Fluttu inn 6,5 kíló af amfetamíni Réttað var yfir tveimur Litháum í Héraðsdómi Reykjavíkur dag en þeir fluttu samtals inn til landsins sex og hálft kíló af amfetamíni í lok sumars. Innlent 11. desember 2006 14:30
Sýknaður af ákæru um líkamsárás á fyrrverandi unnustu Karlmaður var í dag sýknaður í Héraðsdómi Reykjavíkur af ákæru um líkamsárás á fyrrverandi unnustu sína. Maðurinn var ákærður fyrir að hafa í október á síðasta ári ráðist á konuna á göngustíg í Víðidal í Reykjavík. Innlent 11. desember 2006 11:58
Gæsluvarðhald staðfest vegna meintrar nauðgunar Hæstiréttur Íslands staðfesti í dag gæsluvarðhaldsúrskurð yfir karlmanni á sextugsaldri sem grunaður eru um að hafa nauðgað konu síðastliðinn föstudag. Maðurinn verður í gæsluvarðhaldi til 20. desember og á að gangast undir geðrannsókn á þessum tíma. Innlent 8. desember 2006 16:39
Yfirréttur í Englandi ógildir meiðyrðadóm gegn Hannesi Yfirréttur í Lundúnum ógilti í dag dóm sem felldur var sumarið 2005 í meiðyrðamáli Jóns Ólafssonar athafnamanns á hendur Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni prófessor. Innlent 8. desember 2006 15:05
Neitað um skaðabætur eftir að hafa ekið á hest Héraðsdómur Reykjavíkur hefur sýknað hestamann og Vátryggingafélag Íslands af ríflega 670 þúsund króna skaðabótakröfu manns vegna tjóns sem varð á bíl hans þegar hann ók á hest hestamannsins. Innlent 8. desember 2006 13:17
Neytendasamtökin standa á bak við áfrýjun vegna olíusamráðsmáls Stjórn Neytendasamtakanna hefur tekið ákvörðun um að standa á bak við kæru Sigurðar Hreinssonar, húsasmiðs á Húsavík, til Hæstaréttar vegna frávísunar héraðsdóms á máli hans á hendur Keri hf., sem áður var Olíufélagið Esso. Innlent 8. desember 2006 11:01
14 mánaða fangelsi fyrir amfetamínframleiðslu Hæstiréttur staðfesti í dag 14 mánaða fangelsisdóm héraðsdóms yfir manni fyrir að hafa í félagi við annan mann framleitt amfetamín. Innlent 7. desember 2006 17:20
Eins og hálfs árs fangelsi fyrir nauðgun Hæstiréttur hefur dæmt karlmann í eins og hálfs árs fangelsi fyrir kynferðisbrot gagnvart konu og til að greiða henni átta hundruð þúsund krónur í bætur. Innlent 7. desember 2006 17:03
Sex ára fangelsi fyrir sveðjuárás Hæstiréttur staðfesti í dag sex ára fangelsisdóm yfir Tindi Jónssyni fyrir tilraun til manndráps með því að hafa ráðist að mann vopnaður sveðju og höggvið í höfuð hans og líkama. Innlent 7. desember 2006 16:51
Fangelsi og sekt fyrir ölvunarakstur og ranga skýrslugjöf Karlmaður var í Héraðsdómi Suðurlands dæmdur í eins mánaðar fangelsi og til greiðslu 250 þúsund króna fyrir ölvunarakstur og fyrir að framvísa ökuskírteini annars manns þegar lögreglan hafði afskipti af honum. Þá var hann jafnfram sviptur ökuréttindum í fimm ár. Innlent 7. desember 2006 16:18
Mótmælendur fá skilorðsbundinn dóm Héraðdsdómur Austurlands hefur dæmt sex breska ríkisborgara í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi og tvo Breta í eins mánaðar fangelsi fyrir að hafa ruðst í heimildarleysi inn á skrifstofu verkfræðistofunnar Hönnunar á Reyðarfirði í sumar og gert þar tilraun til að svipta starfsmenn frelsi sínu. Innlent 7. desember 2006 11:10
