Rúmar fimmtíu milljónir á mánuði fyrir Rússaáróður Forsvarsmenn dómsmálaráðuneytis Bandaríkjanna sökuðu í gær ráðamenn í Rússland um að verja milljónum dala til áróðursherferða gegnum ríkismiðil Rússlands, RT (sem áður hét Russia Today). Áróðrinum var ætlað að hjálpa Donald Trump við forsetaframboð hans og grafa undan stuðningi Bandaríkjamanna við Úkraínu. Erlent 5. september 2024 14:06
Utanríkismálin meira áberandi og Pennsylvanía í brennidepli „Við sem erum í alþjóðastjórnmálum erum yfirleitt mjög sár yfir því að fólk kýs ekki út á utanríkismál,“ sagði Silja Bára Ómarsdóttir, prófessor í stjórnmálafræði, í umræðum um forsetakosningarnar vestanhafs í nýjum þætti af Baráttan um Bandaríkin. Erlent 4. september 2024 19:53
Vill rétta Musk niðurskurðarhnífinn Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna og forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins, er sagður hafa um nokkuð skeið rætt við ráðgjafa sína um að skipa auðjöfra og þekkta forstjóra í starfshóp sem finna á leiðir til niðurskurðar hjá alríkisstjórn Bandaríkjanna. Elon Musk, einn auðugasti maður heims, er meðal þeirra sem gæti setið í starfshópnum og hefur hann lýst því yfir að hann sé tilbúinn til starfa. Erlent 3. september 2024 09:35
Trump ætlar að kjósa gegn rétti til þungunarrofs Donald Trump, forsetaframbjóðandi repúblikana, segist ætla að greiða atkvæði gegn breytingu á stjórnarskrá Flórída sem tryggði konum rétt til þungunarrofs. Nýleg lög þar leggja bann við þungunarrofi áður en margar konur vita að þær eigi von á sér. Erlent 30. ágúst 2024 23:13
Ætlar að skipa repúblikana í ráðuneyti sitt Kamala Harris sagðist ætla að skipa repúblikana í ríkisstjórn sína næði hún kjöri sem forseti í fyrsta meiriháttar fjölmiðlaviðtali sínu eftir að hún varð forsetaframbjóðandi demókrata. Hún lét aðdróttanir Trump um kynþátt hennar sem vind um eyru þjóta. Erlent 29. ágúst 2024 23:51
Fulltrúar Trump hrintu starfsmanni hermannagrafreits Starfsmaður forsetaframboðs Donalds Trump hrinti fulltrúa Bandaríkjahers þegar sá síðarnefndi brýndi fyrir honum reglur sem banna stjórnmálastarf í grafreit fallinna hermanna í vikunni. Framboðið sakaði starfsmann grafreitsins um að vera veikan á geði. Erlent 29. ágúst 2024 19:29
Harris og Walz veita loks viðtal Kamala Harris og Tim Walz, forseta- og varaforsetaefni Demókrataflokksins, hafa samþykkt að veita fyrsta sameiginlega viðtalið frá því að kosningabarátta þeirra hófst. Erlent 28. ágúst 2024 07:15
Ný sérsniðin ákæra á hendur Trump Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna hefur lagt fram nýja ákæru á hendur Donald Trump fyrrverandi Bandaríkjaforseta. Ákæran er sérsniðin að þeim kröfum sem fram komu í dómi Hæstaréttar Bandaríkjanna sem veitti Trump friðhelgi að hluta í sumar. Erlent 27. ágúst 2024 22:09
Áfrýjar ákvörðun dómara um að vísa leyniskjalamáli Trump frá Saksóknarinn Jack Smith fór þess á leit við áfrýjunardómstól í gær að hann snéri við frávísun dómarans Aileen M. Cannon á dómsmáli gegn Donald Trump, sem varðar meðferð forsetans fyrrverandi á trúnaðargögnum. Erlent 27. ágúst 2024 10:06
