2019 07:15
Ummæli Trumps sögð ganga í berhögg við hans eigin orð Donald Trump Bandaríkjaforseti neitaði því í gær að hafa beðið Rudy Giuliani, persónulegan lögmann sinn, um að fara til Úkraínu í þeim tilgangi að ýta á eftir rannsóknum þar í landi fyrir hönd forsetans. Erlent 27. nóvember 2019 23:55
Trump boðið að mæta fyrir nefndina eftir viku Formaður dómsmálanefndar fulltrúadeildar Bandaríkjaþings hefur nú boðið Donald Trump forseta að mæta fyrir nefndina þann 4. desember næstkomandi. Erlent 27. nóvember 2019 07:24
Baulað á Melaniu í Baltimore Fimm mínútna langt ávarp Melaniu Trump, forsetafrúar Bandaríkjanna, um skaðsemi ópíóða uppskar baul og læti í borginni Maryland í Baltimore. Erlent 26. nóvember 2019 22:37
Grínaðist með ákæruferlið áður en hann náðaði kalkúna Bandaríkjaforseti Donald Trump, viðhélt í dag þriggja áratuga gamalli hefð Bandaríkjaforseta þegar hann náðaði kalkúnana Bread og Butter við hátíðlega athöfn í Rósagarði Hvíta hússins í Washington. Erlent 26. nóvember 2019 20:54
Hæstiréttur stöðvar afhendingu skattskýrslna Trump tímabundið Hæstiréttur Bandaríkjanna kom í gær tímabundið í veg fyrir að meðlimir stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar fulltrúadeildar Bandaríkjaþings fái aðgang að skattskýrslu Donald Trump, forseta. Erlent 26. nóvember 2019 12:45
Verðirnir sem áttu að gæta Epstein fara fyrir dómstóla í apríl Úrskurðað hefur verið að réttarhöldin yfir fangavörðunum Tova Noel og Michael Thomas, muni hefjast 20.apríl næstkomandi í New York. Erlent 25. nóvember 2019 19:53
Bloomberg tilkynnir um forsetaframboð sitt Fyrrverandi borgarstjóri New York borgar, Michael Bloomberg, hefur ákveðið að sækjast eftir tilnefningu Demókrataflokksins fyrir bandarísku forsetakosningarnar sem fara fram að ári. Erlent 24. nóvember 2019 16:00
Ný gögn sýna fram á samskipti Pompeo og Giuliani Gögn sem utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna hefur afhent samtökunum American Oversight eftir aðgangsbeiðni þeirra sýna fram á ítrekuð samskipti utanríkisráðherra Bandaríkjanna, og Rudy Giuliani, persónulegs lögmanns Trump. Erlent 23. nóvember 2019 12:22
Vitnisburður síðustu vikna styður ásakanir gegn Trump Tvær vikur opinberra vitnaleiðslna hafa ekki reynst Hvíta húsinu vel. Umtalsverð sönnunargögn og margir vitnisburðir hafa litið dagsins ljós og skapar það mynd sem erfitt er að draga í efa. Erlent 22. nóvember 2019 11:00
Bandaríkin: Þingið þjarmar að Trump Hið svokallaða Úkraínumál er viðfangsefni fyrsta þáttar Bandaríkjanna, nýs hlaðvarps fréttastofu um bandarísk stjórnmál. Erlent 22. nóvember 2019 09:30
Sammála um að réttarhöldin renni sitt skeið verði Trump ákærður Háttsettir embættismenn innan Hvíta hússins og öldungardeildarþingmenn Repúblikana eru sagðir vera sammála um það að verði Donald Trump, forseti Bandaríkjana, formlega ákærður fyrir embættisbrot sé æskilegt að réttarhöldunum sem því fylgja verði leyft fram að ganga. Erlent 21. nóvember 2019 23:30
Segir ásakanir um afskipti Úkraínu skáldskap Fiona Hill, fyrrverandi sérfræðingur Hvíta hússins varðandi Rússlands, skammaði þingmenn Repúblikanaflokksins í upphafsræðu sinni í vitnaleiðslum vegna rannsóknar fulltrúadeildarinnar á meintum embættisbrotum Donald Trump, forseta Bandaríkjanna. Erlent 21. nóvember 2019 15:59
Eignaði sér heiðurinn af opnun verksmiðju sem hefur verið opin frá 2013 Þetta mun vera í þriðja sinn á þessu ári, sem Trump skoðar gamlar verksmiðjur og eignar sér heiðurinn af því að þær hafi verið opnaðar. Erlent 21. nóvember 2019 15:03
Hefur aldrei barist gegn spillingu í Úkraínu: „Forsetanum er drullusama um Úkraínu“ Bandamenn Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, hafa ítrekað haldið því fram að honum sé annt um að berjast gegn kerfisbundinni spillingu í Úkraínu. Með því að halda aftur af tæplega 400 dollara neyðaraðstoð, sem þingið hafði samþykkt, hafi forsetinn verið að kanna vilja yfirvalda Úkraínu til að berjast gegn spillingu. Markmiðið hafi ekki verið að beita Úkraínumenn þrýstingi. Erlent 21. nóvember 2019 10:30
