Virti ekki endurteknar óskir konunnar um að hætta Héraðssaksóknari hefur ákært karlmann fyrir nauðgun með því að hafa án samþykkis og með ólögmætri nauðung haft kynferðismök við konu á heimili hennar í Hafnarfirði. Nauðgunin er sögð hafa átt sér stað 17. mars 2024. Innlent 12.5.2026 17:55
Ákæran á hendur Írisi Helgu: Sakaði menn um barnaníð, laug upp á börn og lét maka saur Íris Helga Jónatansdóttir hefur verið ákærð fyrir umfangsmikið umsáturseinelti gegn þremur karlmönnum, börnum tveggja þeirra, sambýliskonu eins þeirra og fjölskyldu sambýliskonunnar. Hún er meðal annars ákærð fyrir að væna fólkið opinberlega um barnaníð, ljúga kynferðisbroti upp á þrjá skólabræður dóttur eins mannanna og fá mann sem hún var í slagtogi við til að maka saur á hurðarhúna heimilis og bíls eins mannanna. Sá er einnig ákærður í málinu. Þá hefur hún játað að hafa logið nauðgun upp á einn mannanna. Innlent 12.5.2026 15:25
Helgi Bjartur áfrýjar til Landsréttar Helgi Bjartur Þorvarðarson hefur áfrýjað niðurstöðu Héraðsdóms Reykjaness til Landsréttar. Það staðfestir Sigríður Friðjónsdóttir ríkissaksóknari. Innlent 12.5.2026 10:14
Ársæll fékk aftur nei við vitnaleiðslubeiðni Ársæll Guðmundsson, fyrrverandi skólastjóri í Borgarholtsskóla, fær ekki að leiða forsætis- og menntamálaráðherra til vitnis í baráttu sinni við ríkið. Landsréttur hefur staðfest niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur þess efnis. Innlent 7. maí 2026 12:39
Birta bréf sem Epstein á að hafa skrifað áður en hann lést Alríkisdómari í New York í Bandaríkjunum samþykkti í dag að birta opinberlega bréf sem Jeffrey Epstein á að hafa skrifað í fangelsi. Klefafélagi hans sagðist hafa fundið bréfið í myndasögu. Í frétt New York Times segir að þau hafi ekki staðfest rithönd Epstein í bréfinu. Erlent 6. maí 2026 23:41
Ekki hafi tekist að sanna að brotið hafi verið á friðhelgi Páls Dómari í máli Páls Steingrímssonar gegn Ríkisútvarpinu og Þóru Arnórsdóttur, fyrrverandi starfsmanni RÚV, segir í niðurstöðu dómsins að ekki hafi tekist að sanna að Þóra og aðrir starfsmenn RÚV hafi brotið á friðhelgi einkalífs hans. Þau voru í dag sýknuð af öllum kröfum Páls en hann krafðist milljóna í miskabætur vegna ætlaðra brota þeirra gegn friðhelgi einkalífs hans. Innlent 6. maí 2026 21:03
Þóra og Ríkisútvarpið sýknuð af kröfum Páls skipstjóra Ríkisútvarpið og Þóra Arnórsdóttir, fyrrverandi starfsmaður þess, hafa verið sýknuð af öllum kröfum Páls Steingrímssonar skipstjóra. Hann krafðist milljóna króna í miskabætur vegna ætlaðra brota starfsmanna Rúv gegn friðhelgi einkalífs hans. Innlent 6. maí 2026 15:52
Ákærður fyrir að veiða minka Karlmaður á áttræðisaldri hefur verið ákærður fyrir brot gegn lögum um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum, með því að hafa veitt að minnsta kosti fimm minka í búr og aflífa þá síðan. Innlent 6. maí 2026 11:10
Mælti sér mót við barn og réðst á það Karlmaður á sextugsaldri hefur verið dæmdur til sextíu daga skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir að ráðast á pilt í Hamraborg í Kópavogi í apríl árið 2023. Hann neitaði sök en gekkst við því að hafa mælt sér mót við piltinn til þess að ræða við hann vegna eineltis sem hann sagði piltinn leggja son sinn í. Innlent 5. maí 2026 16:03
Sættir sig ekki við niðurstöðu klofins Mannréttindadómstóls Lögmaður Lárusar Welding mun óska eftir því að niðurstaða Mannréttindadómstóls Evrópu í máli hans á hendur íslenska ríkinu verði tekin fyrir í yfirdeild réttarins. Fjórir af sjö dómurum réttarins komust í morgun að þeirri niðurstöðu að ekki hefði verið brotið gegn rétti Lárusar í Stím-málinu svokallaða. Innlent 5. maí 2026 13:48
Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Íslenska ríkið var í morgun sýknað af öllum kröfum Lárusar Welding fyrir Mannréttindadómstól Evrópu. Hann vildi meina að brotið hefði verið á rétti hans til réttlátrar málsmeðferðar með skipan Hrefnu Sigríðar Briem sem sérfróðs meðdómanda í Stím-málinu svokallaða. Sjö manna dómstólinn klofnaði í málinu. Viðskipti innlent 5. maí 2026 12:11
„Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Svokallaður skutlari, sem hlaut dóm fyrir að áreita stúlku kynferðislega, áður en aðstandandi stúlkunnar veittist að honum, verður ekki ákærður fyrir að berja aðstandandann í höfuðið með spýtu í átökum þeirra. Innlent 4. maí 2026 15:35
Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Kólumbískur karlmaður var á dögunum dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir að brjótast inn á heimili föður barnsmóður sinnar, koma að honum sofandi, og svo stinga hann ítrekað. Það mun hann hafa gert vegna sannfæringar sinnar um að tengdafaðirinn hafi brotið kynferðislega á barni hans. Innlent 3. maí 2026 17:01
Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Karlmaður á sextugsaldri hefur verið ákærður fyrir hættubrot, með því að gefa samstarfsmanni sínum í fiskeldisstöðinni í Þverá í Vatnsfirði í Vesturbyggð köku sem innihélt ótilgreint magn tetróhýdrókannabínóls, virka efnisins í kannabis. Innlent 30. apríl 2026 14:37
Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Hæstiréttur hefur komist að þeirri niðurstöðu að ekki sé heimilt að arfleiða bréferfingja að innistæðu séreignarsparnaðar ef lögerfingjum er til að dreifa. Þannig mátti karlmaður ekki arfleiða sambýliskonu sína að einum þriðja innistæðu heldur rann öll innistæðan til barna hans. Innlent 30. apríl 2026 12:18
Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Penninn þarf að greiða rúmar sjö hundruð þúsund krónur fyrir að hafa selt verk sem sýna teiknimyndapersónuna Tinna á Íslandi. Eigandi höfundarréttar söguheims Tinna krafðist milljóna vegna sölunnar. Innlent 29. apríl 2026 15:37
Fróaði sér úti og var gripinn með teiknað barnaníðsefni Karlmaður á fertugsaldri hefur verið dæmdur til átta mánaða fangelsisvistar fyrir að hafa fróað sér á almannafæri og haft talsvert magn teiknaðs barnaníðsefnis í vörslum sínum. Fimm mánuðir refsingarinnar eru skilorðsbundnir. Innlent 28. apríl 2026 16:22
Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Aðalmeðferð í máli ungs manns, sem ákærður er fyrir að nauðga barni á leikskólanum Múlaborg í tvígang, er hafin. Hann var starfsmaður á leikskólanum þegar hann er sagður hafa brotið á barninu. Innlent 28. apríl 2026 09:22
Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Frönsk kona hefur verið ákærð fyrir að hafa myrt dóttur sína á Edition-hótelinu í Reykjavík síðasta sumar. Eiginmaður konunnar fannst einnig látinn á hótelherberginu. Innlent 27. apríl 2026 14:48
Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Eden Mining ehf., sem hefur helst það verkefni með höndum að vera milliliður fyrir Sjöunda dags aðventista við námugröft, vill ekki að mál sem nokkrir aðventistar höfðuðu á hendur fyrirtækinu rati fyrir dómstóla. Innlent 27. apríl 2026 14:37
Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Þýsk kona á sextugsaldri hefur hlotið fimm og hálfs árs fangelsisvist fyrir innflutning á mesta magni ketamíns sem gert hefur verið upptækt hér á landi. Tveir Albanar hlutu sjö ára dóma fyrir innflutninginn. Innlent 22. apríl 2026 16:58
Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Elfa Ýr Gylfadóttir, framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar, hafði betur gegn íslenska ríkinu fyrir Hæstarétti í dag. Því þarf fjármála- og efnahagsráðherra að útskýra skriflega hvernig launakjör Elfu Ýrar og annarra forstöðumanna eru ákvörðuð. Það gæti útheimt heljarinnar vinnu þar sem forstöðumenn ríkisins eru um 200 talsins. Innlent 22. apríl 2026 15:55
Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Karlmaður hefur verið dæmdur til 90 daga skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir auðgunarbrot, brot gegn útlendingalögum og fíkniefnalagabrot. Hann var aftur á móti sýknaður af ákæru fyrir að hafa ítrekað valdið hneykslan og óspektum á almannafæri vegna ölvunar og ónæði með því að betla þar peninga af almenningi með harmonikkuspili. Innlent 22. apríl 2026 14:48
Ingibjörg þarf ekki að víkja í máli Margrétar Ingibjörg Þorsteinsdóttir landsréttardómari þarf ekki að víkja sæti í máli Margrétar Friðriksdóttur á hendur Icelandair vegna atviks árið 2022, þegar Margréti var vísað úr flugvél flugfélagsins. Margrét krefst tuga milljóna króna vegna ætlaðs fjártjóns vegna atviksins en Icelandair var sýknað af öllum kröfum hennar í héraði. Krafa Margrétar um að Ingibjörg viki sæti tengist umtöluðu meiðyrðamáli sem höfðað hefur verið á hendur Margréti. Innlent 21. apríl 2026 11:32