Íslenski boltinn

Leggur skóna á hilluna eftir tíma­bilið

Andri Broddason skrifar
Guðmundur Kristjánsson ætlar að leggja skóna á hilluna eftir þetta tímabilið í Betu deildinni.
Guðmundur Kristjánsson ætlar að leggja skóna á hilluna eftir þetta tímabilið í Betu deildinni. Sigurjón/Vísir

Guðmundur Kristjánsson, fyrirliði Stjörnunnar, tilkynnti á samfélagsmiðlinum Instagram að hann muni leggja skóna á hilluna eftir tímabilið

Guðmundur hefur spilað fyrir Stjörnuna síðustu þrjú ár en hann er uppalinn hjá Breiðablik. Hann var hluti af liði Breiðabliks sem varð Íslandsmeistari árið 2010.

Árið 2012 fór hann til Noregs í atvinnumennsku þar sem hann lék með Start. Þegar hann kom heim úr atvinnumennskunni árið 2018 gekk hann til FH þar sem hann var leikmaður þangað til hann gekk til liðs við Stjörnuna. 

„Ég er þakklátur fyrir allt fólkið sem ég hef kynnst, staðina sem ég hef heimsótt og minningarnar sem ég hef eignast. Mest er ég þó þakklátur fjölskyldunni minni fyrir að hafa staðið með mér í þessu,“ segir Guðmundur í tilkynningu sinni sem lítur stoltur til baka á ferilinn sinn.

Stjarnan er sem stendur í öðru sæti í neðri hluta Bestu deildarinnar og er liðið með jafn mörg stig og Valur í sætinu fyrir ofan. Síðasti leikur Guðmundar verður gegn Val á heimavelli í lok október.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×