Vitnisburði sendiherrans líkt við tundurskeyti á varnir forsetans Vitnisburði Gordon Sondland, sendiherra Bandaríkjanna hjá Evrópusambandinu, er líkt við tundurskeyti á varnir Donald Trump, forseta Bandaríkjanna og helstu bandamanna hans gegn rannsókn fulltrúadeildar Bandaríkjaþings á meintum embættisbrotum forsetans. Erlent 20. nóvember 2019 23:23
Tússaðir minnispunktar Trump vekja athygli Minnispunktar sem tússaðir voru stórum stöfum á minnisblað sem Donald Trump studdist við er hann ávarpaði fréttamenn fyrir utan Hvíta húsið í dag, á sama tíma og talið er að vitnisburður lykilvitna í dag í rannsókn fulltrúadeildar Bandaríkjaþings á meintum embættisbrotum hans muni koma sér illa fyrir forsetann. Erlent 20. nóvember 2019 21:15
Vann með Giuliani í Úkraínu að skipan Trump Gordon Sondland, sendiherra Bandaríkjanna gagnvart Evrópusambandinu, segir að hann, Rudy Guiliani, einkalögmaður Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, og aðrir hafi beitt yfirvöld Úkraínu þrýstingi með því markmiði að fá Úkraínumenn til að hefja tvær rannsóknir sem myndu nýtast Trump með pólitískum hætti, vegna þess að Trump hafi skipað þeim að gera það. Erlent 20. nóvember 2019 14:14
Stjórnandi hjá NPR segir bandarískt fjölmiðlaumhverfi erfitt Loren Mayor, einn æðsti yfirmaður bandaríska almenningsútvarpsins NPR, segir vandvirkni nú afar mikilvæga fyrir blaðamenn. Erlent 19. nóvember 2019 18:45
Sagði símtalið umdeilda óviðeigandi Alexander Vindman, meðlimur þjóðaröryggisráðs Hvíta hússins, segir umdeilt símtal Donald Trump og Volodymir Zelensky, forseta Bandaríkjanna og Úkraínu, hafa verið óviðeigandi. Það hefði ekki verið rétt af Trump að biðja erlendan þjóðarleiðtoga að rannsaka bandarískan borgara og pólitískan andstæðing hans. Erlent 19. nóvember 2019 15:30
Blása á sögusagnir um heilsu Trump Óundirbúin ferð Donald Trump á sjúkrahús um síðustu helgi hefur vakið spurningar um heilsu hins 73 ára gamla forseta Bandaríkjanna. Erlent 19. nóvember 2019 14:24
Breyta afstöðu sinni til landtökubyggða Ísraela Bandaríkjamenn hafa síðustu áratugi litið svo á að byggðin sé í trássi við alþjóðalög eins og alþjóðasamfélagið er að mestu leyti sammála um. Erlent 19. nóvember 2019 08:08
Rannsaka hvort Trump hafi logið að Mueller Fulltrúadeild Bandaríkjaþings rannsakar nú hvort að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hafi logið að rannsakendum í Mueller-rannsókninni svokölluðu. Erlent 18. nóvember 2019 20:00
Ritstjóri New York Times segir Trump hafa stofnað lífi blaðamanna í hættu Ritstjóri bandaríska dagblaðsins New York Times, Dean Baquet, sakar Donald Trump Bandaríkjaforseta um að stofna lífi blaðamanna blaðsins í hættu þar sem forsetinn útsetji þá fyrir svívirðingum og misnotkun og lýsi þeim sem óvinum fólksins. Erlent 18. nóvember 2019 10:30
Bjóða Trump að svara spurningum þingmanna Nancy Pelosi, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, bauð í gær Donald Trump, forseta, að mæta á fund þingmanna og svara spurningum þeirra varðandi rannsókn fulltrúadeildarinnar á mögulegum embættisbrotum forsetans. Erlent 17. nóvember 2019 23:33
Sondland sagðist fara eftir skipunum Trump Fyrrverandi meðlimur þjóðaröryggisráðs Hvíta hússins viðurkennir að hafa lagt til að hylja gögn um símtal á milli Trump og Zelensky. Þrátt fyrir það sagðist hann ekki hafa heyrt neitt óviðeigandi í símtalinu. Erlent 16. nóvember 2019 23:36
Trump náðar hermenn sakaða um og dæmda fyrir stríðsglæpi Hvíta húsið tilkynnti í gærkvöldi að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefði gripið inn í mál þriggja hermanna sem hafa verið sakaðir og jafnvel dæmdir fyrir stríðsglæpi. Forsvarsmenn herafla Bandaríkjanna voru hins vegar á móti aðgerðunum. Erlent 16. nóvember 2019 19:05