Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 12. október 2026 15:23 Andri Már og Ingunn Rut huldu andlit sín við komuna í Héraðsdóm Suðurlands á fyrsta degi aðalmeðferðarinnar. Vísir/Anton Brink Andri Már Mortenssen Birgisson var dæmdur í átta ára fangelsi fyrir aðkomu sína að Reykholtsmálinu svokallaða. Dómur var kveðinn upp yfir honum og fimm öðrum en þeim var gefið að sök að hafa frelsissvipt, fjárkúgað og beitt maltneskan mann stórfelldu ofbeldi í Reykholti.
Dómurinn var kveðinn upp klukkan þrjú í Héraðsdómi Suðurlands sem er á Selfossi. Sjá nánar: Fjárkúgun í Reykholti Ingunn Rut Sigurðardóttir, ein ákærðra og barnsmóðir Andra Más, hlaut þriggja ára dóm en hún játaði að hluta til sök við aðalmeðferð málsins. Sigurður Gunnar Ásgeirsson, faðir Ingunnar, neitaði sök og hlaut tveggja og hálfs árs dóm. Þá var Pétur Már Mortensen Birgisson, bróðir Andra, einnig meðal ákærðra. Héraðssaksóknari fór fram á fjögurra til sex ára fangelsisvist yfir honum og var hann dæmdur í þriggja ára fangelsisvist. Loks voru Halldór Logi Sigurðsson og Níels Pálmar Benediktsson einnig meðal ákærður. Farið var fram á fjögur til sex ár yfir Níelsi en hann var dæmdur í eins árs fangelsi. Halldór Logi var dæmdur í sex mánaða fangelsisvist en héraðssaksóknari fór fram á þriggja til fimm ára fangelsi. Brotaþoli fær sex milljónir króna í miskabætur sem skiptast á milli allra ákærðu. Einnig þurfa þau að greiða þóknun skipaðs réttargæslumanns brotaþola sem er tæpar átta milljónir króna. Þá þarf að greiða sameiginlegan og útlagðan sakarkostnað sem gera rúmar þrjár milljónir króna. Loks þurfa Andri, Ingunn og Sigurður að greiða tæpar fimmtíu þúsund krónur og Pétur rúmar fjörutíu þúsund krónur. Sakarkostnaður sexmenninganna hleypur einnig á tugum milljóna króna. Andri þarf að greiða mest, tæpar 25 milljónir króna. Stórfellt ofbeldi Dómurinn sjálfur hefur ekki verið birtur en í ákærunni er Andra, Halldóri og Níelsi gefið að sök að hafa ráðist inn á heimili brotaþola á föstudagskvöldi og beitt hann ofbeldi. Markmið þeirra hafi verið að fá brotaþola til að gefa upp rafræn skilríki. Við aðalmeðferðina sagði Halldór Logi að hann hefði yfirgefið hópinn í Mosfellsbæ og aldrei farið upp í Reykholt. Brotaþoli leigði íbúð hjá Sigurði og kom fram við aðalmeðferðina að Sigurður teldi hann skulda sér pening fyrir leigunni. Andri hafi því ætlað að fá brotaþola til að greiða leigutekjurnar. Sigurður, Ingunn og Pétur eiga einnig, samkvæmt ákærunni, að hafa tekið þátt í ofbeldinu, til að mynda slegið hann með hnúajárni og hótað með keðjusög. Andri hafi síðan millifært tæpar átján milljónir króna af reikningi brotaþola á reikninga í eigu Sigurðar, Andra, Ingunnar og Péturs. Þeim er loks gefið að sök að hafa fylgt brotaþola upp á Keflavíkurflugvöll og skipað honum að fara til Möltu annars myndi dóttir hans hljóta skaða. Fréttin hefur verið uppfærð.
Fjárkúgun í Reykholti Dómsmál Bláskógabyggð Tengdar fréttir Símaupptökur úr Reykholtsmálinu: „Ekki fokking hreyfa þig eða ég mun sparka meira í þig“ Fyrsti morguninn í aðalmeðferð Reykholtsmálsins fór í að hlusta á upptökur úr síma Andra Más Mortensen Birgissonar. Þar heyrðist hann segja við félaga sinn að hann væri „í miðri frelsissviptingu“ og leggur á ráðin með unnustu sinni og yngri bróður. 17. ágúst 2026 13:24 Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Lögreglumaður sem handtók Andra Má Mortensen Birgisson, sakborning í Reykholtsmálinu, segir að hann hafi verið yfirvegaður þegar hann var handtekinn vegna Reykholtsmálsins. Vitnaleiðslur aðalmeðferðarinnar héldu áfram í dag. 24. ágúst 2026 15:51 Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Sjá meira
Símaupptökur úr Reykholtsmálinu: „Ekki fokking hreyfa þig eða ég mun sparka meira í þig“ Fyrsti morguninn í aðalmeðferð Reykholtsmálsins fór í að hlusta á upptökur úr síma Andra Más Mortensen Birgissonar. Þar heyrðist hann segja við félaga sinn að hann væri „í miðri frelsissviptingu“ og leggur á ráðin með unnustu sinni og yngri bróður. 17. ágúst 2026 13:24
Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Lögreglumaður sem handtók Andra Má Mortensen Birgisson, sakborning í Reykholtsmálinu, segir að hann hafi verið yfirvegaður þegar hann var handtekinn vegna Reykholtsmálsins. Vitnaleiðslur aðalmeðferðarinnar héldu áfram í dag. 24. ágúst 2026 15:51