„Ekki á hverjum degi sem leigubílstjórar gera svona lagað“ Hundruð félagsmanna í Bandalagi íslenskra leigubifreiðastjóra lögðu niður störf í dag í mótmælaskyni við nýsamþykkt leigubílafrumvarp innviðaráðherra. Þeir lýsa þungum áhyggjum af breytingunum og krefjast áheyrnar stjórnvalda. Innlent 19. desember 2022 21:15
Blindir sjá fyrir sér mun verri þjónustu Leigubílafrumvarp sem rýmkar skilyrði til að reka leigubíl var samþykkt í gær. Leigubílstjórar hyggjast leggja niður störf á mánudag og þriðjudag vegna málsins og formaður Blindrafélagsins hefur áhyggjur af því að þjónusta við fatlaða muni versna til muna. Innlent 17. desember 2022 12:36
Órökstudd aðför að bláum Capri Heilbrigðisráðherra hefur mælt fyrir innleiðingarfrumvarpi frá ESB sem mun banna Salem og Capri bláan ásamt öðrum mentol sígarettum. Tilgangurinn er að hlífa börnum, sem væri gott og blessað og sjálfsagt ef hægt væri að færa rök fyrir að mentol sígarettur hefðu einhvern tímann gert börnum eitthvað umfram aðrar sígarettutegundir. En svo er einfaldlega ekki. Skoðun 17. desember 2022 07:01
Barði í borð og sagði Katrínu hafa samþykkt eiturpillu í loftslagsmálum Heimild til þess að ríkið geti notað óseldar losunarheimildir vegna stóriðju upp í sínar eigin loftslagsskuldbindingar var samþykkt á Alþingi í dag. Þingmenn stjórnarflokkanna og Miðflokks greiddu atkvæði með frumvarpinu. Þingmaður Pírata segir Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra hafa samþykkt eiturpillu inn í aðgerðaráætlun í loftslagsmálum. Innlent 16. desember 2022 21:37
Lækka endurgreiðslu á rafbílum en fjölga þeim sem geta fengið Hámarksendurgreiðsla á virðisaukaskatti við kaup á rafmagns- og vetnisbílum lækkar á árinu 2023 úr 1,56 milljónum króna í 1,32 milljónir króna. Hámarksfjöldi bíla sem geta sótt slíka ívilnun hefur verið fjölgað úr fimmtán þúsund í tuttugu þúsund. Þetta kemur fram í nýsamþykktu frumvarpi um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld. Neytendur 16. desember 2022 20:33
Fjárlög samþykkt og næsti þingfundur 23. janúar Fjárlög fyrir árið 2023 voru samþykkt á Alþingi nú síðdegis. Þar með er Alþingi komið í jólafrí. Innlent 16. desember 2022 19:13
Sýndu mér fjárlögin Í dag voru fjárlög fyrir árið 2023 samþykkt á Alþingi. Í kjölfar þeirrar afgreiðslu minnist ég þess sem formaður Samfylkingarinnar sagði fyrr í þessum mánuði: „Sýndu mér bara fjárlögin þín og ég skal segja þér hvað skiptir þig máli.“ Skoðun 16. desember 2022 18:01
Frumvarpið sem leigubílstjórar óttast orðið að lögum Leigubílafrumvarp Sigurðar Inga Jóhannssonar innviðaráðherra var samþykkt nú síðdegis með 38 atkvæðum. Tíu þingmenn sögðu nei. Frumvarpið rýmkar skilyrði sem þarf til að reka leigubíl, meðal annars með því að afnema reglur um heildarfjölda starfsleyfa. Innlent 16. desember 2022 16:37
„Þetta er bara mjög óheppilegt“ Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra og formaður Framsóknarflokksins, segir afgreiðslu meirihluta fjárlaganefndar á viðbótarstyrkjum, sem ætlaðir voru sjónvarpsframleiðslu á landsbyggðinni, óheppilega. Innlent 16. desember 2022 15:01
Segir framkomu fjárlaganefndar í N4-málinu ekkert annað en skandal Þingflokksformaður Viðreisnar segir vinnubrögð meirihluta fjárlaganefndar vegna 100 milljóna fjárstuðnings við N4 vera skandal. Stefnt er að því að ljúka þingstörfum fyrir jól í dag en það gæti þó dregist fram á morgundaginn. Innlent 16. desember 2022 14:57
Lýsa yfir þungum áhyggjum af langvarandi fjársvelti háskólastigsins Í ljósi lokaumræðu fjárlagafrumvarps fyrir árið 2023 lýsa Landssamtök íslenskra stúdenta yfir þungum áhyggjum af langvarandi fjársvelti háskólastigsins. Innlent 16. desember 2022 14:26
