Geta notað drónana til fulls á ný Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 24. október 2026 14:27 Úkraínskir hermenn geta notað drónana til fulls á nýjan leik. AP Tenging úkraínskra hermanna við Starlink-tæknina er aftur orðin stöðug samkvæmt varnarmálaráðherra landsins. Herinn hafði takmarkaða tengingu við tæknina í nokkra daga en hermenn reiða sig mikið á hana í hernaði gegn Rússum.
Aðfaranótt 14. október tóku úkraínskir hermenn eftir því að takmarkanir virtust hafa verið settar á notkun þeirra á Starshield-kerfinu sem er sérstakur hluti af Starlink. Þessar takmarkanir sneru að því að þegar drónarnir sem þeir nota í hernaðinum fóru yfir ákveðinn hraða, um 160 kílómetra á klukkustund, misstu hermennirnir tenginguna við drónann. Hins vegar virðist tengingin aftur vera orðin stöðug og komast drónarnir á yfir fjögur hundruð kílómetra á klukkustundar hraða án þess að missa tenginguna. „Þessi árangur skiptir fyrst og fremst máli fyrir víglínuna okkar, fyrir hermennina okkar, fyrir drónaaðgerðir, fyrir birgðaflutninga og fyrir fjarskipti,“ segir Jevhenij Khmara, varnarmálaráðherra Rússlands. Starlink-kerfið er í eigu SpaceX sem auðkýfingurinn Elon Musk á og undir það fellur Starshield-kerfið. Um er að ræða net tíu þúsund gervihnatta á lágri sportbraut um jörðu sem Rússar hafa ekki aðgang að. Þegar Úkraínumenn senda langdrægar eldflaugar og dróna djúpt inn í Rússland virkar netið ekki. Þegar bera fór á takmörkunum sagði Musk að Bandaríkjaher og forseti Bandaríkjanna væru með stjórn yfir Starshield-kerfinu. Hann hafi því ekki sett takmarkanirnar á. Hins vegar herma heimildir Wall Street Journal að það hafi verið Musk sem gaf fyrirmælin eftir að hafa rætt við Donald Trump Bandaríkjaforseti í gegnum síma. Þá komu takmarkanirnar í kjölfar þess að bandarískir hermenn hótuðu að hætta stuðningi við Úkraínu ef Úkraínumenn hættu ekki árásum á olíuvinnsluinnviði í Rússlandi.
Úkraína Innrás Rússa í Úkraínu Rússland Donald Trump Elon Musk SpaceX Hernaður Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Geta notað drónana til fulls á ný Erlent Fleiri fréttir Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Sjá meira