Rannsaka bandaríska álitsgjafa rússneskrar sjónvarpsstöðvar Umdeildur fyrrverandi vopnaeftirlitsmaður Sameinuðu þjóðanna í Írak er annar tveggja Bandaríkjamanna sem sæta sakamálarannsókn vegna starfa sinna fyrir rússneska ríkissjónvarpsstöð. Rannsóknin er sögð liður í að berjast gegn tilraunum Rússa til að hafa áhrif á forsetakosningarnar í Bandaríkjunum í haust. Erlent 23. ágúst 2024 23:37
Kennedy hættir og lýsir yfir stuðningi við Trump Robert F. Kennedy yngri dró framboð sitt til forseta Bandaríkjanna til baka og lýsti yfir stuðningi við Donald Trump í ræðu í dag. Hann sagðist engu að síður þess viss að hann hefði unnið sigur í „heiðarlegu kerfi“. Erlent 23. ágúst 2024 19:17
Baráttan um Bandaríkin: 73 dagar til kosninga og spennan magnast Staðan í kosningabaráttunni vestanhafs, frambjóðendurnir og málefnin verða meðal umræðuefna í fyrsta þætti nýrrar þáttaraðar á Vísi; Baráttan um Bandaríkin. Innlent 23. ágúst 2024 12:02
Kamala formlega komin í forsetaframboð Kamala Harris, varaforseti Bandaríkjanna, tók í nótt formlega við útnefningu Demókrata sem forsetaframbjóðandi flokksins í komandi kosningum vestanhafs. Erlent 23. ágúst 2024 07:40
Nýir þættir á Vísi í aðdraganda forsetakosninganna vestanhafs Á morgun fer í loftið Baráttan um Bandaríkin, nýr þáttur á Vísi um forsetakosningarnar í Bandaríkjunum, sem fara fram 5. nóvember næstkomandi. Erlent 22. ágúst 2024 13:48
„Walz þjálfari“ hvatti Demókrata til dáða Tim Walz tók í nótt formlega við útnefningu Demókrataflokksins sem varaforsetaefni þeirra í komandi kosningum. Kamala Harris og Tim Walz hafa verið á miklu flugi en sumir stjórnmálaskýrendur telja þau mögulega vera að toppa of snemma. Erlent 22. ágúst 2024 08:30
Kennedy íhugar að hætta og styðja Trump í staðinn Varaforsetaefni Roberts F. Kennedy yngri, óháðs frambjóðanda til forseta Bandaríkjanna, segir að hann íhugi að draga framboð sitt til baka og lýsa yfir stuðningi við Donald Trump. Hvert hneykslismálið hefur rekið annað hjá Kennedy að undanförnu. Erlent 21. ágúst 2024 11:35
„78 ára milljarðamæringur sem hefur ekki hætt að væla um vandamálin sín“ Barack og Michelle Obama, Bernie Sanders og nokkrir háttsettir Repúblikanar voru meðal þeirra sem komu fram á landsþingi Demókrataflokksins í gær. Erlent 21. ágúst 2024 07:28
Staðfesta að Íranar brutust inn í tölvur framboðs Trump Bandaríska leyniþjónustan staðfestir að írönsk stjórnvöld hafi staðið á bak við gagnastuld frá forsetaframboði Donalds Trump. Hún telur Írani einnig hafa reynt að brjótast inn í tölvukerfi framboðs Kamölu Harris. Erlent 20. ágúst 2024 10:07
Segir Trump mögulega munu tapa ef hann breytir ekki um stefnu Repúblikaninn Lindsey Graham segir Donald Trump eiga á hættu að tapa forsetakosningunum ef hann haldi áfram að ögra og eggja í stað þess að eiga málefnalegar umræður. Erlent 19. ágúst 2024 06:54
Frægir kynnar á ráðstefnu Demókrata Kerry Washington, Tony Goldwyn, Mindy Kaling og Ana Navarro verða kynnar á ráðstefnu Demókrataflokksins sem hefst í Chicago í Illinois á morgun. Ráðstefnan stendur alla vikuna og mun hvert þeirra vera kynnir eina kvöldstund. Lífið 18. ágúst 2024 23:25
