Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar 20. október 2026 07:02 Það þarf heilt þorp til að ala upp barn. Þótt foreldrar beri meginábyrgð á uppeldi barna sinna gegna fleiri mikilvægu hlutverki í lífi barna. Afar, ömmur, frænkur, frændur og fjölskylduvinir geta verið hluti af því stuðningsneti sem veitir börnum öryggi, umhyggju og sterk tengsl. Fjölskyldur eru ólíkar og aðstæður þeirra sömuleiðis. Stuðningsúrræðin þurfa því að vera fjölbreytt og löggjafinn á ávallt að vera vakandi fyrir því hvernig þróa megi þau í takt við breyttar þarfir samfélagsins. Í því ljósi er eðlilegt að skoða hvort heimila eigi foreldrum að framselja allt að fjórar vikur af fæðingarorlofi sínu til einstaklings sem stendur fjölskyldunni nærri. Það gæti verið amma, afi, annar ættingi eða náinn fjölskylduvinur. Markmiðið væri að tryggja börnum góða umönnun, styrkja tengsl þeirra við fólkið sem stendur þeim næst og gefa foreldrum aukið svigrúm til að haga fjölskyldulífinu eftir eigin aðstæðum og þörfum. Sænskar ömmur og afar í fæðingarorlofi Árið 2024 tóku gildi breytingar á sænska fæðingarorlofskerfinu sem heimila foreldrum að framselja hluta fæðingarorlofsréttinda sinna til annarra einstaklinga sem falla undir sænska almannatryggingakerfið og annast barnið á meðan orlofinu stendur. Foreldrar með sameiginlega forsjá geta hvort um sig framselt allt að 45 dögum, en foreldrar sem fara einir með forsjá allt að 90 dögum. Sá sem tekur við réttindunum fær greiðslur sem miðast við eigin tekjur. Samkvæmt úttekt sænsku almannatryggingastofnunarinnar nýta foreldrar sem fara einir með forsjá hlutfallslega oftar heimildina til framsals en aðrir forsjáraðilar. Breytingin hefur þannig í fyrsta sinn gert sumum þeirra kleift að deila fæðingarorlofsdögum með öðrum einstaklingi og kann því að nýtast þessum hópi sérstaklega vel. Algengast er að dagarnir séu framseldir til ættingja, sem bendir til þess að heimildin sé einkum nýtt til að virkja þann stuðning sem þegar er til staðar innan stórfjölskyldunnar. Í úttektinni kemur jafnframt fram að áhrif breytingarinnar á heildarskiptingu fæðingarorlofs milli kynjanna hafi hingað til verið lítil. Flestir foreldrar hafa kosið að nýta ekki heimildina og þeir sem það gera framselja að jafnaði aðeins um 13 daga, þrátt fyrir að heimilt sé að framselja allt að 90. Orlofsréttur sem bundinn er við foreldranna og takmarkanir á fjölda framseljanlegra daga draga jafnframt úr mögulegum áhrifum breytingarinnar á jafnrétti kynjanna. Vert er að taka fram að fæðingarorlofið í Svíþjóð eru 480 dagar. Framsækið fæðingarorlofskerfi Íslenska fæðingarorlofskerfið hefur tekið miklum framförum á síðustu áratugum og Framsókn hefur verið leiðandi í þeirri þróun. Árið 2000 lagði Páll Pétursson, þáverandi félagsmálaráðherra Framsóknar, fram frumvarp sem tryggði feðrum sjálfstæðan rétt til fæðingarorlofs. Árið 2020 fylgdi Ásmundur Einar Daðason, þáverandi félags- og barnamálaráðherra Framsóknar, þessum umbótum eftir með lögum sem lengdu samanlagt fæðingarorlof foreldra í tólf mánuði úr níu. Þessar breytingar hafa stuðlað að jafnari skiptingu umönnunarábyrgðar og auknum samvistum barna við báða foreldra sína. Þau markmið eiga áfram að vera í forgrunni. En samfélagið breytist og löggjöfin þarf að þróast með því. Fyrir sumar fjölskyldur gæti það verið dýrmætt að amma eða afi tæki að sér umönnun barns í nokkrar vikur. Rétturinn til fæðingarorlofs er mikilvægur þáttur í réttindum fólks á vinnumarkaði. En fæðingarorlof snýst um meira en það. Það snýst líka um að gefa börnum og fjölskyldum tíma til samvista, umönnunar og tengslamyndunar. Foreldrar gætu áfram nýtt allan rétt sinn sjálfir eða kosið að framselja allt að fjórar vikur til einstaklings sem þeir treysta og stendur fjölskyldunni nærri. Hugmyndin felur þannig í sér aukið valfrelsi innan núverandi kerfis. Ég hvet Alþingi til að taka málið til skoðunar og stíga næsta skref í þróun fæðingarorlofskerfisins með því að heimila foreldrum að framselja hluta fæðingarorlofs síns til nátengdra einstaklinga. Við eigum að byggja samfélag þar sem kerfin mæta þörfum fólks, en ekki þar sem fólk þarf sífellt að laga líf sitt að kerfunum. Höfundur er fyrsti varaborgarfulltrúi Framsóknar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Magnea Gná Jóhannsdóttir Mest lesið Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir Skoðun Skörum fram úr í skaðlegu skattaumhverfi Elliði Vignisson Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson Skoðun Hvers vegna skiptir bókun 35 máli? Eiríkur S. Svavarsson Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir Skoðun Hver ætlar að hjúkra þér? Helga Rósa Másdóttir Skoðun Var Stonehenge sláturhús? Ása Hlín Benediktsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hamfarir í hversdagslegum kringumstæðum Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Heimilin eiga ekki alltaf að borga brúsann Alexander M. Árnason skrifar Skoðun Fleiri krónur taldar – fáar nýjar Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og fisks Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Orkan í ólgusjó efnahagsmála Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Loksins get ég notið þess að vera heima Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Skoðun Sama fötlun en ólík réttindi - Aldurinn ræður úrslitum - Ásta Ólafsdóttir skrifar Skoðun Umskiptingar Flokks fólksins á Alþingi Júlíus Valsson skrifar Skoðun Okkar fé í Heimum Bergur Hauksson skrifar Skoðun Hver ætlar að hjúkra þér? Helga Rósa Másdóttir skrifar Skoðun Er alveg sama hvað Ísland er dýrt? Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Krossinn er ekki matseðill Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Við mælum hávaða en mælum við óskýrleikann? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Hvað gerist í síðari hálfleik? Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna skiptir bókun 35 máli? Eiríkur S. Svavarsson skrifar Skoðun Skörum fram úr í skaðlegu skattaumhverfi Elliði Vignisson skrifar Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Arfurinn og réttur ríkisins til skattheimtu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Undir sömu stjörnu – ópera fyrir alla þjóðina Sævar Þór Halldórsson skrifar Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Ísland á ekki að verða land gjaldhliða Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Fokk, ég er með ristilkrabbamein! Matthías Freyr Matthíasson skrifar Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Samfélagsbanki: Opið bréf til ríkisstjórnarinnar Guðmundur D. Haraldsson,Sævar Finnbogason skrifar Sjá meira
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Samfélagsbanki: Opið bréf til ríkisstjórnarinnar Guðmundur D. Haraldsson,Sævar Finnbogason skrifar
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun