Ísland í dag - Sterkustu og flottustu blómin til að flýta sumrinu.
Það er búið að vera óvenju kalt bæði í vor og í byrjun sumars þar til núna. En hvernig getum við flýtt sumrinu með því að setja strax út sterkar og mega fallegar plöntur og blóm? Nokkrar tegundir eru þekktar fyrir að þola vel íslenskt vor og kalda sumarbyrjun. Við fórum austur fyrir fjall til Hveragerðis og Selfoss og ræddum við plöntu sérfræðinga eins og Lindu Maríu Traustadóttur í Flóru garðyrkjustöð í Hveragerði og svo rifjuðum við upp hvernig Auður Ingibjörg Ottesen á Selfossi nennir aldrei að bíða eftir sumarblómunum og er komin með litríkan garð snemma á sumrin. Og blóma hönnuðurinn Bryndís Eir Þorsteinsdóttir er alltaf komin með blómlegan garð hjá sér í Hveragerði langt á undan öllum öðrum. Vala Matt fór fyrir Ísland í dag í blóma leiðangur og kynnti sér hvernig hægt er að flýta sumrinu.