Trump gerði lítið úr æðstu heiðursorðu bandarískra hermanna Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, lýsti heiðursorðu sem hann sæmdi fjárhagslegan bakhjarl sinn sem betri en æðstu heiðursorðu sem bandarískir hermenn geta hlotið. Hermenn fá orðuna fyrir að hætta lífi sínu við hetjudáðir í stríði. Erlent 16. ágúst 2024 11:51
Erlendir þrjótar reyna að brjótast inn til Harris og Trump Bandaríska alríkislögreglan FBI gerði framboði Kamölu Harris viðvart um að erlendir aðilar sem sækjast eftir að hafa áhrif á forsetakosningarnar beini spjótum sínum að henni. Framboð Donalds Trump segist fórnarlamb íranskra tölvuþrjóta. Erlent 14. ágúst 2024 08:53
Gera sér ekki mat úr lekanum úr framboði Trump Bandarískir fjölmiðlar sem fengu upp í hendurnar trúnaðargögn sem var lekið úr framboði Donalds Trump hafa kosið að skrifa ekki fréttir upp úr þeim. Það er allt önnur nálgun en þegar tölvupóstum kosningastjóra Hillary Clinton var lekið árið 2016. Erlent 13. ágúst 2024 08:53
Fóru um víðan völl í samtali á X í gær Auðjöfurinn Elon Musk fór mjúkum höndum um Donald Trump í viðtali á X í gær, sem hófst um það bil 40 mínútum of seint vegna tæknilegra örðugleika. Trump fór mikinn gegn innflytjendum og kallaði Kamölu Harris ítrekað „róttækling“. Erlent 13. ágúst 2024 07:02
Dró framboðið til baka til að forðast innanflokkserjur Joe Biden Bandaríkjaforseti telur að keppnin milli sín og Donalds Trump hefði ekki ráðist fyrr en á lokasprettinum hefði hann haldið áfram í framboði. Hann segist hafa dregið sig í hlé til þess að innanflokkserjur um framboð sitt skemmdu ekki fyrir demókrötum í kosningunum. Erlent 12. ágúst 2024 08:52
Segir Írani hafa hakkað tölvupósta framboðsins Kosningateymi Donalds Trump kveðst hafa orðið fyrir árás hakkara, og kennir Írönum um. Í yfirlýsingu frá teyminu í gær segir að óprúttnir aðilar hafi komist yfir innri samskipti kosningateymisins og því haldið fram að Íranir stæðu að baki árásinni. Erlent 11. ágúst 2024 16:06
Ummæli Trump vekja áhyggjur af sjálfstæði seðlabanka Fullyrðingar Donalds Trump um að Bandaríkjaforseti ætti að hafa áhrif á ákvarðanir Seðlabanka Bandaríkjanna hafa vakið áhyggjur af sjálfstæði bankans komist Trump aftur til valda. Trump telur sig hafa meira vit á peningum en stjórnendur bankans. Viðskipti erlent 9. ágúst 2024 16:00
Emhoff viðurkennir að hafa haldið framhjá fyrstu eiginkonu sinni Doug Emhoff, eiginmaður Kamölu Harris varaforseta Bandaríkjanna og forsetaefnis Demókrataflokksins, játar í yfirlýsingu til CNN að hafa haldið framhjá fyrstu eiginkonu sinni. Erlent 9. ágúst 2024 07:15
Trump vill mæta Harris þrisvar í kappræðum Donald Trump forsetaefni Repúblikana vill mæta Kamölu Harris varaforseta og forsetaefni Demókrata þrisvar í kappræðum í aðdraganda forsetakosninganna í Bandaríkjunum í nóvember. Þá sé hann svo gott sem búinn að jafna sig í eyranu eftir banatilræði í júlí. Erlent 8. ágúst 2024 19:27
Harris þaggaði niður í stuðningsfólki Palestínumanna Mótmælendur sem kyrjuðu slagorð um stríðsátökin á Gasa trufluðu endurtekið kosningafund Kamölu Harris, forsetaefnis Demókrataflokksins, í Michigan í Bandaríkjunum í gær. Harris hvatti fólkið til þess að segja það hreint út ef það vildi fá Donald Trump sem forseta. Erlent 8. ágúst 2024 15:35