Fær 23 milljónir vegna mistaka í brjóstastækkunaraðgerð Tveir læknar voru í dag dæmdir í Héraðsdómi Reykjavíkur til að greiða konu rúmar tuttugu og þrjár milljónir króna í bætur vegna mistaka í aðgerð. Konan fór í brjóststækkunaraðgerð en á meðan á aðgerðinni stóð hætti hún að anda og fékk hjartastopp. Innlent 5. desember 2006 15:56
Fékk snöru til að hengja sig með í jólagjöf Karlmaður um fertugt var í dag dæmdur í tveggja mánaða fangelsik í Héraðsdómi Reykjaness fyrir að reyna að aka á fyrrverandi eiginkonu sína. Maðurinn reyndi tvívegis að aka á konuna. Konan fékk jólagjöf frá manninum um síðustu jól en í pakkanum var snara til að hengja sig með. Innlent 5. desember 2006 11:19
Dæmdir fyrir peningafölsun Þrír karlmenn voru í dag dæmdir í Héraðsdómi Norðurlands eystara fyrir peningafölsun. Einn mannanna var einnig dæmdur fyrir þjófnað og annar fyrir vörslu fíkniefna. Þeir notuðu falsaðan fimm þúsund króna seðil í Bónusvídeó á Akureyri. Mennirnir eru á aldrinum sextán til tuttugu og eins árs. Innlent 4. desember 2006 15:46
Rúmenar dæmdir fyrir hraðbankasvindl Tveir Rúmenar voru sakfelldir í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag fyrir að hafa sett upp leynilegan afritunarbúnað á hraðbanka til að afrita banka- og greiðslukortanúmera viðskiptavina. Annar mannanna fékk tólf mánaða fangelsisdóm en hinn átta. Innlent 1. desember 2006 15:22
Landspítalinn sýknaður af skaðabótakröfu Landspítali-Háskólasjúkrahús var í dag sýknað, í Héraðsdómi Reykjavíkur, af skaðabótakröfu konu sem taldi sig hafa hlotið skaða við mistök lækna er gerðu á henni brjósklosaðgerð. Innlent 1. desember 2006 13:48
Ógnaði starfsfólki með öxi Karlmaður á fimmtugsaldri var í dag dæmdur í fimmtán mánaða fangelsi, í Héraðsdómi Reykjaness, fyrir vopnað rán í lyfjaversluninni Apótekaranum. Fyrir viku var karlmaður á þrítugsaldri dæmdur í fimmtán mánaða fangelsi fyrir vopnað rán í sama apótek. Innlent 1. desember 2006 09:52
Árs fangelsi fyrir kynferðisbrot Hæstiréttur Íslands staðfesti í dag árs fangelsisdóm yfir karlmanni fyrir kynferðisbrot. Maðurinn hlaut dóminn í Héraðsdómi Reykjavíkur í mars á þessu ári, fyrir að hafa haft samræði eða önnur kynferðismök við konu á meðan hún gat ekki spornað við verknaðinum, sökum ölvunar og svefndrunga. Maðurinn var jafnframt dæmdur til að greiða konunni 600.000 krónur í skaðabætur. Innlent 16. nóvember 2006 16:56
Þjóðkirkjan er skaðabótaskyld vegna skipunar sendiráðsprests Hæstiréttur Íslands staðfesti í dag dóm Héraðsdóms Reykjavíkur um að íslenska þjóðkirkjan sé skaðabótaskyld vegna skipunar sendiráðsprests í London. Innlent 16. nóvember 2006 16:28
Greiðir rúma hálfa milljón fyrir umferðarlagabrot Héraðsdómur Vestfjarða hefur dæmt mann til að greiða 540 þúsund krónur í sekt fyrir margvísleg og ítrekuð umferðarlagabrot, sem hann framdi víðsvegar um Vestfirði í sumar. Mun þetta vera einhver hæsta sekt fyrir umferðarlagabrot sem um getur. Innlent 16. nóvember 2006 12:29
Fékk þrjátíu daga í fangelsi fyrir að hafa fíkniefni innvortis Karlmaður á þrítugsaldri var í dag dæmdur í þrjátíu daga fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir innflutning á hassi. Maðurinn var handtekinn við komuna frá Spáni hingað til lands í lok ágúst en hann hafði 219,69 grömm af hassi innvortis. Hann var jafnframt dæmdur til að greiða 92.190 krónur í sakarkostnað. Innlent 16. nóvember 2006 11:04