Nærri 25 þúsund fá eingreiðslu í tæka tíð fyrir jólin Eingreiðsla til örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega er greidd út í dag. 24.900 manns hljóta eingreiðsluna. Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins. Innlent 16. desember 2022 14:23
Kannast ekki við meint hundrað milljóna loforð aðstoðarmanns Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, segir það ekki rétt að aðstoðarmaður hans hafi lofað ÍBV hundrað milljóna króna styrk vegna tekjubrests í kórónuveirufaraldrinum. Það sé hvorki hlutverk hans, ráðherrans, né aðstoðarmanna að lofa einstökum félögum fjárhæðum. Fjárlaganefnd fari með úthlutunarvald í málaflokknum. Innlent 16. desember 2022 14:01
Sluppu fyrir horn frá lagabroti með eftiráskýringum í N4-málinu Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur segir að gerningur fjárlaganefndar vegna fyrirhugaðs styrks til N4 sjónvarpsstöðvarinnar á Akureyri brjóti í bága við lög um opinber fjármál. Innlent 16. desember 2022 13:14
Fólk furði sig oft á því hversu ódýrt farið er Lögregla lokaði Tjarnargötu í miðborg Reykjavíkur í morgun vegna mótmæla leigubílstjóra, sem óku þar bílum sínum og þöndu flautur, á meðan ríkisstjórnin fundaði í ráðherrabústaðnum. Leigubílstjórar krefjast þess að afgreiðslu leigubílafrumvarps innviðaráðherra, sem verður til umræðu á Alþingi í dag, verði frestað. Innlent 16. desember 2022 11:43
Tekist á um frumvarp Willums: Vill að saumaklúbbarnir fái sínar mentólsígarettur Tekist var á um frumvarp heilbrigðisráðherra um tóbaksvarnir á Alþingi í gær. Fari frumvarpið í gegn væru mentólsígarettur ekki lengur leyfilegar. Þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir frumvarpið einna helst hafa áhrif á saumaklúbba landsins. Innlent 16. desember 2022 08:08
Aðstoðarmaður Ásmundar Einars hafi staðfest að ÍBV fengi 100 milljónir króna Framkvæmdastjóri Íþróttabandalags Vestmannaeyja (ÍBV) hefur óskað eftir að fjárlaganefnd tryggi að ríkið greiði félaginu sextíu milljóna króna eftirstöðvar af hundrað milljóna króna styrk sem hann segir að félaginu hafi verið lofað vegna „gríðarlegs tekjubrests“ af hátíðarhaldi árin 2020 og 2021 vegna faraldurs kórónuveirunnar. Innlent 16. desember 2022 07:56
Þingmaður Framsóknar bað framkvæmdastjóra N4 að óska eftir styrk Framkvæmdastjóri hjá N4 á Akureyri segir þingmann Framsóknar hafa óskað sérstaklega eftir því að sjónvarpsstöðin bæði fjárlaganefnd um styrk. Þá sé stöðin sannarlega fjölmiðill, þrátt fyrir að meginþungi framleiðslunnar sé kostað efni. Nefndarmaður í fjárlaganefnd þvertekur fyrir að nefndin hafi misstigið sig í málinu. Innlent 15. desember 2022 23:59
Hundrað milljónirnar fara í almenna styrki til fjölmiðla Menningar- og viðskiptaráðherra segir að hundrað milljónir króna sem meirihluti fjárlaganefndar lagði upphaflega til að rynni til fjölmiðla á landsbyggðinni fari í almennt styrkjakerfi fyrir fjölmiðla. Styrkirnir hækki þannig úr tæpum 400 milljónum í tæpar 500 milljónir á næsta ári. Innlent 15. desember 2022 19:06
Ríkið geti mætt losunarskuldbindingum með því að nýta heimildir vegna stóriðju Heimild til þess að ríkið geti notað óseldar losunarheimildir vegna stóriðju upp í sínar eigin loftslagsskuldbindingar var bætt inn í fjárlagafrumvarpið fyrir þriðju og síðustu umræðu þess. Ungir umhverfissinnar segja heimildina skapa hættu á að ríkið dragi úr metnaði loftslagsaðgerða sinna. Innlent 15. desember 2022 18:35
Stóra fröllumálið: Tollalækkun „lítið skref fyrir Alþingi en stórt skref fyrir franskar kartöflur“ Atkvæðagreiðsla um fjárlagabandorminn fer fram í dag. Meðal þeirra mála sem þingmenn hafa greitt atkvæði um er breytingartillaga Jóhanns Páls Jóhannssonar um lækkun á frönskutolli úr 76 prósentum í 46 prósent. Tollurinn er sá hæsti í prósentum talið á matvöru í íslensku tollskránni. Breytingartillagan var samþykkt með 57 atkvæðum og er ekki laust við að ákveðinn galsi hafi látið á sér kræla á þinginu þegar umræða um málið fór fram. Viðskipti innlent 15. desember 2022 16:35
