Íslenski boltinn

Aron Þórður hættur

Valur Páll Eiríksson skrifar
Aron Þórður er hættur.
Aron Þórður er hættur. vísir/Guðmundur

Aron Þórður Albertsson, fráfarandi leikmaður KR, er hættur knattspyrnuiðkun þrítugur að aldri.

Auk KR lék Aron Þórður með Fram, HK og Þrótti Reykjavík á ferli sínum. Hann hefur verið leikmaður KR frá árinu 2022 og verið í misstóru hlutverki.

Hann spilaði töluvert með liðinu sumrin 2024 og 2025 en hlutverkinu fór heldur minnkandi í ár þar sem Aron spilaði aðeins fimm leiki fyrir KR í Bestu deild karla.

KR tilkynnti á samfélagsmiðlum félagsins í dag að Aron hafi ákveðið að hætta og snúa sér að öðrum verkefnum. Hann spilaði alls 122 leiki fyrir Vesturbæjarliðið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×