„Töpuðum á réttan hátt” Theódóra Guðný Vilhjálmsdóttir skrifar 18. september 2026 19:46 Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Stjörnunnar, er sáttur með frammistöðuna þrátt fyrir tap. Anton/Vísir Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Stjörnunnar, var sár eftir 1-0 tap liðsins gegn FH í Kaplakrika en mjög ánægður með frammistöðu sinna leikmanna. Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir skoraði eina mark leiksins á 90. mínútu. „
Ég er rosalega sorgmæddur fyrir stelpurnar. Þær lögðu svo mikið í leikinn. Ég er sár yfir því að hafa tapað þegar mér fannst það eiginlega ótrúlegt miðað við hvernig seinni hálfleikurinn spilaðist,“ sagði Óskar Smári eftir leik. Stjarnan varðist vel lengst af og hélt út fram á lokamínútu venjulegs leiktíma. Óskar Smári var sérstaklega ánægður með hvernig hans lið óx inn í leikinn. „Varnarleikurinn var góður og í seinni hálfleik, eftir því sem leið á leikinn, fannst mér við alltaf verða líklegri og líklegri. Það var þessi tilfinning að þetta væri okkar leikur og við ætluðum að koma hingað og vinna hann.“ Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Stjörnunnar, var sár eftir 1-0 tap liðsins gegn FH í Kaplakrika en mjög ánægður með frammistöðu sinna leikmanna. Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir skoraði eina mark leiksins á 90. mínútu. „Ég er mjög ánægður með frammistöðuna og mjög ánægður með stelpurnar fyrir að hafa lagt allt í þetta. Útkoman er fúl en það er margt jákvætt sem við getum tekið með okkur í næstu leiki.“ Óskar Smári hrósaði einnig hugarfari leikmanna sinna og nefndi sérstaklega hversu ungt lið Stjarnan var með inni á vellinum undir lok leiks. „Mér fannst stelpurnar geggjaðar í dag. Þetta er kornungt lið og nokkrir leikmenn voru að fá sínar fyrstu mínútur. Bæði eldri leikmenn og yngri leikmenn voru öflugir í dag.“ Hann sagði vissulega ýmislegt sem mætti laga en það væri ekki það sem hann tæki helst úr leiknum. „Ég er ekki að pæla í því núna. Ég er að pæla í viðhorfinu og hvernig við fórum inn í leikinn. Ég er gríðarlega ánægður með það.“ Stjarnan tapaði einnig síðasta leik sínum gegn Víkingi en Óskari Smára fannst frammistaðan í Kaplakrika allt önnur. „Auðvitað er fúlt að tapa svona og það svíður en þarna taparðu á réttan hátt, finnst mér. Við vorum að sækja til að vinna leikinn þegar við fengum markið á okkur.“ „Ég get alveg tapað svona þegar leikmenn leggja 110 prósent í verkefnið og andinn og hugarfarið er þannig að við erum að reyna að vinna leikinn. Hrós á stelpurnar í dag. Þær lögðu sig fram, spiluðu saman og sýndu fullt af flottum sóknarupphlaupum í seinni hálfleik.“
Fótbolti Íslenski boltinn Besta deild kvenna Stjarnan Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn Engin uppalin spilaði með Fram Íslenski boltinn „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti Fleiri fréttir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjá meira