„Það er ekki hægt að taka nokkurt einasta mark á þessu fólki“ Tekist var á um hinn svokallaða fjárlagabandorm ríkisstjórnarinnar á Alþingi í dag en þingmenn stjórnarandstöðunnar komu hver á fætur öðrum upp í pontu til að gagnrýna áform ríkisstjórnarinnar. Þingmaður Samfylkingarinnar sagði hækkanir á krónutölugjöldum fram úr öllu hófi en fjármálaráðherra beindi spjótum sínum að sveitarfélögunum. Innlent 15. desember 2022 14:42
Forsætisráðherra segir engar blekkingar varðandi barnabætur Forsætisráðherra segir engum blekkingum hafa verið beitt í kynningu á hækkun barnabóta í tengslum við nýgerða kjarasamninga eins og þingmenn í stjórnarandstöðu haldi fram. Formaður Samfylkingarinnar segir muna þremur milljörðum á raunveruleikanum og þeim hækkunum sem ríkisstjórnin kynnti. Innlent 15. desember 2022 14:00
Bréfið sem leiddi til hundrað milljóna króna styrks birtist ekki fyrir mistök María Björk Ingvadóttir, framkvæmdastjóri N4, lagði til í bréfi sínu til fjárlaganefndar Alþingis að starfsemi RÚV utan höfuðborgarsvæðisins yrði lögð niður. Starfsmenn þeirra stöðva yrðu færðir undir nýja sjónvarpsstöð sem yrði stofnuð á grunni N4. Þetta kemur fram í bréfinu sem loks hefur verið birt á vef Alþingis. Innlent 15. desember 2022 13:01
Telur fjölmiðlastyrkinn ekki klúður og stendur við tillöguna Formaður fjárlaganefndar lítur ekki svo á að breytingartillaga meirihluta nefndarinnar, um hundrað milljóna króna styrk til fjölmiðla sem sinna sjónvarpsvinnslu á landsbyggðinni, hafi verið klúður. Þingmaður Framsóknarflokksins, sem tengdur er framkvæmdastjóra norðlensku sjónvarpsstöðvarinnar N4 fjölskylduböndum, hafi ekki verið með í ráðum þegar umræðan var tekin innan fjárlaganefndar, þó hann hafi skrifað undir nefndarálitið. Innlent 15. desember 2022 11:08
Fjögur bætast við á lista þeirra sem fá heiðurslaun listamanna Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis hefur lagt til að listamennirnir Hildur Hákonardóttir, Kristín Þorkelsdóttir, Manfreð Vilhjálmsson og Þórhildur Þorleifsdóttir muni bætast á lista yfir þá sem njóta heiðurslaun listamanna. Innlent 15. desember 2022 08:38
Verðbólgin heimili Hversu mörg heimili standa óvarin þegar stýrivextir eru hækkaðir? Ég leitaðist við að fá þessu svarað í haust þegar Seðlabanki kom á fund fjárlaganefndar með fyrirspurn um hversu stórt hlutfall heimila er með óverðtryggð lán á breytilögum vöxtum. Skoðun 15. desember 2022 08:02
Hringsóla utan við Alþingishúsið til að mótmæla leigubílafrumvarpi Hópur leigubílstjóra ekur nú bílum sínum í hringi utan við Alþingishúsið til þess að mótmæla leigubílafrumvarpi ríkisstjórnarinnar sem þar er til umræðu. Lögregla bannaði þeim þó að þeyta flautur sínar. Innlent 14. desember 2022 23:40
Fela ráðherra að endurskoða styrki í ljósi fjölmiðlaumræðu Meirihluti fjárlaganefndar beinir því til ráðherra að endurskoða reglur um rekstrarstuðning við einkarekna fjölmiðla á landsbyggðinni í kjölfar fjölmiðlaumfjöllunar um ákvörðun nefndarinnar um hundrað milljón króna styrk til framleiðslu sjónvarpsefnis. Innlent 14. desember 2022 20:53
Sakar stjórnarþingmenn um að kaupa sér velvild eins fjölmiðils Þingmaður Samfylkingarinnar sakar meirihluta fjárlaganefndar um að kaupa sér velvild eins fjölmiðils með hundrað milljón króna styrk sem hún leggur til að verði í fjárlögum næsta árs. Ákvörðun um styrkinn hafi ekki byggt á leikreglum í lögum. Innlent 14. desember 2022 19:17