Innlent

Brynjar verður ekki í stjórn Mannréttindastofnunar

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Hildur Sverrisdóttir segja það vera vegna þess að þingmenn megi ekki eiga sæti í stjórninni en Brynjar skipar þriðja sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í öðru Reykjavíkurkjördæminu.
Hildur Sverrisdóttir segja það vera vegna þess að þingmenn megi ekki eiga sæti í stjórninni en Brynjar skipar þriðja sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í öðru Reykjavíkurkjördæminu. Vísir/Vilhelm

Brynjar Níelsson tekur ekki sæti í stjórn Mannréttindastofnunar eins og staðið hafði til. Sigurður Kári Kristjánsson, fyrrverandi þignmaður Sjálfstæðisflokksins tekur sætið þess í stað og vera formaður hennar.

Hildur Sverrisdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, segir það stafa af því að Brynjar sé í framboði til Alþingis en hann skipar þriðja sæti flokksins í Reykjavíkurkjördæmi Norður.

„Brynjar getur ekki tekið sæti í þessari stjórn eins og við höfðum lagt upp með því að hann ákvað að fara í framboð. Þeir sem sitja í þessari stjórn mega ekki vera þingmenn. Það hefði auðvitað verið gaman að hafa Brynjar í þessari stjórn en hann mun bara gera sitt á Alþingi í staðinn,“ segir hún

“Við erum mjög glöð að Sigurður Kári ætli að sinna stjórnarformennskunni og ætlar að fylgja stofnuninni úr hlaði. Hann er mjög öflugur og þetta eru fín skipti fyrst svona þurfti að fara.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×