Gekk ítrekað í skrokk á barnsmóður sinni Karlmaður á fertugsaldri var í dag dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur í sjö mánaða fangelsi, þar af fimm mánuði skilorðsbundið, fyrir líkamsárásir á fyrrum sambýliskonu sína og barnsmóður. Maðurinn var jafnframt dæmdur fyrir húsbrot, brot á nálgunarbanni og fíkniefnalagabrot. Hann var sýknaður af vopnalagabroti. Innlent 14. nóvember 2006 16:30
Fékk árs fangelsi fyrir árás á lögregluþjón Karlmaður var í dag dæmdur í árs fangelsi í Héraðsdómi Norðurlands eystra fyrir að ráðast á lögregluþjón við skyldustörf og veita honum áverka. Hann var jafnframt dæmdur fyrir vörslu fíkniefna og að til að sæta upptöku þeirra. Innlent 13. nóvember 2006 15:41
Tveggja mánaða fangelsi fyrir að hefna framhjáhalds Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag tuttugu og sex ára karlmann í fjögurra mánaða fangelsi fyrir líkamsárás, þar af tvo mánuði skilorðsbundið. Innlent 31. október 2006 13:21
Fimm sinnum tekinn fullur á tæpum tveimur mánuðum Hæstiréttur Íslands dæmi í dag karlmann á fimmtugsaldri í átján mánaða fangelsi fyrir ölvunarakstur. Maðurinn ók bifreið sinni undir áhrifum áfengis og var sviptur ökurétti fimm sinnum á tímabilinu frá 5. desember 2005 til 21. janúar 2006. Innlent 26. október 2006 16:37
Þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir nauðgun Karlmaður á þrítugsaldri var í dag dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir að hafa í sumar nauðgað tvítugri stúlku á göngustíg í Breiðholti. Innlent 26. október 2006 11:06
Vilja breyta lögum ef þörf er á Þingmenn Samfylkingarinnar hafa beðið um fund í allsherjarnefnd til að ræða alvarlegar ásakanir um að réttarstaða barna hafi verið fyrir borð borin með mistökum í lagasetningu og skýrslutökum í dómshúsi en ekki í Barnahúsi. Helgi I. Jónsson, dómstjóri Héraðsdóms Reykjavíkur vísar gagnrýni forstjóra Barnaverndarstofu til föðurhúsanna og segir umdeilt hvort Barnahús geti talist hlutlaus vettvangur fyrir skýrslutöku á börnum sem sætt hafa kynferðislegu ofbeldi. Innlent 12. september 2006 18:48
Vilja dómsmálaráðherra fyrir nefndina Að ósk þriggja fulltrúa Samfylkingarinnar í alsherjanefnd mun nefndin koma saman, þriðjudaginn þann 5. september, til að funda um það ófremdarástand sem er í fangelsismálum landsins. Þar munu fulltrúarnir fara fram á að dómsmálaráðherra verði kallaður á fund nefndarinnar enda telji þeir hann ábyrgan fyrir ástandinu. Innlent 29. ágúst 2006 13:30
Strokufanga leitað Lögregla leitar enn fanga sem strauk úr læknisheimsókn á þriðjudag. Fanginn, sem var vistaður á Litla Hrauni, heitir Hilmar Ragnarsson og er 43 ára. Hann komst undan lögreglu með því að smeygja sér út um glugga á salerni. Hilmar er dökkhærður og grannvaxinn og var klæddur í dökka úlpu, dökkar buxur og ljósa skó. Þeir sem verða varir við hann eru beðnir að hringja í lögregluna í Reykjavík. Innlent 12. ágúst 2006 09:31
Penguin kaupir Forðist okkur Hin virta bókaútgáfa Penguin hefur gengið frá samningi við JPV um útgáfu á bókinni Forðist okkur eftir Hugleik Dagsson. Penguin kaupir útgáfurétt fyrir bókina á ensku fyrir allan heiminn að Íslandi undanskildu. Forðist okkur kom út á síðasta ári, sett var upp leikrit eftir bókinni sem Hugleikur hlaut Grímuverðlaunin fyrir. Innlent 11. ágúst 2006 20:44